„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áhugavert á Netflix: Eru plöntur málið?

Und­an­farin ár hefur sú umræða auk­ist að við borðum í raun alltof mikið af kjöti og dýra­af­urðum í vest­rænu sam­fé­lagi. Á Netflix er að finna nokkrar heim­ild­ar­myndir og -þætti sem fjalla einmitt um þetta mál­efni.

Áhugavert á Netflix: Eru plöntur málið?

Í þeim eru vand­kvæði og gallar kjöt­neyslu skoð­aðir og ýmsum hug­myndum að lausnum er velt upp. Mismikið er um öfgar en allir virð­ast vera sam­mála um það að aukin neysla á plöntum sé svarið.

Frumefnin fjögur

Fræði­mað­ur­inn Michael Pollan hefur skrifað ófáar bækur um mat og mat­ar­gerð. Þættina Cooked gerði hann í sam­starfi við Netflix og byggj­ast þeir á sam­nefndri bók hans. Mat­ar­gerð er skoðuð með frum­efnin fjögur, eld, vatn, loft og jörð, til hlið­sjónar. Stiklað er á stóru í sögu mat­ar­gerðar og mat­ar­menn­ingar og skoðað er hvaða þýð­ingu hún hefur í sam­fé­lögum heims.

Michael kynnir sér hvernig ýmsar fæðu­teg­undir eru búnar til, brauð, ostur og fleira, og hvernig frum­efnin koma þar við sögu. Þessar fæðu­teg­undir eiga það sam­eig­in­legt að við í vest­rænu sam­fé­lagi erum orðin alltof vön að kaupa þær bara úti í búð, þessu vill hann breyta.

Í heim­ild­ar­mynd­inni Food Choices skoðar Michal Siewierski áhrif fæðu, ekki bara á heilsu okkar heldur einnig heilsu jarð­ar­innar og heilsu líf­ver­anna sem við deilum henni með … Myndin veltir upp nýjum og áhuga­verðum pæl­ingum og mun án efa breyta því hvernig við horfum á mat­inn á disk­inum.

Öfgar eða sannleikur?

What the Health er heim­ild­ar­mynd úr smiðju Kips Andersen og Keegans Kuhn sem gerðu Cowspiracy: The Susta­ina­bility Secret. Í stiklum er What the Health lýst sem mynd­inni sem heilsu­tengdar stofn­anir vilja ekki að við sjáum. Hún skoðar heilsu­vanda­mál tengd kjöt- og mjólkur­iðn­aði, lyfja­iðn­aði og ýmsum hags­muna­að­ilum auk þess sem hún afhjúpar sam­ráð þess­ara aðila og banda­rísku rík­is­stjórn­ar­innar. Myndin hefur hlotið tölu­verða gagn­rýni fyrir öfgar og ofstæki en í henni er þó að finna nokkur sann­leiks­korn.

Mikilvægt að velja vel

Í heim­ild­ar­mynd­inni Food Choices skoðar Michal Siewierski áhrif fæðu, ekki bara á heilsu okkar heldur einnig heilsu jarð­ar­innar og heilsu líf­ver­anna sem við deilum henni með. Hann reynir að afsanna, eða hnekkja, lang­lífar rang­hug­myndir um mat og matar­æði og því til stuðn­ings ræðir hann við fjölda virtra sér­fræð­inga, þar á meðal lækna, stjórn­mála­menn, líf­fræð­inga, nær­ing­ar­fræð­inga og fleiri.

Myndin veltir upp nýjum og áhuga­verðum pæl­ingum og mun án efa breyta því hvernig við horfum á mat­inn á disk­inum.

Snúið við blaðinu

Í Forks over Knives er heilsu­vandi Banda­ríkja­manna skoð­aður ofan í kjöl­inn. Tveir af hverjum þremur eru í yfir­þyngd og lífs­stíls­sjúk­dómar á borð við syk­ur­sýki II, hjarta- og æða­sjúk­dóma og fleiri aukast stöðugt.

Teymið sem stendur á bak við mynd­ina heldur því fram að hægt sé að snúa þess­ari þróun við með því að hætta ein­fald­lega að borða kjöt og dýra­af­urðir, sér­stak­lega unna kjöt­vöru.

Tveir fræði­menn, Dr. T. Colin Campbell og Dr. Caldwell Essel­styn, segja frá rann­sóknum sínum og athug­unum en þeir hafa í marga ára­tugi haft áhyggjur af kjöt­neyslu sam­landa sinna.

Í mynd­inni eru einnig tekin við­töl við fólk sem hefur reynt þessa aðferð og snúið við blað­inu þegar kemur að matar­æði og bætt heilsu sína.

Orðin sjö

Heim­ild­ar­myndin In Defense of Food var upp­runa­lega gerð fyrir PBS-sjón­varps­stöð­ina í Banda­ríkj­unum en þar er að finna heil­mikið af heim­ildar- og frétta­skýr­ing­ar­þáttum auk ann­ars efnis sem varðar almenn­ing. Hér er Michael Pollan aftur á ferð­inni og í þetta sinn reynir hann að svara spurn­ing­unni sem hann fær hvað oft­ast í starfi sínu: Hvað á ég að borða til þess að halda heils­unni góðri? Hann skoðar þróun vest­ræns matar­æðis og hvernig það hefur haft í för með sér ýmsa lífs­stílstengda sjúk­dóma. Í mynd­inni kemur Michael meðal ann­ars með töfra­orðin sjö sem eru í raun svarið við spurn­ing­unni stóru: Eat food, not too much, mostly plants, eða: Borðaðu mat, ekki of mikið, mest plöntur.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir

Aðalmynd / Pexels.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

afþreying

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“
Innlent

Alþjóð­legur afþrey­ing­ar­staður opnar í Kringl­unni: „Þetta verður háþró­að­asti pílu­staður lands­ins“

Stjörnu­torg Kringl­unnar fær loks nýtt hlut­verk í sumar en þá mun þar opna alþjóð­leg veit­inga- og afþrey­inga­keðja. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að Alþjóð­lega veit­inga­staða- og afþrey­inga­keðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnu­torgs Kringl­unnar frá og með sum­ar­byrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið lands­mönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúf­fengra veit­inga,...
„Hver nennir að horfa á hamingjusamt fólk heilan vetur“
Fólk

„Hver nennir að horfa á ham­ingju­samt fólk heilan vetur“

Sænska stjarnan Jos­ephine Bornebusch er sann­kallað hæfi­leika­búnt en hún skrifar hand­ritið, leik­stýrir og leikur í gam­andramanu Älskar mig, eða Elskaðu mig og sýndir eru á streym­isveit­unni Viaplay. Þar leikur hún m.a. á móti hinum sænsk-íslenska Sverri Guðn­a­syni. Jos­ephine er í einka­við­tali við Vikuna. Hún er brosmild og glettin þar sem hún segir frá sjálfri sér. „Ég hef alltaf verið skrif­andi....
Hannaði nýtt spil í sjálfskipaðri sóttkví
Innlentafþreying

Hannaði nýtt spil í sjálf­skip­aðri sótt­kví

Lista­mað­ur­inn Hug­leikur Dagsson sat ekki auðum höndum þegar hann var í sjálf­skip­aðir sótt­kví í mái því hann bjó til nýtt spil sem hann lýsir sem „sára­ein­földu sam­stæðu­spili“ og „algerum heila­brjót“. Spilið heitir Ríða­DrepaKúra. „Ríða­DrepaKúra eða FuckCuddleKill er spil sem ég bjó til þegar ég var í sjálf­skip­aðri sótt­kví í Svarf­að­ar­dalnum síð­ast­lið­inn maí. Þetta er í raun­inni sára­ein­falt sam­stæðu­spil en sam­tímis...
Kvikmyndahátíð á Akranesi – frítt á flesta viðburði
Innlent

Kvik­mynda­há­tíð á Akranesi – frítt á flesta við­burði

Heim­ilda­mynda­há­tíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, mið­viku­dag­inn 15. júlí, og stendur fram á sunnu­dag. Fjöl­breytt úrval mynda og við­burða verða í boði. Yfir 20 heim­ilda­myndir af öllu tagi verða sýndar á heim­ilda­mynda­há­tíð­inni Icelandic Documentary Film Festival sem hefst á Akranesi í kvöld. Mynd­irnar, sem eru hvaðanæfa að úr heim­inum og fjöl­breyttar eftir því, eru alveg frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu