„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skerum niður hitaeiningar

Hvernig er best að skera niður fjölda hita­ein­inga?

Skerum niður hitaeiningar

Ein­faldasta leiðin til að létt­ast er að skera niður hita­ein­ingar, það vita allir. Hins vegar eru ekki allir klárir á því hvernig þeir eigi að fara að því og hve mikið þeir eigi að skera niður. Með því að inn­byrða fimm hund­ruð hita­ein­ingum minna á hverjum degi er hægt að létt­ast um hálft kíló á viku. Hér eru nokkrar góðar leiðir til þess.

Salöt eru oft­ast holl, en öllu má samt ofgera og eftir því sem lagt er meira í sal­atið með alls kyns ostum, kara­melliseruðum hnetum, avókadó og þvíum­líku þeim mun hita­ein­inga­rík­ara verður það.

Varastu heilsu­fæði
Fólk er síður á varð­bergi gagn­vart mat sem er stimpl­aður sem heilsu­fæði og van­metur oftar en ekki hita­ein­inga­fjöld­ann. Þó að matur sé hollur þýðir það ekki endi­lega að hann sé hita­ein­inga­snauður, til dæmis er oft mælt með að nota hnetur og þurrk­aða ávexti sem nasl en ef þú gætir ekki að þér getur þú óaf­vit­andi inn­byrt fimm hund­ruð hita­ein­ingar í einu milli­máli.

Salat er ekki það sama og salat
Í hugum flestra er salat það hollasta sem maður getur fengið sér. Það má samt öllu ofgera og eftir því sem lagt er meira í sal­atið með alls kyns ostum, kara­melliseruðum hnetum, beikoni, avókadó, brauð­ten­inga og þvíum­líku þeim mun hita­ein­inga­rík­ara verður það. Einn stór sal­at­diskur með öllu getur inni­haldið fleiri hita­ein­ingar en pasta­réttur. Ef þú setur aðeins eitt sæl­kera­hrá­efni í sal­atið, helm­ingar dress­ing­una og hefur fjöl­breytt­ara græn­meti í á móti getur þú fækkað hita­ein­ing­unum um fimm hund­ruð.

Minni diskar
Besta leiðin til að minnka skammta­stærðir er ein­fald­lega að nota minni diska. Með því einu að skipta þrjá­tíu sentí­metra disknum út fyrir tutt­ugu og fimm sentí­metra disk muntu borða fjórð­ungi minna, sem þýðir fimm hund­ruð kalor­íur þegar allar mál­tíðir dags­ins eru taldar. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af því að verða svöng því rann­sóknir hafa sýnt að svengdin verður ekk­ert meiri.

Borðaðu sjaldnar pasta
Aðeins einn bolli af pasta eru tvö hund­ruð og tutt­ugu hita­ein­ingar en skammta­stærðir flestra eru tölu­vert stærri en einn bolli. Þannig að það er auð­velt að inn­byrða næstum því þús­und hita­ein­ingar í einni pasta­mál­tíð. Reyndu að hafa pasta aðeins einu sinni í viku og haltu þig við tvo bolla af því, það er alltaf hægt að hafa salat með.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu