„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hamas harðneita ásökunum um morð á Bibas-fjölskyldunni – Tilbúin að láta af völdum á Gaza

Hamas harðneita ásökunum um morð á Bibas-fjölskyldunni – Tilbúin að láta af völdum á Gaza
Blessuð sé minn­ing þeirra.

Hamas neita með öllu ásök­unum Ísraela um að hafa myrt ungu Shiri Bibas og unga syni hennar.

Hamas hefur lengi sagt að ísra­elsk loft­árás hafi drepið Shiri Bibas og ung­börn hennar, Kfir og Ariel, snemma í stríð­inu. Vígamenn Hamas rændu fjöl­skyld­unni í hinni hræði­legu árás sam­tak­anna inn í Ísrael 7. októ­ber 2023.

„Fölsku ásak­an­irnar sem glæpa­menn [ísra­elska] her­náms­ins eru að dreifa um dauða Bibas-barn­anna af hendi ræn­ingja þeirra eru aðeins til­hæfu­lausar lygar og upp­spuni,“ sagði Hazem Qassem, tals­maður Hamas, í yfir­lýs­ingu.

Ísra­elski her­inn sagði að bar­daga­menn Hamas hafi myrt börnin „með berum höndum“ vikum eftir að þeim var rænt 7. októ­ber 2023.

Ismail al-Thawabta, for­stöðu­maður fjöl­miðla­skrif­stofu Hamas-stjórn­ar­innar á Gaza, sagði að for­sæt­is­ráð­herr­ann Net­anyahu beri „fulla ábyrgð á því að myrða hana og börn hennar“.

Tilbúin að láta af völdum

Basem Naim, emb­ætt­is­maður Hamas og fyrrum heil­brigð­is­ráð­herra, segir í sam­tali við Al Jazeera, Hamas-sam­tökin á Gaza vera reiðu­búin að láta af völdum á Gaza og fagna til­lögu Egypta um upp­bygg­ingu á Gaza sem ekki fælu í sér brott­flutn­ing Palest­ínu­manna.

Tillaga Egypta snýr að því að óháð nefnd verði stofnuð sem myndi fara með stjórn Gaza og ann­ast skipu­lagn­ingu á upp­bygg­ingu á svæð­inu, í sam­vinnu við nágranna­ríkin, án aðkomu Hamas.

Sagði Naim að sam­tökin væru til­búin að sleppa stjórn­ar­taumunum undir eins yrði slík nefnd stofnuð, eða önnur stjórn­völd ákveðin af Palest­ínu­mönnum sjálfum.

Sagði hann að Hamas hefðu verið stofnuð sem and­spyrnu­hreyf­ing gegn her­námi Ísraela og í þeim til­gangi að ná fram sjálf­ræði og sjálf­stæði Palest­ínu­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“