„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stelpulegur stíll í Urriðaholti

Á einkar blautum og vinda­sömum mánu­dags­morgni brun­uðu blaða­maður og ljós­mynd­ari í inn­lit í Urriða­holt­inu, en þar býr Krist­jana Sunna í 95 fm íbúð í nýju fjöl­býl­is­húsi.

Stelpulegur stíll í Urriðaholti

Krist­jana flutti inn í apríl fyrr á árinu og hefur ber­sýni­lega verið dug­leg við að koma sér fyrir og nostra við heim­ilið. Hún stundar fjar­nám í við­skipta­fræði við Háskól­ann á Akureyri ásamt því að starfa í heild­sölu Swiss Color Iceland, þar sem hún sér um sölu- og mark­aðs­mál.

Dýrðlegt útsýni yfir Urriðavatn

Mynd/Aldís Páls­dóttir

Hvernig líkar þér hér í Urriða­holt­inu og hvað heill­aði við hverfið? „Ég er úr Hafn­ar­firð­inum og bjó á Völlunum áður en ég flutti hingað, en ég hafði verið að leita að réttu íbúð­inni í tvö ár og var alltaf að skoða í þessu hverfi. Þegar ég gekk hér inn fann ég strax að þetta væri rétta íbúðin.“

Krist­jana seg­ist hafa kol­fallið fyrir eign­inni og það sem heill­aði helst var skipu­lagið, borð­stofu­hornið, birtan og útsýnið, ásamt því að íbúðin tikk­aði í öll boxin; gólf­síðir gluggar, suð­ur­svalir, gluggi á bað­her­berg­inu, opið eld­hús, þvotta­hús í íbúð­inni og aukin loft­hæð.

„Mér fannst mjög skemmti­legt í þessu ferli að kaupa og inn­rétta íbúð, að sjá hvað íslensk fyr­ir­tæki eru komin langt hvað varðar gæði þjón­ustu – en það að fá góða þjón­ustu þykir mér alveg ómet­an­legt og spilar stærsta þátt­inn í vali á fyr­ir­tæki og kaup­ferl­inu öllu!“

Áttu þér upp­á­halds­stað hér heima­fyrir? „Upp­á­halds­stað­ur­inn minn er klár­lega borð­stofu­krók­ur­inn, en þar er mjög gott að setj­ast niður og læra með góðan kaffi­bolla, þar hef ég einnig skapað góðar minn­ingar með vinum og fjöl­skyldu.“

Aðspurð um hvort það séu ein­hverjar frek­ari breyt­ingar eða fram­kvæmdir í kort­unum svarar hún: „Ég hætti eig­in­lega alveg að græja og gera hérna heima­fyrir þegar ég tók þá ákvörðun að fara í meist­ara­nám í stjórnun á Spáni í jan­úar næst­kom­andi, svo íbúðin verður í útleigu næstu tvö árin eða lengur, og ég mun því halda áfram að dúlla við íbúð­ina þegar ég kem heim aftur.“

 Frískað upp á stíl­inn við flutn­inga

„Hann er svo­lítið stelpu­legur, ég er rosa­lega hrifin af öllu sem glansar eða glitrar, eins og hlutum úr kristal, en mér er sagt að ég hafi erft stíl­inn frá langömmu minni,“ segir Krist­jana þegar hún er beðin um að lýsa stílnum sínum.

Ég er rosa­lega hrifin af öllu sem glansar eða glitrar, eins og hlutum úr kristal, en mér er sagt að ég hafi erft stíl­inn frá langömmu minni

Aðspurð um áherslur í lita­vali segir hún pastelliti og bleikan vera í miklu upp­á­haldi og þá helst í bland við hrein­lega ljósa tóna, glans­andi málma og glært gler. Þar sem íbúðin er í nýbygg­ingu og eng­inn búið þar áður, seg­ist Krist­jana hafa hugsað þetta kjörið tæki­færi til að end­ur­hugsa stíl­inn örlítið.

„Töluvert af inn­bú­inu úr gömlu íbúð­inni minni var orðið lúið og kom­inn tími á að end­ur­nýja, svo það var til­valið að hreinsa aðeins til í stílnum við flutn­ing­ana.“

Í for­stof­unni hangir lit­fag­urt mál­verk sem grípur augað, verkið er eftir lista­mann­inn Norr, einnig þekktur sem Gummi kíró, og seg­ist Krist­jana vera í skýj­unum með það. Hún gaf sjálfri sér verkið í inn­flutn­ings­gjöf og segir það eins­konar tákn til að minna sig á árið sem leið og allt það góða sem átti sér stað.

Hvaðan koma hlut­irnir þínir og hvaða versl­anir eru í upp­á­haldi? „Ég held mikið upp á ljósið í borð­stof­unni frá By Rydens sem ég keypti í Rafkaup, svo er ég mjög hrifin af versl­un­inni Fakó og fékk til dæmis borð­stofu­borðið og velúr­stól­ana þar. Einnig finnst mér gaman að vafra um á Netinu og ég versla tölu­vert við net­versl­anir, en þær eru oft óháðar öðrum og með annað úrval, það er mik­il­vægt að styðja við ung sjálf­stæð fyr­ir­tæki. Svo verð ég að minn­ast á allar litlu búð­irnar erlendis sem mér finnst gaman að skoða og get gleymt mér í, og tek ég þá gjarnan einn hlut með mér heim frá hverju landi þegar ég hef færi á.“

Hún bætir við að auð­vitað sé alltaf gaman að taka hring í Epal eða Snúrunni, en þar séu margir hlutir að hennar skapi og tróna New Wave Optic-vegg­ljósið, Flos-ljósakróna og String-hilla með skáp ofar­lega á óska­list­anum.

Við for­vitn­umst um sög­una bak við stóran skúlp­túr af and­liti ásettan smáum speglum sem hangir á vegg í stof­unni. „Mamma gaf mér hann í inn­flutn­ings­gjöf því ég elska allt sem glitrar og henni fannst hún eig­in­lega verða að gefa mér hann, en hann er frá Zolo og co í Keflavík.“

Krist­jana seg­ist hafa fengið marga fal­lega hluti að gjöf við hin ýmsu til­efni og er dug­leg að nota þá muni sem hún á til. „Ég reyni að skipta hlut­unum mínum reglu­lega út fyrir aðra sem hafa hvílt í geymsl­unni, en ég vil ekki hafa of mikið uppi við í einu, einnig finnst mér skemmti­leg­ast að vera með hluti sem hafa til­finn­inga­legt gildi og minna mig á fjöl­skyld­una og góða vini.“

Við kveðjum Krist­jönu og hlý­legu íbúð­ina í Urriða­holt­inu að sinni og óskum henni góðs gengis í meist­ara­nám­inu í Barcelona.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður