„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hvað fær menn til að kaupa vændi?“

Fyrir tveimur árum sagði Eva Dís Þórð­ar­dóttir fyrst frá því opin­ber­lega að hún hefði stundað vændi um nokk­urra mán­aða skeið í Danmörku árið 2004. Vændið var afleið­ing kyn­ferð­is­of­beldis sem hún hafði ítrekað orðið fyrir. Hún kallar eftir breyttum við­horfum til vændiskvenna sem nán­ast allar stunda vændi af neyð og hún hefur áhuga á að skilja hvað ein­kennir hug­ar­heim karla sem kaupa vændi.

„Hvað fær menn til að kaupa vændi?“
Mynd/Hallur Karlsson

„Ég tek því alls ekki sem sjálf­sögðum hlut að ég lifði þetta af. Þetta var tví­sýnt á tíma­bili en ég er þakk­lát fyrir að vera á góðum stað í dag,“ segir Eva Dís. Þarna á hún ekki við tíma­bilið sjálft þegar hún var í vændi heldur tím­ana sem komu á eftir. „Á meðan á vænd­inu stóð náði ég alveg að ljúga því að mér að þetta væri bara æðis­legt, sjálfs­vígs­hugs­an­irnar komu síðar, þegar ég fór að ótt­ast hvað gerð­ist ef þetta kæm­ist upp. Hugsanir mínar gagn­vart því að segja ein­hverjum frá voru að þar með væri ég að loka þeim sam­skiptum. Hug­myndir mínar sam­ræmd­ust því ekki að fólk gæti þekkt mig áfram ef það vissi þetta, skömmin var svo svaka­leg. Ég sá fyrir mér að ef þetta frétt­ist þá yrðu það enda­lokin. Gæti ég farið í ást­ar­sam­band án þess að verða heið­ar­leg við maka minn? Hvað með for­eldra mína og systk­ini, myndu þau enn sam­þykkja mig?“

Leynd­ar­málið burð­að­ist Eva Dís með árum saman eða þar til hún fyrir röð atvika rataði til Stíga­móta í ráð­gjöf árið 2012. Þá voru níu ár síðan vænd­inu lauk og van­líðan Evu hafði vaxið með hverju árinu sem leið. „Árið 2011 var mikið áfallaár. Faðir minn svipti sig lífi í maí eftir að hafa fallið eftir langa edrú­mennsku og van­líðan yfir því bætt­ist ofan á allt annað sem ég hafði aldrei unnið úr. Ég var alveg brjáluð út í lífið, til­ver­una og heim­inn allan. Ég fór að fá kvíða­köst í vinn­unni þar sem ég náði ekki and­anum og það láku oft niður tár þó að ég væri ekki að gráta, þetta voru reiði­tár, ég nötr­aði bara af reiði. Systir mín sem ég var mikið í sam­vistum við á þessum tíma benti mér á að hún gæti ekki umgeng­ist mig svona upp­fulla af heift. Ég yrði að gera eitt­hvað í mál­unum. Úr varð að ég fór að hitta séra Önnu Sigríði Páls­dóttur sem er vel að sér varð­andi með­virkni og alkó­hól­isma og hefur verið ráð­gjafi hjá Lausn­inni. Hún mælti með því að ég færi á nám­skeið hjá þeim í sept­em­ber en þá hafði ég engan tíma til þess,“ segir Eva sem var á þessum tíma versl­un­ar­stjóri í Heilsu­hús­inu.

„… hann útskýrði fyrir mér að ég væri brotin kona og hann þyrfti að gera þetta til að opna orku­braut­irnar mínar. Svo nauðg­aði hann mér,“

Nauðgað af meðhöndlara

Í októ­ber 2011 fór hún svo í enda­jaxla­töku sem hún var búin að fresta lengi. „Það verða ein­hver mis­tök í aðgerð­inni, tengd tauga­endum, sem tann­lækn­ir­inn vildi ekki við­ur­kenna. Hann rétti mér nafn­spjald hjá með­höndl­ara sem hann sagði mér að hitta og ég gerði. Með­höndl­ar­inn lag­aði á mér kjálk­ann en vildi svo fá mig í annan tíma því hann sagð­ist þurfa að skoða á mér axl­irnar og úln­lið­ina líka. Ég mætti í þann tíma og hann útskýrði fyrir mér að ég væri brotin kona og hann þyrfti að gera þetta til að opna orku­braut­irnar mínar. Svo nauðg­aði hann mér,“ segir Eva. Hún labb­aði út frá honum eins og vofa af sjálfri sér, keyrði af stað og lenti í bílslysi. Hún hlaut nokkra áverka. Þremur vikum seinna lenti hún aftur í bílslysi, á aðfanga­dag 2011, þá velti hún bílnum og slas­að­ist enn meira. „Fyrir mér var þetta nokk­urs konar „game over“ og þessi bíl­velta eins og mín síð­asta aðvörun – ef ég gerði ekki eitt­hvað í mínum málum þá myndi ég deyja,“ segir Eva sem í kjöl­farið missti einnig vinn­una þar sem hún gat ekki sagt vinnu­veit­and­anum hve lengi hún yrði að ná sér eftir slysin.

„Níunda jan­úar 2012 mætti ég á nám­skeið hjá Lausn­inni í Skál­holti og ráð­gjafi þar sendi mig í Stígamót í kjöl­farið. Þar hitti ég magn­aða konu, hana Dóru, og þar fór ég smám saman að vinna í öllu sem hafði hent mig frá barns­aldri. Ég var hins vegar búin að vera hjá henni í næstum því heilt ár þegar ég opn­aði mig loks­ins um vændið.“

Gerði allt til að verða samþykkt

Vændi er eitt af afleið­ingum kyn­ferð­is­of­beldis og þannig var það einnig hjá Evu Dís. „Fyrst þegar ég kom í við­tal hjá Stíga­mótum var ég látin fylla út spurn­inga­lista þar sem meðal ann­ars átti að haka við hvaða afleið­ingar ég hefði glímt við eftir kyn­ferð­is­of­beldið. Einn af mögu­leik­unum var vændi en ég hak­aði ekki í hann, eng­inn mátti vita um það. Ég tel að margar aðrar konur í minni stöðu hugsi eins þegar þær mæta í við­tal til Stíga­móta og því sé töl­fræðin um þessi mál skökk.“

„Fyrst þegar ég kom í við­tal hjá Stíga­mótum var ég látin fylla út spurn­inga­lista þar sem meðal ann­ars átti að haka við hvaða afleið­ingar ég hefði glímt við eftir kyn­ferð­is­of­beldið. Einn af mögu­leik­unum var vændi en ég hak­aði ekki í hann, eng­inn mátti vita um það.“

Eva Dís varð fyrst fyrir kyn­ferð­is­of­beldi þegar hún var 10 ára en hún telur að ein­elti sem hún varð fyrir alla sína grunn­skóla­göngu hafi líka haft sitt að setja. „Það var mikil útskúfun í ein­elt­inu og ég upp­lifði ekki sam­þykki. Strax og ég tók mín fyrstu skref í ást­ar­sam­böndum var komin þessi til­finn­ing að ég þyrfti að vera spenn­andi kyn­ferð­is­lega, til að vera sam­þykkt. Þegar eldri áhuga­verður ein­stak­lingur sýndi mér áhuga gerði ég allt til að halda í athygl­ina. Ég gerði mér enga grein fyrir að ég mætti sjálf ráða hvað mér fynd­ist spenn­andi og hvað ég vildi gera. Þannig fór ég út í lífið og upp­lifði oft kyn­ferð­is­legt ofbeldi í sam­bönd­unum sem ég var í án þess að hafa hug­mynd um það. Ég var með alls kyns furðu­legar hug­myndir – sagði að fólk ætti ekki að tak­marka hvort annað í sam­böndum – ég ætti að vera til­búin til að upp­lifa hluti með maka mínum sem mig lang­aði ekk­ert endi­lega sjálf og gerði þá kröfu á móti. Ofbeldið var á báða bóga. Ég þráði að vera sam­þykkt þannig að ég var alveg til­búin að fara yfir mörkin mín, án þess að vera með­vituð um það, ég huns­aði þau bara. Fyrsti kærast­inn minn hélt fram hjá mér, for­eldrar mínir skildu í kjöl­far þess að pabbi hélt fram hjá mömmu og fyrir mér var það slæmt. Ég gerði því allt til að koma í veg fyrir fram­hjá­hald eða að vera yfir­gefin.“

Kenndi sér sjálfri um

Eva hélt áfram að upp­lifa sig utan­gátta í fram­halds­skóla og flosn­aði um tíma upp úr skóla. Hún kláraði samt að lokum stúd­ents­prófið. Á þessum árum var Evu nauðgað eftir að hafa farið heim með strák af djamm­inu. „Það sá veru­lega á mér á eftir en ég fór strax að kenna sjálfri mér um; ég var of drukkin, í of stuttum kjól og það hafði sést til okkar í sleik á dans­gólf­inu fyrr um kvöldið. Ég tók alla skömm­ina á mig og fannst ég ekki hafa neina hald­bæra sönnun til að kæra, enda var þetta hvort sem er í raun mín eigin sök. Ég var yfir­höfuð upp­full af sjálfs­hatri, sekt­ar­kennd og skömm.“

Tvítug að aldri kynnt­ist Eva 46 ára manni í gegnum einka­mál.is sem kynnti hana fyrir BDSM sem henni fannst spenn­andi og tekur fram að hún hafi ekki for­dóma fyrir. „Eftir á að hyggja hef ég senni­lega verið að fá útrás fyrir sjálfs­hatur og sjálfs­skaða með þessum hætti en ég var að auki með átröskun á þessum tíma. Í kjöl­farið kynnt­ist ég svo dönskum manni í gegnum BDSM-síðu sem bauð mér að koma til sín til Dan­merkur. Ég laug að fólk­inu mínu að ég væri farin í Kaup­manna­hafnar að vinna á hót­eli en stað­reyndin var sú að ég hafði gert samn­ing við þennan mann um að stunda með honum BDSM gegn ókeypis fæði og hús­næði. Þegar til kom var þetta öðru­vísi en ég hafði gert mér hug­myndir um og kannski var þarna ein­hver arða af sjálfs­virð­ingu sem gerði að verkum að ég vildi ekki finna mig í hverju sem var. Ég rauf því samn­ing­inn, fór sjálf að leigja og fann mér vinnu við upp­vask.“

„ Sam­bandið varð strax sjúkt og ég sætti mig við alls konar skrítnar aðstæður og upp­á­komur. Eftir ein­hvern tíma redd­aði hann mér vinnu á sím­anum í vænd­is­húsi í útjaðri Kaup­manna­hafnar, en þetta var árið 2004.“

Starfaði á vændishúsum

Ekki leið á löngu uns Eva kynnt­ist mann­inum sem átti eftir að hafa meiri áhrif á líf hennar en hana óraði fyrir, fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni sínum. Hún heill­að­ist af því hve sætur og sjar­mer­andi hann var, hve fal­lega hann tal­aði við hana og um hana. Hann var nýskil­inn og átti tvö börn sem Eva gekk í móð­ur­stað. „Ég var bara sak­laus ung stúlka frá Íslandi og gerði mér ekki grein fyrir stöðu hans í sam­fé­lag­inu. Hann var í ýmsum vafasömum við­skiptum og rak meðal ann­ars fylgd­ar­þjón­ustu. Löngu eftir að við byrj­uðum að vera saman sagði hann mér til dæmis frá því að hann hefði verið í fang­elsi og mörgum árum seinna komst ég fyrst að raun­veru­legri ástæðu þess að hann sat inni. Sam­bandið varð strax sjúkt og ég sætti mig við alls konar skrítnar aðstæður og upp­á­komur. Eftir ein­hvern tíma redd­aði hann mér vinnu á sím­anum í vænd­is­húsi í útjaðri Kaup­manna­hafnar, en þetta var árið 2004. Þegar ég var búin að vinna þar um tíma komst ég að því að hann hafði haldið fram hjá mér, meira en venju­lega. Það hafði verið þög­ult sam­komu­lag um að hann væri stundum með öðrum konum en ekk­ert meira en það, ekki annað sam­band. Þegar upp komst að hann hafi haldið við konu í ein­hvern tíma sveið það svo mikið að ég flutti út. Þegar kon­urnar á vænd­is­hús­inu fóru svo að spyrja mig af hverju ég væri ekki frekar að selja mig en að vera á sím­anum, það væri miklu meira upp úr því að hafa, þá lét ég bara slag standa. Vildi með því líka særa sam­býl­is­mann­inn minn.“

Eva vann á þremur vænd­is­húsum þetta ár en end­aði svo á að taka aftur saman við mann­inn. „Honum sárn­aði að ég hefði verið í vænd­inu en það kom samt ekki í veg fyrir að hann bæði mig um að taka nokkur „gigg“ í fylgd­ar­þjón­ust­unni fyrir sig. Hann hafði klúðrað mál­unum þar, hafði verið að sofa hjá stelp­unum sem unnu fyrir hann og þær fóru að svíkja hann um að taka vaktir. Þá redd­aði ég auð­vitað mál­unum.

„Honum sárn­aði að ég hefði verið í vænd­inu en það kom samt ekki í veg fyrir að hann bæði mig um að taka nokkur „gigg“ í fylgd­ar­þjón­ust­unni fyrir sig.“

Við fengum svo ein­hverjar háleitar hug­myndir um að verða „venju­leg“ fjöl­skylda. Hann hætti með fylgd­ar­þjón­ust­una og ég hætti í vænd­inu. Við fórum að reyna að eign­ast saman barn. Ég varð nokkrum sinnum barns­haf­andi en missti alltaf fóstrið. Þetta var erf­iður tími í öllum skiln­ingi en börnin hans gáfu mér mikið og mér þótti vænt um þau. Vorið 2008 var lengsta með­gangan mín en þá missti ég fóstrið eftir 16 vikur. Þegar ég komst að enn einu fram­hjá­hald­inu ákvað ég að losa mig úr sam­band­inu fyrir fullt og allt og flutti heim.“

Kynlíf ekki grunnþörf

Eva gerði það sem hún gat til að lifa eðli­legu lífi eftir heim­kom­una. En stóra leynd­ar­málið nag­aði hana að innan auk þess sem hún hafði ekki unnið úr öllu kyn­ferð­is­of­beld­inu. Það var henni því mikið lán að rata til Stíga­móta. Þegar hún loks­ins opn­aði sig um vændið við ráð­gjafann hjá Stíga­mótum var henni boðið að fara í sjálfs­hjálp­ar­hóp með öðrum konum sem áttu sömu reynslu að baki, svo­kall­aðan Svanshóp. Eva þurfti hins vegar að bíða tals­vert eftir því að tæk­ist að safna í slíkan hóp. Annað stórt verk­efni beið hennar 2013. „Í febr­úar það ár fór ég til læknis þar sem mér var búið að líða illa lengi. Lækn­arnir vildu meina að ég þyrfti bara að borða hollan mat og hreyfa mig. Þegar það datt út úr mér að ég hafði ekki farið á túr í þrjá mán­uði var ákveðið að athuga með blóð­gildi. Ég var send beint á bráða­mót­töku þar sem kom í ljós að ég var við dauð­ans dyr vegna blóð­leysis,“ segir Eva sem fór í alls konar rann­sóknir en var svo send heim á járn­kúr. Stuttu seinna var hún aftur komin á bráða­mót­töku vegna yfir­liðs og van­líð­unar en þá var ástandið enn hættu­legra en síð­ast. Aftur hófust miklar rann­sóknir, að lokum var ákveðið að taka sneið­mynd og í ljós kom risa­stórt æxli í mag­anum á henni. „Sextánda apríl 2013 fór ég í aðgerð þar sem tekið var heil­mikið af innri líf­færum; miltað alveg tekið, ⅓ af bris­inu, 10 cm af ristl­inum, hluti af mag­anum og hluti af þind­inni. Ég fór svo inn og út af spít­ala þetta árið. En það náð­ist að skera allt meinið í burtu og því slapp ég við lyfja­með­ferð sem var mik­ill léttir.“

„ Ég komst að því að kyn­líf er ekki grunn­þörf en hins vegar notum við kyn­líf til að upp­fylla fullt af þörfum. Það er mis­jafnt milli per­sóna til hvers við notum kyn­líf og það fer eftir því hvar ein­stak­ling­ur­inn er staddur á hverjum tíma. “

Eftir að hún fékk krabba­meinið ákvað hún að breyta alger­lega um lífs­stíl – meðal ann­ars nær­ing­unni og við­mót­inu gagn­vart sjálfri sér. Eva hefur þurft að byggja sig upp lík­am­lega með fram hinni and­legu upp­bygg­ingu und­an­farin ár meðal ann­ars í Virk, á Heilsu­stofnun í Hvera­gerði og á Reykja­lundi sem hún segir vera himna­ríki á jörðu. Einnig hefur hún verið í 12 spora sam­tökum við með­virkni, verið hjá sál­fræð­ingum og geð­læknum. „Ég er búin að fara alls konar leiðir. Fara á geð­lyf, í sam­tals­með­ferðir, í Áfalla- og sál­fræði­m­ið­stöð­ina, Kvíða­með­ferða­stöð­ina, í alla mögu­lega sjúkra­þjálfun, í verkja­skóla, til heil­ara, hnykkj­ara, í dáleiðslur og nála­stungur, bara nefndu það. Það breytti líka miklu þegar ég fór á nám­skeið hjá Umhyggju­ríkjum sam­skiptum en þá opn­að­ist nýr heimur fyrir mér, ekki síst hvernig ég tal­aði um og við sjálfa mig. Ég fór að skilja betur hvað ég hef þörf fyrir og það byggð­ist á þarfa­lík­ani. Það er munur á því hvers við þörfn­umst og aðferð­unum sem við notum til að upp­fylla þarf­irnar. Ég komst að því að kyn­líf er ekki grunn­þörf en hins vegar notum við kyn­líf til að upp­fylla fullt af þörfum. Það er mis­jafnt milli per­sóna til hvers við notum kyn­líf og það fer eftir því hvar ein­stak­ling­ur­inn er staddur á hverjum tíma. Kynlíf getur til dæmis verið notað til að upp­fylla nánd, tengsl, sam­veru, inni­leika og ást. Svo getur það verið notað til að upp­fylla sam­þykki, virð­ingu og við­ur­kenn­ingu. Það eru grunn­þarfir að fá sam­þykki, við­ur­kenn­ingu og kær­leika. Kynlíf er ekki grunn­þörf, það er alveg hægt að vera án þess. Þegar ég byrj­aði hjá Stíga­mótum ráð­lagði ráð­gjaf­inn mér að prófa að loka á allt varð­andi karl­menn og kyn­líf í sex mán­uði meðan ég væri að vinna í sjálfri mér og finna mörkin mín. Síðan eru liðin sex eða sjö ár og mig hefur annað slagið langað að prófa ein­hver náin sam­skipti, ekk­ert endi­lega kyn­ferð­is­leg, heldur nánd, traust og inni­leika. Svo hef ég ekki verið til­búin,“ segir Eva.

Frelsi að koma fram undir nafni

Í jan­úar 2016 var búið safna í Svanahóp í Stíga­mótum en að ganga í svona hóp er ekki sjálf­gefið og því var oft löng bið á milli hópa en það hefur breyst. „Þarna hitti ég æðis­legar konur, algerar hetjur. Það var frelsandi að geta rætt þetta á jafn­inga­grund­velli, jafn­vel gert grín. Sjá að allar vorum við að glíma við sömu afleið­ing­arnar. Meira að segja sjálfs­vígs­hugs­an­irnar urðu á ein­hvern hátt eðli­legri. Hjá mér not­aði ég þær eins og ventil. Ég gat lifað í dag því ég þurfti ekk­ert endi­lega að lifa á morgun og þannig komst ég í gegnum dag­inn. Ég lærði að hætta að dæma mig fyrir þessar hugs­anir og það gaf mér aukið frelsi líka. Hins vegar eru ekk­ert allar konur sem lifa þetta af og ein kona sem var í hópnum 2016 er dáin.“

„Eft­ir­spurnin eftir vændi hér á landi er mikil og óvægin. Menn sækj­ast jafn­vel eftir að kaupa konur sem eru ekki í slíkum hug­leið­ingum. Þeir eru ófeimnir við að senda þeim skila­boð á sam­fé­lags­miðlum og bjóða þeim fjár­hæðir.“

Haustið 2016 þegar Eva var búin með vinn­una í Svana­hópnum var fjár­öfl­un­ar­þáttur í sjón­varp­inu fyrir Stígamót. Evu var boðið að taka þátt. „Starfs­konur Stíga­móta voru nær­gætnar og vildu alls ekki að ég gerði þetta nema ég væri alveg viss og buðu mér að koma fram nafn­laust. Ég var hins vegar búin að ákveða að ef ég kæmi fram þá yrði það undir nafni. Það væri kom­inn tími til að skila skömminni. Þarna var ég líka í fyrsta sinn til­búin að láta mína nán­ustu vita og ég sagði þeim frá vænd­inu fyrir þátt­inn. Við­brögðin voru ofboðs­legur skiln­ingur, það var sýni­lega búið að vera mikið að hjá mér lengi og fólk skildi ekki af hverju ég væri að glíma við allt þetta myrkur. Ég fékk miklu meiri skiln­ing og sam­þykki en ég hafði haldið. Inn í það spil­aði öll sjálfs­vinnan þar sem ég var meðal ann­ars búin að læra að tjá mig. Ég gat sagt frá á yfir­veg­aðan, kær­leiks­ríkan og virð­ing­ar­fullan hátt. Gat sagt fólki að það mætti hafa sínar skoð­anir og mætti líða eins og því liði og mér mátti líða eins og mér leið. Við gátum átt sam­skipti með gagn­kvæmri virð­ingu. Áður var svo miklu meiri sárs­auki í kringum þetta og ég svo viss um að eng­inn myndi sam­þykkja mig. En á þessum tíma­punkti var ég komin á þann stað að þurfa ekki sam­þykki frá öðrum því ég var farin að sam­þykkja sjálfa mig,“ segir Eva og bætir við að önnur ástæða hafi orðið til þess að hún ákvað að koma fram undir nafni. „Ef það að ég stíg fram hjálpar bara einni konu þá er það þess virði og það hefur nú þegar gerst. Það hafði kona sam­band við mig eftir söfn­un­ar­þátt­inn og sagði mér að hún hefði verið búin að taka ákvörðun um sjálfs­víg en hætt við eftir að hún sá við­talið við mig. Við grétum saman í sím­ann.“

Eva starfar nú sjálf sem leið­bein­andi hjá Stíg­mótum og stýrir sjálfs­hjálp­ar­hópum bæði vegna vændis og kyn­ferð­is­legs ofbeldis. „Eft­ir­spurnin eftir vændi hér á landi er mikil og óvægin. Menn sækj­ast jafn­vel eftir að kaupa konur sem eru ekki í slíkum hug­leið­ingum. Þeir eru ófeimnir við að senda þeim skila­boð á sam­fé­lags­miðlum og bjóða þeim fjár­hæðir. Þar með eykst hættan á að fleiri drag­ist út í vændi því þegar er búið er að fara yfir þessi mörk einu sinni er ekk­ert aftur snúið. Ég veit einnig að menn sem hafa keypt ákveðnar konur eru oft ekk­ert til­búnir að sleppa af þeim tök­unum þó þær vilji draga sig út úr sam­skipt­unum. Þeir sitja jafn­vel um þær og eru til­búnir að skipta um síma­númer og þess háttar ef þær reyna að blokka þá. Konur gera sér ekki alltaf grein fyrir hvers konar orma­gryfju þær lenda í þegar þær leið­ast út í vændi,“ segir Eva.

Vill skilja karla sem kaupa vændi

Eva seg­ist hafa velt því tölu­vert fyrir sér hvað fái karl­menn til að kaupa vændi og hana langi að reyna að skilja það. „Ég væri svo til í að eiga sam­tal við vændis­kaup­endur. Hvað er svona heill­andi við að eiga þessi nánu inni­legu sam­skipti við ein­hvern sem þú ert alger­lega aftengdur til­finn­inga­lega? Ég skil ekki þessa grimmd, að meiða svona og svo útskúfa fólki úr sam­fé­lag­inu okkar. Mig langar að sjá sjálfs­hjálp­ar­hópa fyrir karl­menn sem eru til­búnir að skoða sína eigin hegðun og eigin sárs­auka. Ekki bara þann sárs­auka sem þeir valda til dæmis vænd­is­kon­unni. Hvað er þeim svo sárt og óheilað? Hvað þurfa þeir að laga til að geta farið að njóta sam­skipta við aðra, orðið betri menn og farið að blómstra í lífi sínu? Það eru til hópar fyrir karl­menn sem hafa beitt ofbeldi og vilja hætta því, af hverju ættu ekki að vera til hópar fyrir menn sem vilja hætta að kaupa vændi? Í fram­tíð­inni væri gaman að geta litið til baka og sagt; „hey, manstu einu sinni var hægt að kaupa kyn­líf af annarri mann­eskju“, eða „spáið í það að einu sinni fannst fólki allt í lagi að stunda kyn­líf með ein­hverjum sem kannski vildi það ekki alveg“. Ég held við séum á leið­inni þangað, öll þessi umræða gerir þetta svo miklu opn­ara.

„ Það eru til hópar fyrir karl­menn sem hafa beitt ofbeldi og vilja hætta því, af hverju ættu ekki að vera til hópar fyrir menn sem vilja hætta að kaupa vændi?“

Meðan sam­fé­lagið er ekki til­búið að bera virð­ingu fyrir konum sem stunda eða hafa stundað vændi þá er skilj­an­legt að þær séu ekki til­búnar til að ræða opin­skátt um reynslu sína. Hug­myndin um ham­ingju­sömu hór­una er ekki sá innri sann­leikur sem ég kann­ast við, ef hún er til ber ég virð­ingu fyrir henni. En við getum ekki tekið hana fram fyrir þær þús­undir vændiskvenna sem þjást í þögn­inni.“

Sjá líka: „Ætlaði bara að prufa og bakka út þegar ég vildi“

Vænd­is­málum á borði lög­reglu fækkar þrátt fyrir „spreng­ingu“

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vændi

Brynja stundaði vændi á Íslandi: „Algjör skyndihugdetta“
InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
Hvað kostar góð rassskelling? Ég á góða spaða og svipur
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eftirspurn í Covid-faraldri
InnlentVændi

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eft­ir­spurn í Covid-far­aldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins