„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“

Stjörnu­torg Kringl­unnar fær loks nýtt hlut­verk í sumar en þá mun þar opna alþjóð­leg veit­inga- og afþrey­inga­keðja.

Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að Alþjóð­lega veit­inga­staða- og afþrey­inga­keðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnu­torgs Kringl­unnar frá og með sum­ar­byrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið lands­mönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúf­fengra veit­inga, ásamt því að skemmta sér í hátækni pílu, keppa á þar til gerðum shuffle­borðum, nú og eða tekið lagið í tveimur af karaoche her­bergjum stað­ar­ins – þar sem hljóm­gæðin verða ekk­ert minna en mögnuð, eins og það er orðað í frétta­til­kynn­ing­unni.

Mikael Harð­ar­son

Samkvæmt til­kynn­ing­unni verður mikið lagt upp úr því að gera upp­lifun gesta sem jákvæð­asta og að engu verði til sparað þegar kemur að útliti og þæg­ingum, tækni, mat og drykk. Haft er eftir Mikaeli Harð­ar­syni, fram­kvæmd­ar­stjóra og einum af eig­endum Oche Reykja­vík, að hann sé spenntur fyrir því að sjá verken­fið loks verða að veru­leika:

„Við vinnum nú hörðum höndum að und­ir­bún­ingi opn­unar. Fram­kvæmdir ganga vel en það er í mörg horn að líta og til þess að setja hluti í sam­hengi þá verða yfir 100 mynda­vélar inni á staðnum til þess að festa á filmu og skilja betur hvert verið er að kasta píl­unum og eins til að fylgj­ast með því sem er að ger­ast á shuffle­borð­unum. Þetta verður háþró­að­asti pílu­staður lands­ins og ýmsar nýj­ungar í boði sem við höfum ekki séð hér á landi áður“.

Á staðnum verða 15 pílu­básar, eitt VIP her­bergi, fimm shuffle­borð, tvö kara­ókí her­bergi og sæti fyrir 230 til 300 gesti í mat og drykk. Segir Guðjón Auð­uns­son, for­stjóri Reita, mikla eft­ir­vænt­ingu ríkja innan félags­ins og Kringl­unnar fyrir því að fá Oche í húsið.

„Opnun stað­ar­ins er stórt og mik­il­vægt skref í gagn­gerri end­ur­nýjun á 3. hæð versl­un­ar­mið­stöðv­ar­innar og við fögnum því að taka þátt í verk­efn­inu og hlökkum til sam­starfs­ins við öfl­uga rekstr­ar­að­ila Oche Reykja­vík. Að okkar mati færir stað­ur­inn þjón­ustu- og skemmtifram­boð Kringl­unnar á áður óþekktan og spenn­andi stað og það er að sjálf­sögðu ekk­ert annað en jákvætt“. Þetta segir Guðjón Auð­uns­son aðspurður um vænt­an­legu við­bót­ina í Kringl­unni.

Einn af eig­endum stað­ar­ins, Ágúst Reyn­is­son, þróar mat­seð­il­inn á Oche en hann er þekktur í veit­inga­brans­anum og lands­mönnum kunnur sem einn af eig­endum veit­inga­stað­anna Fisk­mark­að­ar­ins og Grill­mark­að­ar­ins. Verður rík áhersla lögð á rétti sem hægt er að deila en meðal ann­ars verður boðið upp á tapas rétti og pít­sur. Auk þeim Ágústi og Mikael eru aðrir eig­endur stað­ar­ins þeir Davíð Lúther Sig­urð­ar­son og Kristján Svein­laugs­son.

Oche í Kringl­unni er tíundi Oche stað­ur­inn sem opnar á heims­vísu að því er kemur fram í frétta­til­kynn­ing­unni og eru staðir keðj­unnar til að mynda í Ástralíu, Dubai, Bret­landi, Svíþjóð og Noregi. Troy Warfield, for­stjóri The Social Gaming Group, félags­ins sem á einka­leyfið fyrir Oche vöru­merk­inu, er að vonum glaður með áformin, segir í til­kynn­ing­unni.

„Það er okkur ánægju­efni að koma inn á íslenskan markað og ég á ekki von á öðru en að Oche eigi eftir að gleðja Íslend­inga og þá gesti sem landið sækja. Það verður spenn­andi að sjá stað­inn rísa í Kringl­unni enda stað­setn­ingin frá­bær og öll plön íslensku sam­starfs­að­il­anna um útlit og starf­sem­ina einnig. Við bjóðum íslensku sér­leyf­is­haf­ana vel­komna í alþjóð­lega Oche teymið og alla hjá Oche Reykja­vík, Reitum og Kringl­unni einnig.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

afþreying

„Hver nennir að horfa á hamingjusamt fólk heilan vetur“
Fólk

„Hver nennir að horfa á ham­ingju­samt fólk heilan vetur“

Sænska stjarnan Jos­ephine Bornebusch er sann­kallað hæfi­leika­búnt en hún skrifar hand­ritið, leik­stýrir og leikur í gam­andramanu Älskar mig, eða Elskaðu mig og sýndir eru á streym­isveit­unni Viaplay. Þar leikur hún m.a. á móti hinum sænsk-íslenska Sverri Guðn­a­syni. Jos­ephine er í einka­við­tali við Vikuna. Hún er brosmild og glettin þar sem hún segir frá sjálfri sér. „Ég hef alltaf verið skrif­andi....
Hannaði nýtt spil í sjálfskipaðri sóttkví
Innlentafþreying

Hannaði nýtt spil í sjálf­skip­aðri sótt­kví

Lista­mað­ur­inn Hug­leikur Dagsson sat ekki auðum höndum þegar hann var í sjálf­skip­aðir sótt­kví í mái því hann bjó til nýtt spil sem hann lýsir sem „sára­ein­földu sam­stæðu­spili“ og „algerum heila­brjót“. Spilið heitir Ríða­DrepaKúra. „Ríða­DrepaKúra eða FuckCuddleKill er spil sem ég bjó til þegar ég var í sjálf­skip­aðri sótt­kví í Svarf­að­ar­dalnum síð­ast­lið­inn maí. Þetta er í raun­inni sára­ein­falt sam­stæðu­spil en sam­tímis...
Kvikmyndahátíð á Akranesi – frítt á flesta viðburði
Innlent

Kvik­mynda­há­tíð á Akranesi – frítt á flesta við­burði

Heim­ilda­mynda­há­tíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, mið­viku­dag­inn 15. júlí, og stendur fram á sunnu­dag. Fjöl­breytt úrval mynda og við­burða verða í boði. Yfir 20 heim­ilda­myndir af öllu tagi verða sýndar á heim­ilda­mynda­há­tíð­inni Icelandic Documentary Film Festival sem hefst á Akranesi í kvöld. Mynd­irnar, sem eru hvaðanæfa að úr heim­inum og fjöl­breyttar eftir því, eru alveg frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins