„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hómer Simpson-jólabindi ein eftirminnilegasta gjöfin

Heiðar Austmann útvarps­maður byrjar aðfanga­dag á rist­uðu brauði með graf­laxi. Jóla­lagið „Happy Christmas War is Over“ með John Lennon og Yoko Ono er í upp­á­haldi.

Hómer Simpson-jólabindi ein eftirminnilegasta gjöfin
Heiðar Austmann Heiðar Austmann Heiðar Austmann Heiðar Austmann *** Local Caption *** Forsíða Forsíða Forsíða Forsíða

Hvernig verða jólin þín í ár? Jólin mín verða bara frekar hefð­bundin eins og önnur ár. Það eru ein­hver jóla­boð, manna­mót og spila­kvöld plönuð þannig að til­hlökk­unin er mikil. Ég verð hjá Björgu systur minni á aðfanga­dag þar sem nán­asta fjöl­skylda verður, þ.e. systir mín og fjöl­skylda hennar, mamma mín, yngri dóttir mín Emilía Þórunn og fleira gott fólk úr fjöl­skyldum okkar. Eva Björk eldri dóttir mín verður erlendis með móður sinni þennan aðfanga­dag­inn.

Átt þú þér ein­hverjar ómissandi jóla­hefðir? Heldur betur. Á aðfanga­dags­morgun þegar ég vakna hef ég haft þann vana í ríf­lega 17 ár að fá mér ristað brauð með graf­laxi og sósu. Síðar um dag­inn förum við Þórunn Kristín, mamma mín, og ég að heim­sækja fólkið okkar í kirkju­görð­unum. Amma Magga og Eymundur afi, Emil afi, Ragn­heiður systir, Gunnar besti vinur minn og svo fóst­ur­for­eldrar hennar mömmu eru meðal þeirra sem við heim­sækjum. Við förum með kerti og jóla­greni og leggjum á leiðið þeirra og þökkum fyrir að hafa fengið að hafa þau í okkar lífi.  Svo ef tími gefst þá tek ég Lord Of The Rings-mara­þon.

Ein jólin fékk ég mynd af Pocanhontas í ramma og Hómer Simpson-jóla­bindi sem mér fannst æðis­legt. Mjög eft­ir­minni­legt.

Hvað er efst á óska­list­anum þínum? Að dætur mínar séu ham­ingju­samar, heil­brigðar og líði vel. Ekki bara á jól­unum heldur alltaf. Þær eru mér allt og skiptir ham­ingja þeirra og vellíðan mig öllu.

Hver er eft­ir­minni­leg­asta jóla­gjöf sem þú hefur fengið? Hef fengið svo margar frá­bærar gjafir. Fyrstu gjaf­irnar frá stelp­unum sem þær bjuggu til á leik­skólum sínum eiga alltaf sér­stakan stað í mínu hjarta. Gaman að fá fyrstu gjöf­ina frá þeim. Ætli það séu hins vegar ekki jóla­gjaf­irnar frá Gunnari heitnum vini mínum sem eru eft­ir­minni­leg­astar. Við ákváðum það þegar við vorum yngri að við myndum alltaf gefa eitt­hvert „djók“ í jóla­gjöf.  Ekki setja of mikla hugsun í gjaf­irnar, skil­urðu?  Ein jólin fékk ég mynd af Pocanhontas í ramma og Hómer Simpson-jóla­bindi sem mér fannst æðis­legt. Mjög eft­ir­minni­legt.

Besta jóla­lag allra tíma? Ég myndi segja „Happy Christmas War is Over“ með John Lennon og Yoko Ono.  Það nær mér ein­hvern veg­inn alltaf. Finnst það mjög fal­legt. Gömlu Jackson 5- og Stevie Wonder-jóla­lögin eiga líka sér­stakan sess í mínu hjarta. Upp­á­halds íslenska jóla­lagið mitt um þessar mundir er hins vegar Það snjóar, með Sigurði Guð­munds­syni.

Mynd / Ernir Eyj­ólfs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins