„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Uppdekkað páskaborð – eggin lituð með rauðkáli!

Uppdekkað páskaborð – eggin lituð með rauðkáli!

Guðrún Lára Pét­urs­dóttir er ein­stakur fag­ur­keri búsettur í gamla Vesturbæ Reykja­víkur ásamt eig­in­manni sínum og þremur börnum. Hún var alveg til í að dekka upp páska­borð fyrir Hús og híbýli sem er inn­blásið af vor­inu og páska­há­tíð­inni sem framundan er.

„Pásk­arnir eru vor­há­tíð þar sem við fögnum því að sjá fyrir end­ann á vetr­inum. Blár him­in­inn, grænt gras og blóm. Ég reyndi að end­ur­spegla þetta í lit­unum; grænir tónar og pastel­bleikt ráða ríkjum en pastelliti tengi ég við vorið. Ég vildi ekki hafa þetta of form­fast heldur afslappað”.

Blóm ómissandi á borðið

Hvað er að þínu viti ómissandi þegar borð er dekkað upp?

„Blóm, ef ég er að gera fínt. Það virð­ist vera alveg sama hvar ég bý, ég verð alltaf mál­kunnug afgreiðslu­fólki í nær­liggj­andi blóma­búðum mjög fljót­lega. Ég fer lang­mest í Blómagall­erí á Hagamel. Þær eru dug­legar að kaupa inn fal­leg blóm sem eru ekki til hvar sem er. Ég bjó lengi í Svíþjóð, þannig að fyrir mér er vorið blóm­strandi kirsu­berja­greinar, asíu­sól­eyjar og anemónur og þær sjá um að upp­fylla þessar þarfir mínar fyrir skand­in­av­ískt vor”.

Eggin lituð með rauðkáli

Guðrún not­ast mikið við nátt­úru­efni eins og hör en bæði dúk­ur­inn á borð­inu og serví­ett­urnar eru úr því efni. Stellinu, sem er frá Royal Copenhagen, hefur Guðrún safnað í gegnum árin og keypti hún grunn­inn „second hand” en blandar honum oft saman við nýrri hluti á mjög smekk­legan hátt. Glösin eru keypt í sænskri antik­búð. Eggin á borð­inu lit­aði Guðrún síðan sjálf með rauð­káli og hún segir upp­skrift­ina vera ein­falda:

„Ég saxaði niður rauð­kál og sauð það í vatni í um 40 mín­útur, þá slökkti ég undir og lét það kólna. Svo tók ég rauð­kálið upp úr, bætti hvítvín­sediki í vökvann og setti ég eggin ofan í. Fyrstu eggin tók ég upp úr eftir um það bil 90 mín­útur en þau sem voru lengst í vökv­anum voru þar yfir nótt. Því lengur sem eggin eru í vökv­anum því dekkri verða þau og þótt vök­vinn sé dökk­fjólu­blá verða eggin græn­blá á lit­inn,” segir Guðrún.

Lífið í lit

Seint á síð­asta ári kom út bókin Lífið í lit í þýð­ingu Guðrúnar Láru og var ekki hægt að ljúka heim­sókn­inni án þess að minn­ast á þá frá­bæru bók sem er skrifuð af Dagny Thurmann-Moe lita­sér­fræð­ingi. Guðrún segir að bókin hafi breytt miklu í hennar lífi, ásamt því að vera frá­bært upp­fletti­rit, enda tekur hún á öllu því sem við kemur litum í líf­inu almennt, inni­heldur mik­inn fróð­leik og gefur góða leið­sögn um lita­notkun.

„Þegar ég fékk bók­ina fyrst þá var ég búin að vera að spá í að mála hjá mér og var með bláar máln­ingaprufur en eftir lest­ur­inn lang­aði mig að nota liti meira. Ég vil helst ekki mála í tísku­litum annað hvert ár og fannst því mik­il­vægt að reyna að átta mig á því hvaða litir höfða til mín svona almennt. Blár hefur alltaf verið upp­á­halds­lit­ur­inn minn og þess vegna valdi ég að mála stof­urnar bláar. Blár fer líka svo vel við inn­búið mitt,“ segir Guðrún.

Fleiri myndir má sjá í glæ­nýju og spenn­andi Hús og híbýli sem kom út 28. mars!

Texti / Stefanía Alberts­dóttir
Ljós­mynd­ari / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & híbýli

Landsliðs- og markadrottning selur í Mosfellsbæ
MannlífiðHús & híbýli

Lands­liðs- og marka­drottn­ing selur í Mos­fellsbæ

Berglind Björg Þor­valds­dóttir, lands­liðs­kona í knatt­spyrnu, og Kristján Sig­urðs­son hafa ákveðið að selja heim­ili sitt í Mos­fells­bænum. Berglind hefur á und­an­förnum ára­tug verið ein besta knatt­spyrnu­kona lands­ins og algjör marka­drottn­ing. Þá hefur hún spilað 72 lands­leiki fyrir Ísland og skorað í þeim leikjum 12 mörk. Hún skipti nýlega úr Val yfir í Breiða­blik eftir að for­ráða­menn Vals létu Berg­lindi vita...
Litrík og skemmtileg heimili í nýja blaðinu
MannlífiðHús & híbýli

Litrík og skemmti­leg heim­ili í nýja blað­inu

Þau eru ansi lit­rík og skemmti­leg heim­ilin sem við hjá Húsum og híbýlum heim­sóttum fyrir nýja blaðið okkar sem er komið í versl­anir. Stofur og borð­stofur eru í aðal­hlut­verki í þessu blaði ásamt inn­litum inn á íslensk heim­ili þar sem per­sónu­legur stíll ræður ríkjum. Það er fal­leg íbúð þeirra Hebu Fjal­ars­dóttur og Birgis Har­alds­sonar sem prýðir for­síð­una að þessu sinni....
Hvað ætla hönnuðirnir að sjá á HönnunarMars?
MannlífiðHús & híbýli

Hvað ætla hönn­uð­irnir að sjá á Hönn­un­ar­Mars?

Umsjón/ María Erla og Guðný Hrönn Hönn­un­ar­Mars hefst á morgun, 19 maí, og er þetta í 13. sinn sem hátíðin er haldin. Við­burð­ur­inn er stærsta hönn­un­ar­há­tíð lands­ins. Við heyrðum í nokkrum hönn­uðum sem sýna á Hönn­un­ar­Mars í ár og spurðum þau meðal annasr út í hvað þau ætla að sjá. Sig­mundur Frey­steins­son fata­hönn­uður Hvað ert þú að sýna á Hönn­un­ar­Mars?...
Deiglumór, áhugaverð heimildabók um leirlist á Íslandi 1930–1970
Mannlífið

Deiglu­mór, áhuga­verð heim­ilda­bók um leir­list á Íslandi 1930–1970

Í ár kom út bókin Deiglu­mór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970. Í bók­inni er farið yfir sögu leir­list­ar­innar sem hefur fylgt mann­kyn­inu frá örófi alda og segja má að sé órjúf­an­legur hluti af menn­ingar- og lista­sögu heims­ins. Hugtakið deiglu­mór er fornt orð yfir leir og vitnar í notkun hans á Íslandi til deiglu­gerðar á öldum áður. Sú saga er fallin...
Handgerð og eftirtektarverð sojakerti
Mannlífið

Handgerð og eft­ir­tekt­ar­verð soja­kerti

Kerti í alls konar birt­ing­ar­formum hafa verið vin­sæl upp á síðkastið; svo sem lík­ams­kerti og snún­ings­kerti og því óvenju­legri því skemmti­legri að okkar mati. Mynd / soyar Við rák­umst á þetta breska vöru­merki, soyar, sem býður upp á úrval soja­kerta í alls konar útfærslum og litum. Mynd / soy­ar­Mynd: Höfundur ókunnur Kertin eru hand­gerð úr soja­vaxi, eit­ur­efna­laus og vegan. Glæddu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður