„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nokkrar góðar í bústaðinn

Hér eru nokkrar bækur sem eru til­valin lesn­ing í bústaðnum í sumar

Nokkrar góðar í bústaðinn

Stórskemmtileg og fróðleg

Mat­reiðslu­bók Downton Abbey eða Downtown Abbey cookbook inni­heldur yfir 100 upp­skriftir frá Crawly-eld­hús­inu. Margar upp­skrift­anna eru gamlar og frá tím­anum sem þætt­irnir ger­ast á í kringum 1912 til 1926. Það er mat­ar­sagn­fræð­ing­ur­inn Annie Gray sem hefur tekið bók­ina saman en við margar upp­skrift­irnar má finna skemmti­legan fróð­leik um rétt­ina sem gera bók­ina sér­lega áhuga­verða.

Downtown Abbey cookbook

Falleg saga

Agathe eftir Anne Cathrine Bomann er hljóð­lát, ein­föld og hvers­dags­leg saga. Það ger­ist ekk­ert sér­stak­lega margt en samt svo mikið. Einmana geð­læknir telur niður dag­ana fram að starfs­lokum sínum. Hann er löngu leiður á sjúk­lingum sínum og vanda­málum þeirra og einka­líf hans sjálfs er inn­an­tómt. Ritari hans skráir hjá honum nýjan sjúk­ling, alger­lega í óþökk hans, en þessi unga óham­ingju­sama kona, Agathe, nær að opna huga þessa vana­fasta manns og breyta lífi hans. Þetta er fal­leg bók, full af mann­legri hlýju og næmni og skilur mann eftir hugs­andi en glaðan. Halla Kjart­ans­dóttir á hrós skilið fyrir þýð­ing­una.

Agathe

Hlýleiki og kyrrð

Það hlýtur að telj­ast til tíð­inda að komin er ný ljóða­bók frá Einari Má Guð­munds­syni. Það eru orðin fjórtán ár síðan hann sendi frá sér ljóð síð­ast. Til þeirra sem málið varðar er fal­leg og kyrr­lát bók. Það er yfir henni ein­hver dásam­legur hlý­leiki og boð­skapur um að taka líf­inu tveimur höndum. Lifa hvern dag til fulls. Það er gott að láta svona bækur liggja á nátt­borð­inu og grípa þær reglu­lega til að stilla and­ar­drátt­inn og búa sig undir næsta dag.

Til þeirra sem málið varðar

Listilega vel skrifuð

Hvítt haf eftir Roy Jacobsen er fram­hald bók­ar­innar Hin ósýni­legu. Þetta eru listi­lega vel skrif­aðar bækur og þýð­and­inn, Jón St. Krist­jáns­son, kemur frá­bær­lega til skila ljóð­rænum og dásam­lega fal­legum lýs­ingum á nátt­úr­unni og hversu sterk ítök hún getur átt í mann­inum. Nú er svo komið að Þjóð­verjar hafa her­tekið Noreg og Ingrid vinnur við síld­ar­söltun og salt­fisk­verkun í bænum. En Barrey togar hana til sín og þangað fer hún ein en þá tekur að skola á land líkum. Einn skip­brots­manna reyn­ist lif­andi og með þeim takast ástir. Ingrid þarf að borga dýru verði þessar fáu sælu­stundir en þrátt fyrir harða lífs­bar­áttu og harð­neskju sam­fé­lags­ins á Ingrid óbug­andi lífs­vilja og sam­líðan með sam­borg­urum sínum sem skilar henni ákveð­inni lífs­sátt.

Hvítt haf
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

afþreying

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“
Innlent

Alþjóð­legur afþrey­ing­ar­staður opnar í Kringl­unni: „Þetta verður háþró­að­asti pílu­staður lands­ins“

Stjörnu­torg Kringl­unnar fær loks nýtt hlut­verk í sumar en þá mun þar opna alþjóð­leg veit­inga- og afþrey­inga­keðja. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að Alþjóð­lega veit­inga­staða- og afþrey­inga­keðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnu­torgs Kringl­unnar frá og með sum­ar­byrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið lands­mönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúf­fengra veit­inga,...
„Hver nennir að horfa á hamingjusamt fólk heilan vetur“
Fólk

„Hver nennir að horfa á ham­ingju­samt fólk heilan vetur“

Sænska stjarnan Jos­ephine Bornebusch er sann­kallað hæfi­leika­búnt en hún skrifar hand­ritið, leik­stýrir og leikur í gam­andramanu Älskar mig, eða Elskaðu mig og sýndir eru á streym­isveit­unni Viaplay. Þar leikur hún m.a. á móti hinum sænsk-íslenska Sverri Guðn­a­syni. Jos­ephine er í einka­við­tali við Vikuna. Hún er brosmild og glettin þar sem hún segir frá sjálfri sér. „Ég hef alltaf verið skrif­andi....
Hannaði nýtt spil í sjálfskipaðri sóttkví
Innlentafþreying

Hannaði nýtt spil í sjálf­skip­aðri sótt­kví

Lista­mað­ur­inn Hug­leikur Dagsson sat ekki auðum höndum þegar hann var í sjálf­skip­aðir sótt­kví í mái því hann bjó til nýtt spil sem hann lýsir sem „sára­ein­földu sam­stæðu­spili“ og „algerum heila­brjót“. Spilið heitir Ríða­DrepaKúra. „Ríða­DrepaKúra eða FuckCuddleKill er spil sem ég bjó til þegar ég var í sjálf­skip­aðri sótt­kví í Svarf­að­ar­dalnum síð­ast­lið­inn maí. Þetta er í raun­inni sára­ein­falt sam­stæðu­spil en sam­tímis...
Kvikmyndahátíð á Akranesi – frítt á flesta viðburði
Innlent

Kvik­mynda­há­tíð á Akranesi – frítt á flesta við­burði

Heim­ilda­mynda­há­tíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, mið­viku­dag­inn 15. júlí, og stendur fram á sunnu­dag. Fjöl­breytt úrval mynda og við­burða verða í boði. Yfir 20 heim­ilda­myndir af öllu tagi verða sýndar á heim­ilda­mynda­há­tíð­inni Icelandic Documentary Film Festival sem hefst á Akranesi í kvöld. Mynd­irnar, sem eru hvaðanæfa að úr heim­inum og fjöl­breyttar eftir því, eru alveg frá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu