„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hamas skilaði líkum fjögurra gísla: „Leiðtogar ykkar völdu að drepa þá“

Hamas skilaði líkum fjögurra gísla: „Leiðtogar ykkar völdu að drepa þá“
Kona heldur á blóm­vendi í Tel Aviv í dag. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hamas hefur sagt í yfir­lýs­ingu sem gefin var út eftir afhend­ingu líka fjög­urra ísra­el­skra gísla á Gaza, að Ísraelar hafi ekki virt líf þeirra á meðan þeir voru á lífi, en að sam­tökin reyndu að „virða helgi hinna látnu“ í afhend­ing­ar­at­höfn­inni sem haldin var í Khan Younis.

Hópurinn sagði einnig að jafn­vel þegar þeir væru á lífi hafi gísl­arnir verið með­höndl­aðir á mann­úð­legan hátt og þeim útvegað allt sem til var, en að ísra­elski her­inn hafi drepið þá ásamt þeim sem rændu þeim.

„Glæpa­mað­ur­inn Net­anyahu grætur yfir líkum fanga sinna í grímu­lausri til­raun til að kom­ast hjá ábyrgð á að myrða þá fyrir framan áhorf­endur sína,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

„Fyrir fjöl­skyldur Bibas og Lifshitz, við hefðum kosið að synir ykkar hefðu snúið aftur lif­andi, en leið­togar ykkar völdu að drepa þá og með þeim 17.881 palest­ínsk börn,“ bætti hún við. Á Hamas þar við bræð­urnar Kfir Bibas, sem var unga­barn er honum var rænt 7. októ­ber, og Ariel, fjög­urra ára og svo Oded Lifschitz, sem einnig var tek­inn sem gísl. Lík móður bræðr­anna, Shiri Bibas, var einnig meðal þeirra sem skilað var í dag.

Hamas var­aði einnig við því að fanga­skipti séu „eina leiðin til að skila föng­unum á lífi og að reyna að ná þeim aftur með valdi eða hefja aftur stríð muni aðeins leiða til dauða þeirra.“

Isaac Herzog, for­seti Ísraels, not­aði sam­fé­lags­mið­il­inn X til að biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar á því að hafa ekki verndað gísl­ana fjóra.

„Fyrir hönd Ísra­els­ríkis hneigi ég höf­uðið og biðst fyr­ir­gefn­ingar. Fyr­ir­gefn­ingu fyrir að hafa ekki verndað ykkur á þessum hræði­lega degi. Fyr­ir­gefn­ingu fyrir að hafa ekki komið ykkur heim á öruggan hátt. Megi minn­ing þeirra vera blessun,“ skrif­aði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“