„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ef maður tengir við RIE tengir maður svo sterkt

Kristín Maríella Frið­jóns­dóttir segir að þörfin fyrir nýjar upp­eld­is­að­ferðir sé mikil hér á landi.

Ef maður tengir við RIE tengir maður svo sterkt

Kristín Maríella Frið­jóns­dóttir kynnt­ist RIE eða Respectful Parent­ing-upp­eld­is­að­ferð­inni fyrir tæpum þremur árum og hefur síðan þá haldið fjöl­mörg nám­skeið sem notið hafa mik­illa vin­sælda. Kristín sem er búsett í Singapúr segir greini­legt að þörfin fyrir nýjar upp­eld­is­að­ferðir sé mikil hér á landi.

Kristín Maríella Frið­jóns­dóttir kynnt­ist RIE eða Respectful Parent­ing-upp­eld­is­að­ferð­inni fyrir tæpum þremur árum og hefur síðan þá haldið fjöl­mörg nám­skeið sem notið hafa mik­illa vin­sælda.

„Við fluttum hingað fyrir þremur árum þegar mað­ur­inn minn stund­aði masters-nám hér. Eftir útskrift fékk hann atvinnu­til­boð og því ílengd­umst við. Okkur líður mjög vel í Singapúr og höfum komið okkur vel fyrir hérna hinum megin á hnett­inum.“

Kristín er mennt­aður fiðlu­leik­ari og lærði einnig á víólu í Banda­ríkj­unum. Eftir það nám tóku við fjöl­breytt störf tengd tón­list­inni en á sama tíma stofn­aði hún skart­gripa­merkið Twin Within ásamt systur sinni, Áslaugu Írisi. Fljót­lega tók hönn­unin yfir en eftir að fjöl­skyldan flutti til Singapúr hefur Kristín haldið rekstr­inum áfram auk þess að kenna ungum börnum á fiðlu og miðla fræðslu­tengdu efni um upp­eld­is­að­ferð­ina RIE eða Respectful Parent­ing. „Ég kýs að kalla þessa upp­eld­is­stefnu Virð­ing­ar­ríkt tengs­la­upp­eldi en ég kynnt­ist RIE fyrir þremur árum. Þá var Ylfa, eldri dóttir mín, um 6 mán­aða. Ég hef alltaf verið mjög áhuga­söm um allt sem við­kemur upp­eldi, með­göngu, fæð­ingu, þroska barna og sam­skiptum. Stuttu eftir að við fluttum til Singapúr fékk ég rétt­indi í fæð­ing­ar­hjálp (e. doula) og óhætt að segja ég eyði öllum frí­tíma mínum í að lesa um allt sem við­kemur börnum. Í ein­hverjum rann­sókn­ar­ham á Inter­net­inu rambaði ég inn á blogg­síðu Janet Lansbury, sem er helsta tals­kona RIE í heim­inum, og þá var ekki aftur snúið. Ég tengdi strax mjög sterkt við það sem ég las frá henni og fékk bara ekki nóg. Það er nefni­lega þannig með RIE, ef maður tengir, þá tengir maður svo sterkt.“

Virðingin, traustið og tengingin

Kristín segir erfitt að útskýra stefn­una í stuttu máli því hún sé í raun heill heimur af fróð­leik. „Að mínu mati er RIE byggt upp á þremur grunn­hug­tökum en þau eru virð­ing, traust og teng­ing. Mér finnst það vera eins konar kjarni RIE sem stefnan gengur alltaf út frá. Við komum fram við börn af virð­ingu frá fæð­ingu. Við lítum á þau sem heila ein­stak­linga sem eiga rétt á því að komið sé fram við þau eins og við viljum að komið sé fram við okkur. Við reynum eftir fremsta megni að sjá hlut­ina frá þeirra sjón­ar­horni og bjóðum þeim að taka þátt í líf­inu strax frá fyrsta degi. Við tölum eðli­lega við börnin okkar, sleppum öllu leik­ritum, erum hreink­ilin, örugg og róleg. Eins er mikil virð­ing borin fyrir mik­il­vægi leiks og við reynum að trufla ekki barn sem er nið­ur­sokkið í leik. Börn eru studd til að leika sér sjálf­stætt og á sínum for­sendum frá upp­hafi. Við treystum líka barni til þess að þroska hreyfi­getu sína á sínum hraða með sínum leiðum og hjálpum eða kennum þeim til dæmis ekki að snúa sér, setj­ast eða ganga.

„Við leyfum barni að tjá allar til­finn­ingar sínar og styðjum börnin í gegnum grát­köst með því að við­ur­kenna til­finn­ingar þeirra og sýna þeim þol­in­mæði.“

Við trúum því að börn séu alltaf góð og vitum að þegar þau sýna óæski­lega hegðun sé það vegna þess að þau eigi erfitt og vanti aðstoð frá okkur. Við leyfum börnum að tjá allar til­finn­ingar þeirra og styðjum þau í gegnum grát­köst með því að við­ur­kenna til­finn­ingar þeirra og sýna þeim þol­in­mæði. Þannig myndum við sterk tengsl við barnið og það byrjar að taka mörk­unum sem við setjum betur.  Við setjum til­finn­ingum ekki mörk en við setjum hins vegar hegðun mörk. Við trúum á mik­il­vægi þess að setja skýr mörk en við setjum þau samt alltaf á rólegan hátt. Það má segja að helsta marki­mið RIE sé að byggja upp heil­brigt sam­band á milli for­eldris og barns, sam­band sem báðir aðilar geta notið sín í og þar sem þörfum beggja er mætt af sam­kennd og virð­ingu.“

Námskeiðin seldust upp á örfáum klukkustundum

Kristín hafði skrifað um RIE inn á sam­fé­lags­miðlum í rúmt ár þegar hún fór fyrst að fá fyr­ir­spurnir um að halda nám­skeið á Íslandi. „Nánast allt efni sem til er um Respectful Parent­ing er á ensku og ég fann fyrir mik­illi vöntun á íslensku efni. Þegar ég var síðan á leið­inni heim til Íslands um síð­ustu jól ákvað ég að mæta eft­ir­spurn­inni og halda nokkur nám­skeið. Það gekk rosa­lega vel og ég fann strax að þetta átti vel við mig, mér leið vel upp á „sviði“ og fæ mikið út úr því að miðla á þennan hátt.“ Eftir nám­skeiðin var enn mikil eft­ir­spurn og því ákvað Kristín að koma heim nú í sumar og halda fleiri. Við­tök­urnar voru gríð­ar­legar og undir lokin seld­ust síð­ustu auka­nám­skeiðin upp á örfáum klukku­tímum. „Það var eins og fólk hefði verið að bíða eftir ein­hverju svona. Ég hélt fjórtán nám­skeið í heild­ina og það var greini­legt að fólk er mjög áhuga­samt og þráir að kom­ast á betri stað í sam­skiptum við börnin sín. Það finnst mér frá­bær þróun enda hlýtur for­eldra­hlut­verkið að vera mik­il­væg­asta hlut­verk okkar allra sem eigum börn.“

Aðspurt hvort hún veiti for­eldrum ráð óum­beðið seg­ist Kristín hafa það fyrir reglu að koma ekki með athuga­semdir við upp­eld­is­að­ferðir ann­arra.

Kristín segir fyr­ir­spurn­irnar sem henni ber­ist ótelj­andi og vanda­málin fjöl­breytt. Hún hafi þó aldrei rek­ist á vegg heldur komi svörin oft­ast fyr­ir­hafn­ar­laust til sín. „Þegar maður gefur ráð er mik­il­væg­ast að setja sig almenni­lega í aðstæð­urnar. Þá bið ég iðu­lega um meiri upp­lýs­ingar og nánar lýs­ingar á vanda­mál­inu. Hvenær kemur hegð­unin upp? Hvernig hefur for­eldrið brugð­ist við hingað til? Hvernig bregst barnið við? Hvað annað er að ger­ast í lífi barns­ins? Eftir að hafa fengið þessar upp­lýs­ingar koma svörin til mín. Ég myndi segja að óör­yggi for­eldra þegar kemur að því að setja mörk sé eitt algeng­asta vanda­málið. Hvaða mörk má setja og hvernig. Hræðsla við grátur og við­brögð barn­anna sinna og síðan óraun­hæfar vænt­ingar í sam­bandi við það hvers er hægt að ætl­ast til af börn­unum sínum og hvenær.“

Þegar talið berst að hennar eigin upp­eldi segir Kristín stærstu áskor­un­ina liggja í að veita hvoru barni fyrir sig fulla athygli í kringum umönn­un­ar­verk­efni en það er stór partur af RIE. „Það er hugsað þannig að í öllum hvers­dags­legum ummönn­un­ar­verk­efnum eins og t.d. að skipta á bleiu, klæða í föt, baða eða gefa að borða reynum við að vera með fulla athygli á barn­inu. Það er erfitt þegar þú ert komin með tvö eða fleiri börn því að oftar en ekki vill hitt barnið líka fá athygli á sama tíma. Í RIE tölum við um að hefð­bundin sann­girni (þar sem allt er 100% jafnt) er í raun ekki sann­girni heldur líður báðum börnum eins og þau fái ekki nóg.

Við reynum ekki að kepp­ast við að gefa allt jafnt heldur gefum við eftir þörfum og það sama gildir um tím­ann okkar eða athygl­ina. Þá skiptir máli að vera skýr í sam­bandi við það hvar athyglin okkar er og oft setjum við mörk í kringum það. Við segjum eitt­hvað eins og „Ég heyri í þér, Ylfa, þú vilt að ég komi og sjái mynd­ina sem þú varst að teikna, þú vilt að ég komi núna strax, ég skil, en ég get ekki komið strax, nú er ég að skipta á bleiunni hanns Breka og ætla að ein­beita mér að því. Þegar ég er búin, þá ætla ég að koma til þín og vera bara með þér.“
Það sem ger­ist er að bæði börnin slaka meira á því þau vita að hvort um sig fá þau 100% athygli þegar „þeirra tími“ kemur. Svo virkar það líka þannig að þegar við hægjum á og gefum fulla athygli í gegnum ummönn­un­ar­verk­efni, þó að það sé ekki nema í nokkrar mín­útur í senn, þá er barnið líka miklu lík­legra til að geta sleppt okkur þess á milli og fer frekar að leika sér sjálft því það er sátt eftir tím­ann sem við áttum saman.“

Að hjálpin komi frá hjartanu

RIE-fræðsla byggj­ast mikið á lang­tíma­mark­miðum en þátt­taka barna í heim­il­is­störfum gegnir veiga­miklu hlut­verki innan stefn­unnar. Kristín segir mark­miðið vera að barnið sjái mik­il­vægi þess að hjálpa til inni á heim­il­inu en sömu­leiðis finni hjá sér þörf­ina að hafa hreint í kringum sig. „Þetta snýst auð­vitað um að líða vel í umhverfi sínu. Ég vil að barnið mitt hjálpi til því það vilji vera partur af heild­inni, en að hjálpin komi frá hjart­anu, ekki út frá hræðslu eða skyldu. Það er ekki hægt að pína barn í að vera hjálp­legt. Heim­il­is­verk fellur undir það sem við köllum „mod­el­ing“ í RIE. Þá skyldum við ekki barn til þess að hjálpa til á neinn hátt en bjóðum því þátt­töku. Við pössum að vera góðar fyr­ir­myndir og treystum því að þegar barn er til­búið þá mun það vilja hjálpa til því að börn vilja í grunn­inn öll standa sig vel, vera partur af heild­inni og líkj­ast for­eldr­unum.“

Þegar kemur að ósam­komu­lagi barna styðst Kristín mikið við að lýsa aðstæðum. „Ég geri alltaf það sama þegar barn grætur eða er ósátt. Ég hægi á og segi eitt­hvað eins og „hmm … ég heyri grátur, það eru allir að gráta, allir eru ósáttir“ og síðan myndi ég skoða hvað væri í gangi og gefa hverju barni rödd fyrir sig með því að segja upp­hátt það sem ég sæi, án þess að dæma. Dvel jafn­vel í ósætt­inu og bæti svo við, „hvað getum við gert?“ Síðan bíð ég með opinn arm­inn því það mega allir alltaf fá knús sem vilja og það mega allir gráta sem vilja en við reynum að styðja börn í að finna sjálf lausnir á vanda­mál­unum. Þannig er best stutt við þroska og getu í sam­skiptum.“

„Þetta snýst auð­vitað um að líða vel í umhverfi sínu. Ég vil að barnið mitt hjálpi til því það vilji vera partur af heild­inni, en að hjálpin komi frá hjart­anu, ekki út frá hræðslu eða skyldu. Það er ekki hægt að pína barn í að vera hjálp­legt.“

Aðspurt hvort hún veiti for­eldrum ráð óum­beðið seg­ist Kristín hafa það fyrir reglu að koma ekki með athuga­semdir við upp­eld­is­að­ferðir ann­arra. „Ég ráð­legg fólki ein­dregið að skipta sér ekki af upp­eldi ann­arra nema um eitt­hvað alvar­legt sé að ræða. Það hefur mjög lítið upp á sig að skipta sér af öðrum. Sann­leik­ur­inn er sá að flestir eru að reyna sitt besta. Það eru allir á sinni ein­stöku veg­ferð í for­eldra­hlut­verk­inu og það besta sem maður getur gert er að vera góð fyr­ir­mynd sjálfur. Það er nefni­lega þá sem maður fær spurn­ingar frá áhuga­sömum og fólkið í kringum mann vill fá að vita meira um hvað maður er að gera. Það sér að eitt­hvað er að virka vel og verður for­vitið. For­eldra­hlut­verkið og allt í sam­bandi við börnin okkar er eitt­hvað sem er mjög nálægt okkur, mjög per­sónu­legt og fólk tekur því per­sónu­lega ef það upp­lifir að verið sé að dæma það. Þá fer fólk frekar í vörn. Fólk þarf að vera til­búið að fara í gegnum ákveðna sjálf­skoðun ef það ætlar að til­einka sér upp­eld­is­að­ferð eins og RIE og það eru ein­fald­lega ekki allir til­búnir í það.“

Kristín segir fyr­ir­spurn­irnar sem henni ber­ist ótelj­andi og vanda­málin fjöl­breytt. Hún hafi þó aldrei rek­ist á vegg heldur komi svörin oft­ast fyr­ir­hafn­ar­laust til sín.

Ofbeldi gegn börnum óhugnalega algengt

Kristín segir það áhuga­verða upp­lifun að ala upp börn hinum megin á hnett­inum þar sem margir menn­ing­ar­heimar koma saman en Singapúr er ein­stak­lega fjöl­breytt sam­fé­lag. „Þetta hefur verið mjög þrosk­andi ferli og áhuga­vert. En þó að Singapúr sé í Asíu er hér að finna mjög sterk vest­ræn áhrif. Mikið er lagt upp úr því að bjóða fjöl­skyldum upp á ríka barna­menn­ingu og það er alltaf nóg af mjög metn­að­ar­fullu starfi í boði fyrir börn og fjöl­skyldur, alls­konar sýn­ingar á lista­söfnum, við­burðir í görð­unum og mikið lagt upp úr vönd­uðum leik­völlum og svæðum fyrir börn. Singapúr er mjög örugg borg, næstum því örugg­ari en Reykja­vík og alveg frá­bært að vera hérna með börn, borgin er þekkt fyrir það. Að því sögðu er hér að finna sterk áhrif frá Asíu, Malasíu og Kína og upp­eld­is­lega má segja menn­ingin­una skipt­ist svo­lítið í tvennt. Hér er að finna stórt sam­fé­lag fólks frá Vest­ur­löndum, Evrópu og Banda­ríkj­unum, upp­eldi sem rímar við það sem við þekkjum frá Íslandi. For­eldrar sem leita frekar að frjáls­ari aðferðum í skóla­kerf­inu svipað og stefn­urnar í leik- og grunn­skólum standa fyrir heima, þetta „play-based“ módel sem er auð­velt að finna í flestum leik­skólum lands­ins. Skóla­kerfið hér skipt­ist því í tvennt, ann­ars vegar hverf­is­skóla og svo alþjóð­lega skóla, þarna er mik­ill áherslu­munur. Í hverf­is­leik­skólum eru börnin frá 7 á morgn­anna til 19 á kvöldin, fólk vinnur svo langa vinnu­daga. Mikið er lagt upp úr aga og þurfa leik­skóla­börn að sitja kyrr við borð og læra, hlusta á kennar­ann og gera svo heima­vinnu fyrir næsta leik­skóla­dag. Ég er auð­vitað svaka­lega mikið á móti þessu því þetta stríðir gegn því sem er eðl­is­lægt fyrir börn á þessum aldri. Það er marg­sannað að börn læri best í gegnum leik og helst frjálsan leik sem þau fá að stjórna sjálf.

Alþjóð­legu skól­arnir eru skárri en þeir eru mjög dýrir. Ég var svo heppin að finna lít­inn leik­skóla sem er virki­lega „play-based“ og skóla­stýran les bloggið hennar Janet Lansbury og er mjög vel að sér. Hér í Singapúr er líka óhugna­lega algengt að for­eldrar leggi hendur á börnin sín í refs­ing­ar­skyni, það er meira að segja ákveð­inn stafur sem ein­ungis er not­aður í hýð­ing­ar­skyni og þá er talað um „caning“. Þetta á að aga börnin og láta þau hlýða. Mér fall­ast oft hendur yfir þessu og finnst svo langt í land en þetta er samt smátt og smátt eitt­hvað að breyt­ast, maður getur ekki breytt heim­inum einn en maður breytir samt sem áður heim­inum á sinn hátt þegar maður vandar sig vel í upp­eld­inu, börnin okkar eru auð­vitað fram­tíðin og því hvergi betri staður til að hafa mikil og góð áhrif.“

Texti / Íris Hauks­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áhugavert

Lónsöræfi innblástur nýrrar tískulínu
Innlent

Lónsör­æfi inn­blástur nýrrar tísku­línu

„Ég reyni að hafa kven­leika, þæg­indi og áreynslu­leysi í fyr­ir­rúmi í bland við skemmti­leg mynstur og liti svo ég myndi segja að þetta væru eins konar hvers­dags­föt í fínni kant­inum, kven­fatn­aður mest­megnis úr silki og ull,“ segir Borg­hildur Gunn­ars­dóttir, sem hannar undir merk­inu Milla Snorra­son, um lín­una sem hún frum­sýndi Hönn­un­ar­Mars, þá sjöttu sem hún sendir frá sér. Línan kall­ast...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu