„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ætlaði bara að prufa og bakka út þegar ég vildi“

Það hvarfl­aði ekki að henni að vændið myndi hafa eins miklar afleið­ingar og raun bar vitni. Kona sem stund­aði vændi í nokkra mán­uði í kringum alda­mótin 2000 segir hér sína sögu. Enn þann dag í dag rekst hún reglu­lega á menn sem keyptu vændi af henni. Hún segir það alltaf jafn­erfitt.

„Ætlaði bara að prufa og bakka út þegar ég vildi“

„Ég var í lág­launa­starfi á þessum tíma og átti engan vara­sjóð eða neitt,“ segir kona sem stund­aði vændi í um átta mán­aða skeið í kringum alda­mótin 2000. Hún kýs nafn­leynd vegna barna sinna.

Hún segir fjár­hags­örð­ug­leika hafa verið helstu ástæð­una fyrir því að hún ákvað að fara út í vændi. Konan var að nálg­ast þrí­tugt á þessu tíma­bili.

„Ég upp­lifði það þannig að ég hefði ekk­ert bak­land og sá fram á að enda á göt­unni ef ég myndi ekki ná að redda mér pen­ing. Launin mín dekk­uðu engan veg­inn leigu á hús­næði og að lifa á Íslandi,“ útskýrir hún. Hún tekur fram að hún hafi átt góða að en kunni ekki við á þessum tíma að biðja sína nán­ustu um aðstoð.

„Mér datt þá í huga að prófa að selja mig. Þetta er eitt­hvað sem ég hafði aldrei leitt hug­ann að áður. En ég hafði séð kvik­myndir og þætti í gegnum tíð­ina þar sem líf vænd­is­kon­unnar var sett fram sem ein­hver heill­andi heimur. Þannig að mig grun­aði ekki að þetta gæti verið eitt­hvað annað en það.“

Gríðarleg viðbrögð við vændisauglýsingu

Konan seg­ist hafa verið hik­andi í fyrstu en ákvað svo að prófa að búa til síðu á Einkamál.is og aug­lýsa sig þar. Og við­brögðin létu ekki á sér standa.

„Aug­lýs­ingin fékk alveg rosa­leg við­brögð. Skila­boðin hrúg­uð­ust inn. Þau voru meira og minna frá giftum mönnum og þeir voru ekk­ert endi­lega að hylja sig. Menn voru bara til­búnir að treysta ein­hverri mann­eskju á Netinu fyrir upp­lýs­ingum um sig,“ útskýrir konan. Hún tekur fram að meiri­hluti mann­anna sem settu sig í sam­band við hana og vildu kaupa vændi hafi virkað venju­legir fjöl­skyldu­menn.

Þegar ég lít til baka sé ég hvað ég var sak­laus á þessum tíma.

Eftir að hafa spjallað við nokkra menn í gegnum Netið ákvað konan að hitta einn mann­anna. „Þegar ég lít til baka sé ég hvað ég var sak­laus á þessum tíma. Ég gat engan veg­inn með­tekið það sem ég var að fara út í. Mér leið bara eins og ég væri að fara á deit.“

Konan segir að fyrstu skiptin hafi verið henni til­tölu­lega auð­veld. Hún hitti menn­ina ýmist á hót­elum eða í bílum til að byrja með.

„Ég var sjálf ekki með hús­næði á þessum tíma. En ég náði að safna mér pen­ingum til­tölu­lega fljótt og fór þá að leigja dýrt hús­næði hjá ein­hverju leigu­fé­lagi. En ég átti nátt­úr­lega ekk­ert innbú þannig að ég þurfti að byrja á að kaupa allt svo­leiðis og tók það á rað­greiðslum.“

Eftir því sem skipt­unum fjölg­aði fór þetta að verða óþægi­legra.

Hún tekur fram að henni leið ekki illa með að stunda vændi fyrsta einn og hálfan mán­uð­inn, innst inni vissi hún þó að þetta væri ekki „eðli­legt“, eins og hún orðar það. „En eftir því sem skipt­unum fjölg­aði fór þetta að verða óþægi­legra.“

Festist í skuldasúpu

„Um leið og ég var komin með mitt eigið heim­ili og fór að taka þessa menn inn á heim­ilið varð þetta ógeðs­legra. Mér fór að líða illa þá. Ég hafði alltaf talið mér trú um að mér þætti í lagi að selja mig en ég gat það ekki um leið og þeir voru komnir inn á heim­ilið. Þetta voru oft ógeðs­legir menn, þó svo að stór hluti hafi bara verið fín­ustu menn, venju­legir og við­kunn­an­legir. En hluti þeirra voru virki­lega ógeðs­legir menn sem ég var hrædd við. Og það var aug­ljóst að ég var ógeðs­leg í þeirra augum, þeir töl­uðu niður til mín og hringdu jafn­vel í aðra menn og töl­uðu um mig við þá, fyrir framan mig, mæltu með mér og fleira,“ segir konan þegar hún rifjar þetta tíma­bil upp.

Á þessum tíma­punkti lang­aði hana virki­lega að hætta að stunda vændi en dýra leigu­hús­næðið og afborg­anir af hús­gögnum urðu til þess að konan upp­lifði sig fasta í skulda­súpu og henni fannst hún ekki geta hætt að stunda vændi. „Þetta var dýrt hús­næði, ég þurfti að reka það og borga af hús­gögn­unum og mér fannst ég þurfa að standa við þessar skuld­bind­ingar. Svo er auð­vitað ekk­ert grín að spjara sig fjár­hags­lega á Íslandi.“

Mér fannst allt í kringum þetta svo skítugt og ég upp­lifði mig alltaf skítuga.

Konan náði að leyna því fyrir sínum nán­ustu að hún stund­aði vændi. Spurð út í hvort fólk í kringum hana hafi ekki verið farið að spyrja spurn­inga segir hún: „Jú, fólk spurði mig hvernig ég gæti verið að kaupa öll þessi hús­gögn og leigja svona dýrt hús­næði en ég náði alltaf að klóra mig út úr því án þess að svara.“

Vændinu og felu­leiknum í kringum fylgdi mikil van­líðan sem jókst bara með tím­anum. „Mér fannst allt í kringum þetta svo skítugt og ég upp­lifði mig alltaf skítuga. Ég keypti mér meira að segja ein­hvern ódýran síma því ég vildi ekki fá sím­hring­ingar frá þessum mönnum í far­sím­ann minn sem ég not­aði í dag­legu lífi.

Þannig að ég var með tvo síma í vesk­inu og þetta var allt saman mikið laumu­spil.“

Konan lýsir því að hún hafði verið orðin mjög tauga­veikluð á þessum tíma, alltaf hrædd um að fólk í kringum hana kæm­ist að leynd­ar­máli hennar. „Þetta var felu­leikur og lygar út í eitt. Ég hætti meira að segja að drekka áfengi. Mér hafði alltaf þótt gaman að fara út og skemmta mér og halda partí en ég hætti því algjör­lega. Ég var svo hrædd um að tala af mér. Enda hélt ég að fólk myndi loka á mig ef það kæm­ist að þessu.“

Svo hafði ég yfir­leitt ekki efni á mat því að allur pen­ingur fór í að reka þetta heim­ili mitt, ég var heppin ef ég fékk mat­ar­af­ganga í vinn­unni.

Eftir nokkra mán­uði í vændi var konan orðin þung­lynd og átti erfitt með svefn. „Ég gat ekki sofið í rúm­inu mínu, mér fannst það svo ógeðs­legt. Þannig að ég reyndi að sofa í stof­unni. Ég lok­aði bara inn í svefn­her­bergið og vildi ekki fara þar inn. Svo hafði ég yfir­leitt ekki efni á mat því að allur pen­ingur fór í að reka þetta heim­ili mitt, ég var heppin ef ég fékk mat­ar­af­ganga í vinn­unni,“ segir konan þegar hún lýsir dap­ur­legum raun­veru­leika sínum á þessum tíma.

Spurð út í hvort hún hafi leitt hug­ann að því, þegar hún ákvað að byrja að stunda vændi, hvaða afleið­ingar það væri haft í för með sér svarar hún neit­andi.

„Ég hugs­aði alls ekki út í mögu­legar afleið­ingar. Þetta var bara ein­hver leik­ara­skapur. Ég ætl­aði bara að prufa og bakka út þegar ég vildi, gera þetta á mínum for­sendum og mínum hraða. Ég hélt að ég gæti verið við stjórn­völ­inn. En það var aldrei þannig. Um leið og ég var stigin inn í þetta var ég búin að missa stjórn­ina. Ég var alltaf valda­laus í þessum aðstæðum. Ég hélt ég gæti valið kúnn­ana vel en svo var ekki. Alveg sama hvað ég reyndi að vanda mig, þá var ég alltaf með óbragð í munn­inum eftir á.“

Um leið og ég var stigin inn í þetta var ég búin að missa stjórn­ina.

Geðheilsan gaf sig

Eftir um átta mán­uði í vændi gaf and­lega heilsan sig hjá kon­unni. „Ég brotn­aði niður í vinn­unni og yfir­maður minn fór með mig upp á bráða­mót­töku geð­deildar. Svo í kjöl­farið leit­aði ég til Stíga­móta. Þá byrj­aði ég að tala við mína nán­ustu um hvað hafði verið í gangi,“ segir konan. Það var fólki mikið áfall að heyra af þessu, að hennar sögn.

„Fólki fannst erfitt að vita af mér í þessum sporum. En það reyndi samt að fela við­brögðin.“

Konan er þakk­lát þeim stuðn­ingi sem hún fékk í Stíga­mótum. „Stærsta hjálpin fyrir mig var að kom­ast í Svanahóp hjá Stíga­mótum, að sjá að það voru fleiri konur í sömu sporum og ég. Oft leið mér nefni­lega eins og ég hlyti að vera eina konan á Íslandi sem hefði farið þessa leið. Þegar ég kom inn í Stígamót sá ég að það var stór hópur kvenna sem í neyð sinni fór þessa leið. Og þær konur sem ég hef kynnst í gegnum hóp­inn hafa margar svip­aða sögu og ég að segja; þær reyndu að telja sér trú um að þetta væri eitt­hvað sem þær vildu gera en í raun voru þær algjör­lega á síð­ustu bens­ín­drop­unum,“ útskýrir hún og tekur fram að vinnan í Svana­hópnum geti verið afar krefj­andi.

Konan tekur fram að þó að hún hafi verið í vændi í um átta mán­uði líði henni eins og þetta hafi verið mun lengri tími. „Mér líður eins og þetta hafi verið mörg ár. Þetta er rosa­legur blettur á minni lífs­sögu.“

Mennirnir skömmustulegir í dag

Konan glímir enn við afleið­ingar þess að hafa verið í vændi, næstum tutt­ugu árum síðar. „Það er erfitt að keyra sumar slóðir og svo fram­vegis. Staðir og kenni­leiti vekja upp minn­ingar um þennan tíma.“

Konan þarf einnig að hitta suma þess­ara manna í sínu dag­lega lífi. „Suma menn­ina þekki ég í dag og þarf að hitta reglu­lega, það er rosa­lega erfitt. En þetta er ekk­ert rætt. Það er bara látið eins og ekk­ert hafi ískorist. Þeir verða samt allir voða­lega vand­ræða­legir og skömmustu­legir og ég fer öll í bak­lás. Það er mjög erfitt að vera minnt á þetta erf­iða tíma­bil reglu­lega.“

Þeir verða samt allir voða­lega vand­ræða­legir og skömmustu­legir og ég fer öll í bak­lás.

Þegar hún segir blaða­manni frá mönn­unum sem um ræðir talar hún um þá sem við­skipta­vini en tekur svo fram: „Ég vil samt ekki kalla þá við­skipta­vini. Í mínum huga eru þeir bara ofbeld­is­menn. Fyrir mér er það fólk sem kaupir sér vændi að beita ofbeldi.“

Vændið afleiðing kynferðisofbeldis

Eins og áður hefur komið fram hefur konan leitað sér ráð­gjafar hjá Stíga­mótum ásamt því að vinna í sjálfri sér með sál­fræð­ingi síðan hún hætti að stunda vændi. Hún segir þetta vera stöðuga vinnu sem aldrei ljúki.

Í dag hefur hún kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að vændið sé afleið­ing kyn­ferð­is­of­beldis sem hún varð fyrir sem barn.

„Sem barn lærði ég að slökkva á til­finn­ingum mínum þegar var verið að mis­nota mig kyn­ferð­is­lega. Ég var komin með meist­ara­próf í því. Þannig að þegar ég byrj­aði að stunda vændi var auð­velt fyrir mig að slökkva bara á mér. Ég var engan veg­inn tengd til­finn­ingum mínum þegar þeir voru að ham­ast á mér.  Að sjálf­sögðu var ég að leika leik­rit fyrir þá en samt algjör­lega búin að slökkva á mér. Það var bara eins og ég hefði opnað bring­una á mér og tekið hjartað út og sett það inn í skáp á meðan.“

Ég var engan veg­inn tengd til­finn­ingum mínum þegar þeir voru að ham­ast á mér.

Konan lýsir því hvernig kyn­ferð­is­lega ofbeldið úr æsku hafði áhrif á hugs­un­ar­hátt hennar eftir að hún varð full­orðin. „Ég hafði orðið fyrir síend­ur­teknu ofbeldi í gegnum ævina þannig að mér var nokkuð sama þótt ein­hver ókunn­ugur maður væri að ham­ast á mér, ég fékk þá alla vega pen­inga fyrir það. Þannig leit ég á þetta. Það var hvort sem er búið að brjóta á mér áður þannig að mér fannst ekki skipta neinu máli hver færi upp á mig.“

Hún seg­ist hafa áttað sig á þess­ari teng­ingu þegar hún fór að vinna í sér með sál­fræð­ingi. „Þegar ég fór að gróa aðeins sá ég að vændið var afleið­ing þess sem ég lenti í sem barn.“

Ekki bara útlenskar konur

Konan segir það stundum trufla sig að í umræð­unni um vændi á Íslandi er oft ein­göngu talað um konur af erlendum upp­runa.

„Það er alltaf talað um útlenskar konur, oft konur sem eru mansals­fórn­ar­lömb. Það er auð­vitað hræði­legt en vanda­málið er stærra og flókn­ara en það. Það gleym­ist oft að það er líka margt íslenskt fólk sem í neyð sinni fer þessa leið. Mér finnst vera kom­inn tími til að við­ur­kenna það. Og langstærsti hluti fólks sem fer þessa leið er með kyn­ferð­is­of­beld­is­sögu á bak­inu,“ útskýrir konan sem kallar eftir auk­inni fræðslu um vanda­málið sem vændi er á Íslandi.

Hún bendir á að það fólk sem fer þessa leið fest­ist oft í víta­hring, líkt og hún gerði vegna fjár­hags­örð­ug­leika.

Langstærsti hluti fólks sem fer þessa leið er með kyn­ferð­is­of­beld­is­sögu á bak­inu.

„Ég gat þó alla vega hætt eftir þessa átta mán­uði. Ég hafði bak­land og gat fengið aðstoð. En það eru bara ekki allir sem geta hætt. Ég var heppin en ég veit um konur sem eru alltaf að reyna að hætta en svo koma óvænt útgjöld og þá er þetta leiðin sem þær kunna og þekkja.“

Konan við­ur­kennir að það hafi hvarflað að henni nokkrum sinnum eftir að hún hætti að stunda vændi að byrja aftur vegna fjár­hags­vand­ræða. „Ef ég lendi í óvæntum útgjöldum er þetta alltaf fyrsta hugsun. Sem betur fer hef ég aldrei látið verða af því. En í eitt skipti bjó ég meira að segja til aðgang á Einkamál.is, en bless­un­ar­lega var síð­unni minni eytt strax, það er alveg tekið fyrir þetta í dag.“

Vill aukna fræðslu um vændi

Í dag vill konan miðla upp­lýs­ingum og fræða fólk. „Mögulega hjálpar mín saga ein­hverjum. Ég myndi klár­lega koma í við­töl undir nafni ef ekki væri fyrir börnin mín.“

Ég vil að þau frétti það frá mér í stað­inn fyrir að heyra þetta úti í bæ.

Hún segir að einn dag­inn munu börnin hennar þó fá að vita af þessu tíma­bili í lífi hennar. „Þegar börnin mín eru komin á þann aldur til að skilja þetta mun ég segja þeim frá þessu, ég vil að þau frétti það frá mér í stað­inn fyrir að heyra þetta úti í bæ,“ útskýrir konan.

Hún tekur fram að hún hafi lært að til­einka sér jákvæðan hugs­un­ar­hátt á seinni árum. „Ég reyni að hugsa á jákvæðum nótum um þetta erf­iða tíma­bil. Reyni að líta á þetta sem tæki­færi sem ég fékk til að vinna í sjálfri mér. Og tæki­færi til að fræða aðra. Ég væri svo til í að sjá fleiri konur sem hafa verið í þess­ari stöðu taka sig saman og stíga fram og fræða fólk. Sam­taka­máttur kvenna er rosa­lega sterkur og mik­ill. Ég bíð eftir að sjá stíga fram hóp kvenna sem hafa verið í sömu sporum og ég.“

Mynd / Hallur Karlsson

Sjá líka: „Hvað fær menn til að kaupa vændi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vændi

Brynja stundaði vændi á Íslandi: „Algjör skyndihugdetta“
InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
Hvað kostar góð rassskelling? Ég á góða spaða og svipur
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eftirspurn í Covid-faraldri
InnlentVændi

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eft­ir­spurn í Covid-far­aldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins