„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hver dagur er barátta

Ár er nú síðan Ólafía Kristín Norð­fjörð kom fram fyrir alþjóð í þátt­unum Biggest loser en margir tengdu við þessa tveggja barna móður sem þráði að ná tökum á heil­brigð­ari lífs­háttum.

Hver dagur er barátta

Tildrög þess að Ólafía tók þátt var alvar­legt fæð­ing­ar­þung­lyndi og kvíði sem hafði háð henni veru­lega. „Mér líður stundum eins og fólk sé að bíða eftir því að ég missi tökin til þess eins að geta sagt: „Ég vissi að þetta myndi ger­ast”. En ég reyni að hugsa sem minnst um það. Ég vill fyrst og fremst vinna í sjálfri mér og veit manna best hvað er rétt og hvað er rangt, öðrum kemur hrein­lega ekk­ert við hvort ég sé að við­halda árangri eða ekki. Auðvitað er öllum vel­komið að fylgj­ast með en ekki ef mark­miðið er að dæma mig fyrir það hver ég er eða hvernig ég kýs að takast á við hlut­ina.“

„Í gegnum þetta ferli ég hef tekið umtali tals­vert inn á mig og fund­ist fólk vera að dæma mig per­sónu­lega en sem betur fer hafa nei­kvæðu radd­irnar verið á und­an­haldi.“

„En ég lagði mig líka fram við að hlusta betur á það jákvæða sem fólk vildi segja. Flestir voru almennt ánægðir með keppn­ina og fannst gaman að fylgj­ast með þessu öllu saman. Að mínu mati er þetta frá­bær leið til þess að öðl­ast betri lífs­gæði en fólk verður að ganga inn í ferlið með það hug­ar­far að það ætli að breyta lífi sínu til lang­tíma.“

„Ég reyndi að hugsa sem minnst um þetta sem sjón­varps­þátt og mæli með að sem flestir til­einki sér þá hugsun.“

„Það eru nefni­lega margir sem eru ekki þarna á réttum for­sendum eða með það að leið­ar­ljósi að ætla sér alla leið inn á við. Þetta er í grunn­inn spurn­ing um það. Þetta snýst ekki bara um að missa ákveð­inn fjölda kílóa heldur líka að skoða inn á við sem reyn­ist oft og tíðum erf­ið­ara en lík­am­lega breyt­ingin. Ég á hins vegar erfitt með að svara því hvort ég myndi gera þetta aftur því ég vona svo inni­lega að ég muni aldrei þurfa á því að halda. Að mínu mati snýst þetta allt um hug­ar­far því ég hef líka barist við mat­ar­fíkn, það að geta hrein­lega ekki stað­ist mat og verða að fá mér eitt­hvað en þar kemur hug­ar­farið svo sterkt inn.“

„Ég hef sýnt það og sannað að þú getur sigr­ast á mat­ar­fíkn með hug­ar­fars­breyt­ingu þó það geti oft verið þeim mun erf­ið­ara enda getur haus­inn oft verið svo vondur viður­eignar.“

„Með vilj­ann að vopni og rétta hugsun getur þú samt allt sem þú ætlar þér. Sjálf var ég lengi vel í afneitun hvað þessa hluti varðar. Eftir að ég mætti til leiks í keppn­ina brotn­aði ég algjör­lega niður. Ég þakka Gurrý fyrir alla þá áherslu sem hún lagði á and­legu hlið­ina. Ég þurfti að kyssa botn­inn til þess að geta spyrnt mér almenni­lega upp aftur. Þetta er búið að vera virki­lega erfitt ferli sem ég er enn að vinna í en nú í lok sum­ars þurfti ég aftur að kyngja stolt­inu og byrja aftur á lyfj­unum. Kvíðinn var búinn að taka algjör­lega yfir og ég hætt að ráða við and­legu hlið­ina, aftur. Í dag er hver dagur bar­átta. Bara það að mæta í vinnu, sinna stelp­unum sem ég elska meira en allt og rækta sam­bandið við Þröst, mæta á æfingar og í raun hvað sem er, allt er erfitt en ég leyfi erf­iðu dög­unum að koma því þeir eru líka góðir og ég veit að ég kemst í gegnum þá. Ég leyfi mér líka að gráta því það hjálpar. Ég hef sigrað kvíð­ann einu sinni og ætla að gera það aftur. ”

Viðtalið í heild má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Mynd / Hallur Karlsson.
Förðun / Björg Alfreðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu