„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hentar vel fyrir hvern einasta Gáttaþef og aðra sælkera-þef-grísi“

Á tíma­rit­inu Vikunni starfa miklir fag­ur­kerar sem eru með putt­ann á púls­inum á öllu er varðar tísku, heilsu og menn­ingu svo eitt­hvað sé nefnt. Við fengum Írisi Hauks­dóttur, blaða­konu Vikunnar, til að segja okkur frá óska­list­anum hennar fyrir þessi jól.

„Hentar vel fyrir hvern einasta Gáttaþef og aðra sælkera-þef-grísi“
||||

Borð fyrir bókaorm

Efst á óska­list­anum fyrir jólin er brak­andi nýtt sófa­borð en þetta bráð­fagra borð úr Snúrunni inni­heldur allt sem gott sófa­borð þarf helst að hafa. Það er ekki bara for­kunn­ar­fag­urt heldur líka með nægi­legu plássi fyrir allar þær kræs­ingar sem góðu kósí­kvöldi fylgir svo ekki sé minnst á tíma­ritastand­inn sem er bráð­nauð­syn­legur á heim­ili bóka­orms og blaða­manns.

Glæsi­legt borð úr Snúrunni.

Angan af jólum

Jólin eru tími ljóss og friðar en að bakst­urs­ilmi unda­skildum skapa ilm­kerti und­ur­sam­lega jólastemn­ingu. Holiday-ilm­ur­inn frá Ralph Lauren er í algjörum sér­flokki en kertið er ekki bara í einkar hátíð­legum umbúðum heldur ber ilm­ur­inn líka guð­dóm­legan keim af kanil og eplum. Samkvæmt góð­vini mínum, Kerta­sníki, fæst gossið í Hús­gagna­höll­inni og hentar vel fyrir hvern ein­asta Gáttaþef sem og aðra sæl­kera-þef-grísi.

Holiday-ilm­ur­inn frá Ralph Lauren er í algjörum sér­flokki að sögn Írisar.

Hugguleg heimaklæði

Þessi jóla­legi sloppur fæst í versl­un­inni Selena.

Desember er einn anna­samasti mán­uður árs­ins en þegar verk­efnum dags­ins er lokið er fátt betra en að bregða sér í bað og finna jólastressið leka út í froðu­vatnið. Þegar hiti er aftur kom­inn í kropp­inn er um að gera að bregða sér í þægi­leg heima­klæði en sjálf stenst ég sjaldn­ast fal­lega sloppa sem sam­eina bæði feg­urð og nota­gildi. Þessi jóla­legi sloppur mætti vel verða minn en hann má finna í versl­un­inni Selena.

Kinnbein í boði Becca

Aðventan er tími sam­veru­stunda þar sem flestir vilja sýna sig og sjá aðra í sínu besta ljósi. Ég hef lengi verið mik­ill aðdá­andi snyrti­vöru­fram­leið­and­ans Becca enda eru hig­hlighter-arnir þeirra í algjörum sér­flokki. Þegar kemur að hátíð­ar­förðun aðhyllist ég hug­mynda­fræð­ina því meira því betra, svo að með háglans­andi kinn­beinum verða mér allir vegir færir yfir hátíð­irnar. Kæri jóla­sveinn, Becca-pal­lett­una í pakk­ann minn.

Fallegur hig­hlighter setur punkt­inn yfir i-ið.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins