„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vændismálum á borði lögreglu fækkar þrátt fyrir „sprengingu“

Á sama tíma og fram­boð vænd­is­þjón­ustu á Íslandi hefur aldrei verið meira hafa vændis­kaupa­mál á borði lög­reglu sjaldan verið færri. Augum stjórn­valda hefur fyrst og fremst verið beint gegn man­sali og skipu­lagðri glæp­a­starf­semi en þrátt fyrir það hefur ekki verið ákært fyrir man­sal síðan 2010.

Vændismálum á borði lögreglu fækkar þrátt fyrir „sprengingu“

Samkvæmt mati lög­regl­unnar hefur orðið „spreng­ing í vændi“ á und­an­förnum árum. Ástæða þess er til­tölu­lega borð­leggj­andi, það er stór­auk­inn fjöldi ferða­manna og upp­gangur í íslensku efna­hags­lífi. Ísland er vita­skuld engin und­an­tekn­ing að þessu leyti enda gildir lög­málið um fram­boð og eft­ir­spurn um vændi rétt eins og aðra þjón­ustu. Samhliða aukn­ingu á bæði fram­boði og eft­ir­spurn hafa leiðir til að bjóða og verða sér úti um og hýsa þjón­ust­una orðið fleiri og aðgengi­legri.

Í skýrslu Rík­is­lög­reglu­stjóra um skipu­lagða glæp­a­starf­semi kemur fram að sala vændis á Íslandi fari meðal ann­ars fram innan lok­aðra hópa á sam­fé­lags­miðlum. Hafa miðlar á borð við Facebook, WhatsApp, Instragram og Tinder verið not­aðir til þessa. Einnig hafi fjölgað mjög vænd­is­aug­lýs­ingum á net­síðum og sam­fé­lags­miðlum sem beint er að Íslandi. Ekki þarf mikla net­kunn­áttu til að kom­ast inn á slíkar heima­síður því ein­föld Google-leit vísar á heima­síður sem aug­ljós­lega bjóða vændi undir flaggi fylgd­ar­þjón­ustu. Allar kon­urnar sem boðnar eru til kaups eru af erlendu bergi brotnar en gefin eru upp íslensk síma­númer til að setja sig í sam­band við þær.

„Bann við kaupum á vændi sendir jafn­framt þau skila­boð í sam­fé­lagið að það sé litið alvar­legum augum að kaupa sér aðgang að lík­ama fólks og að ekki sé ásætt­an­legt á Íslandi að nýta sér neyð ann­arra í kyn­ferð­is­legum til­gangi.“

Í skýrsl­unni segir einnig að götu­vændi sé lítt sjá­an­legt á Íslandi en þekkt sé að vænd­is­starf­semi fari fram á næt­ur­klúbbum þar sem boðið er upp á „list­rænan dans“ og að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu „þrír þekktir næt­ur­klúbbar“ starfar­andi. Í flestum til­fellum fara við­skiptin fram á stöð­unum sjálfum en kaup­endum er síðan vísað á hús­næði ann­ars staðar þar sem vændið fer fram. Er þá einkum um að ræða gisti­heim­ili eða íbúðir sem eru leigðar til starf­sem­innar, en gisti­heim­ilum og íbúðum til útleigu í gegnum for­rit eins og Airbnb hefur stór­fjölgað á Íslandi á und­an­förnum árum. Ekki er langt síðan Mannlíf ræddi við eig­anda íbúðar sem hann leigði út á Airbnb og grun­aði að gestir þar væru viðriðnir vænd­is­starf­semi.

Sænska leiðin ekki haft áhrif á eft­ir­spurn
Sjald­gæft er að vænd­is­mál rati inn á borð lög­reglu, þó með einni stórri und­an­tekn­ingu. Fram til árs­ins 2007 var vændi ólög­legt á Íslandi en það ár sam­þykkti Alþingi lög sem leyfðu vænd­is­starf­semi en bönn­uðu þriðja aðila að hagn­ast á henni. Það var gert til að koma í veg fyrir hór­mang. Árið 2009 sam­þykkti Alþingi að fara hina svoköll­uðu sænsku leið, það er að banna kaup á vændi. Það var með þeim rökum að koma ábyrgð­inni af vændi yfir á þann sem borgar fyrir vændið enda almennt litið svo á að þeir sem neyð­ast út í vændi séu þolendur á meðan kaup­endur séu ger­endur. Eins og segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins: „Bann við kaupum á vændi sendir jafn­framt þau skila­boð í sam­fé­lagið að það sé litið alvar­legum augum að kaupa sér aðgang að lík­ama fólks og að ekki sé ásætt­an­legt á Íslandi að nýta sér neyð ann­arra í kyn­ferð­is­legum til­gangi.“

Skiptar skoð­anir eru um hvort sænska leiðin hafi reynst vel eða illa. Hafi sænsku leið­inni verið ætlað að hefta eft­ir­spurn­ina eftir vændi er ljóst að það hefur mis­tek­ist. Töl­fræðin hnígur í sömu átt. Frá árinu 2009, þegar lögin voru sam­þykkt, hefur fjölda skráðra vænd­is­brota hjá lög­reglu fækkað jafnt og þétt og voru þau ein­ungis 5 tals­ins árið 2017. Und­an­tekn­ingin er árið 2013 þegar 175 mál voru skráð hjá lög­regl­unni en það ár var farið í sér­stakt átak til að sporna við vændis­kaupum. Árið eftir var fjöld­inn kom­inn niður í 13 skráð mál.

Nær ekk­ert hefur verið ákært fyrir vændis­kaup und­an­farin ár en árið 2015 höfðu alls 85 ákærur verið gefnar út. Í þeim málum sem end­uðu með sak­fell­ingu voru við­kom­andi aðilar sektaðir um 100 þús­und krónur þótt refsiramm­inn hljóði upp á allt að eins árs fang­elsi.

Lög­reglan hefur við­ur­kennt að hún hafi ekki bol­magn til að fylgja eftir eft­ir­liti og rann­sókn með „hefð­bund­inni“ vænd­is­starf­semi.

Áherslan á man­sal
Lög­reglan hefur við­ur­kennt að hún hafi ekki bol­magn til að fylgja eftir eft­ir­liti og rann­sókn með „hefð­bund­inni“ vænd­is­starf­semi. Enda spurn­ing hversu mikla áherslu áherslu skuli leggja á mála­flokk­inn þegar við­ur­lögin nema ein­ungis 100 þús­und króna sekt. Þess í stað hefur áhersla lög­gæslu­yf­ir­valda beinst að man­sali sem oft er tengt vændi. Í áður­nefndri skýrslu lög­reglu­stjóra segir að lík­legt sé að sumar þær erlendu kvenna sem stunda vændi á Íslandi, bæði í lengri og skemmri tíma, búi við nauð­ung. Í ein­hverjum til­vikum fylgi erlendir karl­menn kon­unum og hafi hugs­an­lega með þeim eft­ir­lit á meðan þær dvelj­ast hér. Þá njóti ein­hverjar kvenn­anna aðstoðar og milli­göngu fólks sem búsett er á Íslandi.

En rétt eins og í vænd­is­mál­unum er fátt um ákærur þegar kemur að man­sali. Í árlegri skýrslu banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um man­sal er Ísland sett í 2. flokk af fjórum eftir að hafa skipað 1. flokk um ára­bil. Gagnrýnt er að ekki hafi verið ákært fyrir man­sal síðan 2010 og að þekk­ingu á mála­flokknum sé ábóta­vant. Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra sagði nið­ur­stöðu skýrsl­unnar byggj­ast á van­þekk­ingu á íslensku rétt­ar­fari en benti um leið á að lög­gæsla hafi verið efld til muna og meiri þungi lagður í fræðslu til handa þeim sem fari með rann­sókn mála af þessu tagi. Þá stóð til að ný aðgerð­ar­á­ætlun gegn man­sali yrði lögð fram í haust en vinna við hana stendur enn yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögregla

Lögreglan stöðvaði matarsendingar í ólöglega námuvinnslu: „Líkin byrjuðu að hrannast upp“
Heimurlögregla

Lög­reglan stöðv­aði mat­ar­send­ingar í ólög­lega námu­vinnslu: „Líkin byrj­uðu að hrann­ast upp“

Maður sem stund­aði ólög­lega námu­vinnslu í Suður-Afríku lýsir óbæri­legri reynslu eftir að lög­reglan stöðv­aði mat­ar­send­ingar niður í námuna. Tugir manna sátu og lágu saman í litlum hellum, sumir svo grunnir að þeir gátu ekki staðið upp. Loftið var blautt og stíflað og pirr­andi hósti berg­mál­aði í lok­uðu rým­inu. Þannig hefst lýs­ing sex barna föð­urs frá Suður Afríku en þar stund­aði...
Ökumenn sögðust vera óslasaðir
Innlentlögregla

Ökumenn sögð­ust vera óslas­aðir

Lög­reglu­stöð 1 Bifreið stöðvuð en öku­maður grun­aður um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Starfs­menn hót­els óska aðstoðar vegna gesta sem voru ósáttir. Tilkynnt um ein­stak­ling sof­andi ölv­un­ar­svefni. Tilkynnt um inn­brot í fyr­ir­tæki. Bifreið stöðvuð við almennt eft­ir­lit. Reyndist öku­maður vera með þrjá umfram far­þega í bif­reið­inni. Tilkynnt um rúðu­brot í fyr­ir­tæki. Tilkynnt um inn­brot í fyr­ir­tæki. Bifreið stöðvuð en öku­maður er...
Ræningjar á ferð í Grindavík um jólin – Gaskútaþjófar náðust á myndband en lögregla áhugalaus
Innlentlögregla

Ræn­ingjar á ferð í Grinda­vík um jólin – Gaskúta­þjófar náð­ust á mynd­band en lög­regla áhuga­laus

Ræn­ingjar hafa farið ráns­hendi um Grinda­vík ef marka má frá­sögn Arons Ágústs­son íbúa í Grinda­vík. Hann segir að gaskútar hafi horfið frá sér og nágrönnum sínum. Þetta upp­götv­aði hann í gær þegar hann lagði leið sína í bæinn yfir­gefna. Vef­mið­ill­inn Vísir greinir frá þessu og ræðir við Aron sem lýsir undrun sinni á því að óprút­tnir aðilar kom­ist inn í...
Aldrei fleiru fólki vísað frá landinu: „Brýnt er að koma þessu í lag. Lög bjóða ekki annað“
Innlentlögregla

Aldrei fleiru fólki vísað frá land­inu: „Brýnt er að koma þessu í lag. Lög bjóða ekki annað“

Aldrei hefur fleiri far­þegum verið vísað frá Íslandi á Kefla­vík­ur­flug­velli við komu þeirra til lands­ins. Lög­reglan á Suð­ur­nesjum sendi fjöl­miðlum í dag frétta­til­kynn­ingu þar sem hún tekur saman ýmsar tölu­legar upp­lýs­ingar um starf­semi lög­reglunna á Suð­ur­nesjum. Fram kemur í bréf­inu að aldrei hafi fleiri far­þegum verið vísað frá land­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli við komu þeirra til lands­ins. Flestir þeirra eru þriðja...
Hnoðað í manninn sem lést á börum: „Sáum allt loga í blá­um ljós­um“
Innlentlögregla

Hnoðað í mann­inn sem lést á börum: „Sáum allt loga í blá­um ljós­um“

Íbúi í Voga­byggð sá mann­inn sem lést um helg­ina bor­inn út á börum Nú um helg­ina lést maður á sex­tugs­aldri og var kona á sama aldri úrskurðuð í gæslu­varð­hald stuttu eftir það, sem var svo fram­lengt til 4. októ­ber. Maðurinn lést í húsi í Voga­byggð og sagði íbúi hverf­is­ins frá atvikum sem hann varð vitni að. „Við vor­um bara heima...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins