„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mikið úrval heilsurúma við allra hæfi

Mikið úrval heilsurúma við allra hæfi

Það er afar ein­stak­lings­bundið hvernig rúm og dýnu ber að velja. Dýna þarf að henta lík­ams­bygg­ingu og að sjálf­sögðu smekk hvers og eins. Í Vogue fyrir heim­ilið er stefnan því að bjóða upp á úrval af bæði still­an­legum rúmum og mis­mun­andi dýnum.

Kolbrún Birna Hall­dórs­dóttir, rekstr­ar­stjóri Vogue fyrir heim­ilið. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

„Við bjóðum upp á allt frá ein­földum gorma­dýnum yfir í hágæða latex­dýnur, allt eftir því sem hentar best,“ segir Kolbrún Birna Hall­dórs­dóttir rekstr­ar­stjóri. „Enn­fremur bjóðum við fólki að fá aðstoð sjúkra­þjálf­ara við val á rúmi og dýnu svo fag­lega sé staðið að val­inu.“

Þjón­ust­una er hægt að fá á fimmtu­dögum milli kl. 16 og 18 og mælir Kolbrún Birna með að fólk hiki ekki við að nýta sér hana. „Hér hjá okkur færðu allt frá ein­földum still­an­legum rúmum yfir í mjög tækni­lega full­komin rúm. Þau fást inn­drag­an­leg, rúmið er á sleða sem heldur því eins nálægt veggnum í upp­réttri stöðu og hægt er, með sér­stökum mjó­baks­stuðn­ingi, nuddi, næt­ur­lýs­ingu, sér­stakri höf­uð­lyftu og „zero gravity“ svo eitt­hvað sé nefnt,“ segir hún. „Úrvalið er fjöl­breytt og auð­velt að missa yfir­sýn­ina. Þá er um að gera að fá alla þá aðstoð sem við höfum upp á að bjóða og leyfa sér­fræð­ing­unum okkar að leiða þig gegnum valið.“

Mynd/Hákon Davíð Björns­son

En af hverju still­an­leg rúm? Svarið er ein­falt: heils­unnar vegna. „Still­an­leg rúm geta aðstoðað fólk með bak­flæði við að ná bata og einnig fólk við að hrjóta síður,“ segir Kolbrún Birna. „Enn­fremur hjálpa þau þeim sem eiga við stoð­kerf­is­vanda­mál að stríða. Rúmin sem við seljum reisa þig enn­fremur mjög hátt sem gerir ein­stak­lega auð­velt að fara úr rúmunum, sér­stak­lega fyrir þá sem eiga erfitt með að hreyfa sig. Svo fylgja þessu líka þæg­indi fyrir þá sem lesa uppi í rúmi eða horfa á sjón­varp.“

Öll still­an­legu rúmin sem fást í Vogue fyrir heim­ilið eru frá banda­ríska fyr­ir­tæk­inu Ergomotion sem seld hafa verið á Íslandi til margra ára og hefur verið gerður mjög góður rómur að þeim. Þau eru ein­stak­lega sterk­byggð og áreið­an­leg.

Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Tíu ára ábyrgð er á mót­orum sem eru bæðir öfl­ugir en fyrst og fremst hljóð­látir. Á burð­ar­virki rúmanna er tutt­ugu ára ábyrgð, en það er gert úr tví­hertu sér­völdu stáli.

Öll tann­hjól, fóðr­ingar og fest­ingar eru úr næloni en það þýðir að ekk­ert þarf að smyrja og bjástra við að liðka þær. Rúmin eru því í raun við­halds­frí.

„Svefn á að vera áhyggju­laus og ánægju­legur,“  segir Kolbrún Birna að lokum. „Og við leggjum mikið upp úr því að þjón­usta okkar og vörur end­ur­spegli það.“

VOGUE FYRIR HEIMILIÐ

SÍÐUMÚLA 30

108 REYKJAVÍK

SÍMI: 553 3500

WWW.VOGUE.IS

VOGUE FYRIR HEIMILIÐ

HOFSBÓT 4

600 AKUREYRI

SÍMI: 462 3504

WWW.VOGUE.IS

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Kynning

Kynning

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum

Kynning

Brakandi ferskt grænmeti á matardiskinn sama dag og það er uppskorið

Kynning

Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Kynning

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

Kynning

Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum

Kynning

Meiri litagleði að færast í baðherbergistískuna