„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Flugfreyja með látlausan stíl

Í hvítu og bláu fjöl­býli við Boða­grand­ann í Vest­ur­bænum, rétt við sjó­inn, býr Erna Viktoría Jans­dóttir, flug­freyja og smekk­pía, ásamt fjöl­skyldu sinni. Fjöl­skyldan er alsæl í Vest­ur­bænum.

Flugfreyja með látlausan stíl

Spurð út í hvað það er sem heillar hana mest við íbúð­ina segir hún: „Hvað hún er björt, það eru stórir stofu­gluggar og útsýnið út um eld­hús­glugg­ann er æðis­legt því við horfum beint út á sjó­inn. Stað­setn­ingin hentar okkur líka mjög vel því fjöl­skyldur okkar beggja búa hér í Vest­ur­bænum. Ég er samt fædd og upp­alin í Danmörku og bjó í Kaup­manna­höfn fyrstu 11 árin.

Mér finnst líka sér­lega gaman að heyra dönsk­una og nota hvert tæki­færi sem gefst til að tala hana.

Fyrir mér er Kaup­manna­höfn mitt annað heim­ili og ég reyni að fara einu sinni til tvisvar á ári þangað. Þar er meiri stór­borg­ar­stemn­ing en hér í Reykja­vík en samt er lífið í Köben ein­hvern veg­inn miklu afslapp­að­ara en hér. Mér finnst líka sér­lega gaman að heyra dönsk­una og nota hvert tæki­færi sem gefst til að tala hana, eins og þegar ég er að fljúga og hitti Dani um borð. Það er eitt­hvað við Köben sem heillar mig, hún og New York eru  í upp­á­haldi hjá mér,“ segir hún dreymin og þá leikur okkur for­vitni á að vita hvort það séu alls engir gallar við að búa í Vest­ur­bænum?

Jólatréð er úr Garð­heimum og dúk­ur­inn undir því er frá ömmu Ernu en tréð er svo stórt að hann sést ekki.

„Eini gall­inn er að það er stundum rok hérna við sjó­inn en á móti kemur að hér er allt í göngu­fjar­lægð. Við erum mjög dug­leg að rölta í sund, bæði í Vest­ur­bæj­ar­laug­ina og Neslaug­ina sem er alveg æðis­leg. Svo finnst okkur ljúft að geta gengið í hverf­is­búð­ina sem er Mela­búðin og á sumrin er líka voða þægi­legt að geta gengið í mið­bæ­inn og þurfa ekki að leita að bíla­stæði, eins og til dæmis á menn­ing­arnótt.“

Borð­stofu­borðið er úr hnotu og er frá Tekk Company, bekk­ur­inn er frá Happy Furnit­ure og stól­arnir eru úr Hús­gagna­höll­inni.

Gaman að eiga húsgögn sem ekki eru fjöldaframleidd

Hvernig myndir þú lýsa stílnum á heim­il­inu?

„Ég er örugg­lega svo­lítið minimal­ísk því ég vil ekki hafa heim­ilið ofhlaðið af dóti, ég vil frekar að þeir hlutir og hús­gögn sem eru á heim­il­inu fái að njóta sín. Mér finnst rosa­lega gaman að kaupa nýja muni sem eru í tísku en mér finnst líka gaman að eiga hluti með sögu. Við erum til að mynda með grænan flauels­bekk og stól í stíl frá ömmu og afa Krist­jáns sem okkur þykir mjög vænt um.

Við erum til að mynda með grænan flauels­bekk og stól í stíl frá ömmu og afa Krist­jáns sem okkur þykir mjög vænt um.

Fengum það og kist­una undir hansa­hill­unum í arf frá þeim. Hansa­hill­urnar fengum við svo hjá tengda­mömmu, hún var með þær í geymsl­unni og okkur lang­aði svo að leyfa þeim að njóta sín uppi við og fengum þær. Mér finnst gaman að vera með hús­gögn sem eru ekki fjölda­fram­leidd, eins og til dæmis sófa­borðið og bekk­inn við borð­stofu­borðið sem frændi minn, Haf­steinn Hall­dórs­son hjá Happy Furnit­ure, sér­smíð­aði fyrir okkur. Borð­stofu­borðið okkar er úr hnotu en það keyptum við á lag­er­sölu hjá Tekk Company og við vorum lengi að leita að bekk við það. Ég sendi svo Haf­steini mynd af borð­inu og hann smíð­aði bekk sem smellpassar við það.“

Grænu bekk­ur­inn er arfur og mál­verkið er eftir Auði Mar­in­ós­dóttur.

Fannst hún ekki falleg í fyrstu en þykir vænt um hana núna

Hvað finnst þér skipta mestu máli þegar kemur að heim­il­inu; lýs­ingin, lit­irnir eða upp­röðun hluta og hús­gagna? „Ég er voða mikið fyrir að færa til hluti og held mér finn­ist upp­röð­unin skipta mestu máli. Á óska­list­anum núna, eða þegar við flytjum næst, er Butt­er­fly-stóll úr Casa, það væri draumur að eign­ast hann þegar við förum í stærra hús­næði. Mig langar líka að eign­ast ljós frá secto yfir borð­stofu­borðið og svo væri æðis­legt að fá nýtt risa­stórt rúm svo við getum öll kúrt saman. En okkur vantar svo sem ekki neitt og erum ótrú­lega ánægð. Það hefur alveg komið upp sú hug­mynd að taka eld­húsið í gegn en það er alveg fínt þótt það sé orðið gam­alt, það er meira bara pjatt að vilja skipta því út. Mér þykir bara vænt um það sem við höfum. Fyrst þegar ég kom hingað og sá svala­hurð­ina fannst mér hún alls ekki fal­leg en með tím­anum fór mér að þykja vænt um hana. Mér finnst ein­hver sjarmi yfir því að hafa hlut­ina ekki full­komna. Í dag myndi aldrei vilja skipta um svala­hurð.“

Baðið var nýlega tekið í gegn. Inn­rétt­ingin er úr IKEA, speg­ill­inn úr Esju Dekor.

Með glasa-„fetish“

Hvar finnst þér skemmti­leg­ast að versla hluti og annað fyrir heim­ilið? „Mér finnst rosa­lega gaman að kíkja í alls konar versl­anir, ég er ekki háð því að hlut­ur­inn sé ein­hver merkja­vara. Ég kaupi bara það sem heillar mig. Módern finnst mér rosa­lega fal­leg búð og ég við­ur­kenni að mér finnst Illum Bolighus í Kaup­manna­höfn líka æðis­leg, sér­stak­lega fyrir jólin, það eru svo fal­legar útstill­ingar í glugg­unum og í Kaup­manna­höfn fær maður jólastemn­ing­una beint í æð. Ég er að verða meira jóla­barn með aldr­inum og sér­stak­lega eftir að ég eign­að­ist son minn. Honum fannst til dæmis æðis­legt að við skyldum skreyta jóla­tréð svona snemma í ár,“ segir Erna bros­andi og þegar við spyrjum hana hvar hún fái helst inn­blástur fyrir heim­ilið seg­ist hún skoða Pinter­est mjög mikið.

Ég er að verða meira jóla­barn með aldr­inum og sér­stak­lega eftir að ég eign­að­ist son minn.

„Svo skoða ég líka oft tíma­rit eins og Bo Bedre og Hús og híbýli, Instagram-síður  og hönn­unar- og lífs­stíls­blogg.“

Mál­verkið í her­berg­inu hans Jóhann­esar Inga er af fjöl­skyldu­kett­inum Týra. Sigurður Sævar mál­aði það og gaf þeim en eig­in­maður Ernu var sund­þjálf­ari mál­ar­ans til margra ára.

En hverju tekur þú helst eftir þegar þú kemur inn á önnur heim­ili? „Per­sónu­legum stíl þeirra sem þar búa en mér finnst öll heim­ili hafa sinn sjarma,“ svarar hún ein­læg en ætli Erna sé að safna ein­hverju sér­stöku fyrir heim­lið? „Ég safna kannski helst fal­legum glösum, ég er með eitt­hvað glasa-„fet­ish“ og safna sér­stak­lega rauð­víns­glösum.“

Sörubakstur og kósíkvöld í desember

Erna seg­ist byrja að skreyta í byrjun des­em­ber og hún keypti á hverju ári nýtt skraut á jóla­tréð þar til í fyrra þegar hún keypti gylltar og silfraðar kúlur og ákvað að þær yrðu not­aðar hér eftir. „Ég vil ekki vera með of mikið jóla­skraut, frekar færri hluti og vand­að­ari. Mér þykir sér­lega vænt um stjörn­una á toppnum því þessi stjarna var alltaf á jóla­trénu þegar ég var að alast upp en mamma gaf mér hana svo fyrir nokkrum árum“.

„Ég safna kannski helst fal­legum glösum, ég er með eitt­hvað glasa-„fet­ish“ og safna sér­stak­lega rauð­víns­glösum.“

En hvað finnst þér ómissandi á aðvent­unni? „Ég og mamma reynum alltaf að baka saman sörur, mér finnst æðis­legt að eiga sörur í fryst­inum. Á Þor­láks­messu finnst okkur svo gaman að labba Lauga­veg­inn og alltaf á föstu­dögum í des­em­ber höfum við kósí­kvöld og horfum saman á jóla­bíó­myndir.“

Hvernig eru svo jólin hjá ykkur? „Á aðfanga­dag erum við með tengda­fjöl­skyld­unni, við erum stór hópur saman sem mér finnst rosa­lega gaman, örugg­lega vegna þess að ég er sjálf einka­barn. Á gamlárs­kvöld ætlum við að vera hér heima og for­eldrar mínir koma til okkar. Pabbi minn hefur alla tíð verið mikil sprengju­kall.“

Og þá verðum við að vita hvað kemur þér í jóla­skap? „Að kíkja á jóla­mark­aði í Kaup­manna­höfn og fara í jóla­tívolí og fá sér heitt súkkulaði,“ svarar hún að bragði.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsgögn

Nýr stóll eftir gamalli teikningu Nönnu Ditzel
Mannlífið

Nýr stóll eftir gam­alli teikn­ingu Nönnu Ditzel

Nýverið var borð­stofu­stóll­inn, Arkade Chair, frum­sýndur en það var Nanna Ditzel sem teikn­aði hann upp­haf­lega árið 1983 í sam­starfi við Brdr. Krüger. Nanna Ditzel. Nanna sótti sér inn­blástur í danska hönnun sem átti í senn að vera klass­ísk og nútíma­leg, stóll­inn var þó ekki settur í fram­leiðslu á þeim tíma. Ditzel var heilluð af skrauti og litum og bera efni­við­ur­inn...
Mikilvægustu húsgögn heimilisins
Mannlífið

Mik­il­væg­ustu hús­gögn heim­il­is­ins

Þekking sem kemur að góðum notum þegar inn­rétta á heim­ilið. Stólar eru vafa­laust ein mik­il­væg­ustu hús­gögn heim­il­is­ins en þekkt­ustu hönn­uðir og arki­tektar heims hafa margir hverjir hannað stóla eða ein­hvers konar sæti á starfsævi sinni. Þegar velja á stóla fyrir heim­ilið er gott að hafa í huga hvaða þarfir þeir þurfa að upp­fylla. Fag­ur­fræði og nota­gildi þurfa því að tvinn­ast...
Hrátt og nútímalegt
Mannlífið

Hrátt og nútíma­legt

Androg­yne-sófa­borðið er nýtt úr smiðju danska fyr­ir­tæk­is­ins Menu, hannað af norska arki­tekt­inum og hönn­uð­inum Danielle Siggerud. Borðið var upp­haf­lega gert fyrir Menu Space-kaffi­húsið en fór fljót­lega á almennan markað. Borðið er með marm­ara­plötu og stálfótum og ein­stak­lega fag­urt á að líta. Það stendur sem skúlp­túr og hentar í hinum ýmsu rýmum og varpar fal­legum skugga­myndum. Nútíma­legt, hrátt og fágað.
Fyrsta tölublað ársins – Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi og trendin fyrir árið 2020 krufin
Mannlífið

Fyrsta tölu­blað árs­ins – Fjöl­breyti­leik­inn í fyr­ir­rúmi og trendin fyrir árið 2020 krufin

For­síðu­myndin er af nýja veit­inga­staðnum Dill sem við heim­sóttum ásamt fjöl­breyttum híbýlum. Arki­tektúr og tísku­straum­arnir fyrir árið 2020 eru áber­andi og virki­lega áhuga­vert að sjá hvað er fram undan. Ein­stak­lega áhuga­verður arki­tektúr á Kala­stöðum sem danski arki­tekt­inn Ole Jakobsen teikn­aði en hann hann­aði húsið út frá nátt­úr­unni í Hval­firði. Fallegt hús hjá Hönnu Þóru í Garðabæ, með skemmti­legum arki­tektúr, sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður