„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Alls óvíst hvað veggjöld þýða

Alls óvíst hvað veggjöld þýða
Mynd / vega­gerdin.is

„Við lýsum yfir áhyggjum yfir þeim áformum að fara yfir í nýja skatta á fjöl­skyld­urnar í land­inu og höfum fyrir okkur í þeim efnum þær for­sendur að nú þegar er verið inn­heimta af bíla­eig­endum 80 millj­arða í formi skatta og gjalda. Við höfum tekið sér­stak­lega út þann hluta þess­ara skatta sem eru hrein not­enda­gjöld, sem bera ekki virð­is­auka­skatt og eru tæpir 40 millj­arðar áætl­aðir sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu. Þessi gjöld, elds­neytis- og bif­reiða­gjöld til dæmis, höfum við tekið út fyrir og sagt að það væri eðli­legt að þessir fjár­munir rynnu til fram­kvæmda hjá Vega­gerð­inni,“ sagði Runólfur Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda (FÍB), í þætt­inum 21 á Hring­braut vegna fyr­ir­hugða upp­töku veggjalda til að standa straum af aðkallandi sam­göngu­úr­bótum.

Með Runólfi var Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem situr í umhverfis- og sam­göngu­nefnd og hefur haft for­göngu um upp­töku veggjalda ásamt Jóni Gunn­ars­syni, starf­andi for­manni nefnd­ar­innar og fyrr­ver­andi sam­göngu­ráð­herra.

Mun ekki auka álögur

„Þessi gjald­taka mun ekki auka álögur á bif­reiða­eig­endur,“ full­yrðir Vil­hjálmur og bendir í því sam­hengi á að álögur muni ekki fara umfram áætl­aðan ávinn­ing af orku­skiptum í sam­göngum.

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis hefur lagt fram drög að nefnd­ar­á­liti vegna sam­göngu­á­ætl­unar til næstu 15 ára. Þar er kveðið á um upp­töku veg­tolla sem yrðu inn­heimtir á stofn­brautum frá Reykja­vík og í öllum jarð­göngum lands­ins í þeim til­gangi að auka fjár­magn til sam­göngu­mála og flýta þar með fyrir brýnum fram­kvæmdum og bæta við nýjum ef þarf.

Engin kostnaðargreining

Runólfur gagn­rýnir harð­lega að ekki sé til kostn­að­ar­grein­ing á því hvað kosti að setja upp, inn­leiða og reka inn­heimtu­kerfi. Þar þurfi að líta til þátta eins og virð­is­auka­skatts veggjalda, inn­heimtu­þókn­unar, utan­um­halds og rekstr­ar­kostn­aðar. Því sé alls óvíst hvað veggjöld muni þýða og kosta rík­is­sjóð. „Ég hef ekki einu sinni séð útfærsl­una á þessu,“ segir Runólfur.

Lagt var upp með að afgreiða sam­göngu­á­ætlun úr umhverfis- og sam­göngu­nefnd  fyrir ára­mót en þingið tekur sér jóla­hlé föstu­dag­inn 14. des­em­ber og stjórn­ar­and­stæð­ingar eru æfir yfir þeim knappa tíma sem málið átti að fá og nefnd­ar­menn ekki til­búnir að klára það nú. Afgreiðslu áætl­un­ar­innar hefur því verið frestað til 1. febr­úar á næsta ári.

Sértæk veggjöld

Ætlunin er, eftir því sem kom­ist er næst, að þá verði ekki rukkuð sér­tæk veggjöld eins og um ræðir allt árið um kring. Áætlað er að rukka veggjöldin í tak­mark­aðan tíma í senn þar til til­teknar fram­kvæmdir séu fullu greiddar með þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins