„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Risauppsögn hjá WOW air – Skúli gengst við mistökum

Risauppsögn hjá WOW air – Skúli gengst við mistökum

Um það bil hund­rað starfs­mönnum var sagt upp störfum hjá WOW air í morgun. Flug­vélum undir merkjum félags­ins fækkar úr 20 í 11. For­stjór­inn Skúli Mogensen við­ur­kennir að hann hafi gert mis­tök við stjórnun félags­ins.

Starfs­fólk­inu sem var sagt upp fékk upp­sagn­ar­bréf í hendur í morgun og taka upp­sagn­irnar strax gildi. Upp­sagn­irnar þurfa í sjálfu sér ekki að koma á óvart enda rekst­ur­inn verið á von­ar­völ und­an­farna mán­uði. Þótt við­ræður við Indigo partners um kaup á WOW standa yfir var ljóst að hag­ræða þyrfti í rekstri félags­ins enda rekstr­ar­módel félag­anna tveggja gjör­ó­líkt. Um 1.000 starfs­menn munu starfa hjá WOW air eftir upp­sagn­irnar. Boðað hefur verið til starfs­manna­fundar klukkan 13 í dag þar sem Skúli mun sitja fyrir svörum starfs­manna.

Í tölvu­pósti sem Skúli sendi starfs­mönnum í morgun harmar hann að grípa hafi til þess­ara aðgerða. Þær séu hins vegar eina trú­verð­uga leiðin til að bjarga fyr­ir­tæk­inu. Auk upp­sagna fela þær í sér að fækka flug­vélum í flota félags­ins úr 20 í 11 auk þess sem félagið mun ekki veita fjórum A330 vélum við­töku eins og til stóð.

Skúli segir að WOW air muni leita aftur til upp­runans sem hafi gef­ist vel á fyrstu árum félags­ins, það er að vera „ofur­lággjalda­flug­fé­lag“. Hann við­ur­kennir að hafa beygt af leið og misst sjónar á upp­haf­legu mark­miði félags­ins. Til að mynda þegar ákveðið var að bæta breið­þotum í flot­ann og bjóða upp á Premium sæti um borð.

„Í stuttu máli þá misstum við fók­us­inn og fórum að haga okkur eins og hefð­bundið flug­fé­lag. Þessi mis­tök hafa nærri kostað okkur fyr­ir­tækið og tap okkar hefur marg­fald­ast á árinu. Það er mik­il­vægt að halda því til haga að ég get ekki kennt neinum öðum um nema sjálfum mér fyrir þessi mis­tök…“.

Skúli von­ast til að yfir­taka Indigo muni hjálpa til við að færa félagið aftur til upp­runans.

Svo gæti farið að þetta sé aðeins byrj­unin á sárs­auka­fullum aðgerðum hjá WOW. Fyrir liggur að rekstr­ar­módel Indigo er gjör­ó­líkt, sé litið til þeirra félaga sem banda­ríska félagið rekur, svo sem Wizz Air og JetSmart. Þetta eru hrein­ræktuð lággjalda­flug­fé­lög þar sem rekstr­ar­kostn­aði er haldið í lág­marki, þar með talið launa­kostn­aður. Erfitt er að sjá að íslenskt launaum­hverfi falli inn í þá mynd og hefur Drífa Snædal, for­seti ASÍ, þegar lýst yfir áhyggjum af aðkomu Indigo.

Þá birt­ist grein í vik­unni á vef Forbes þar sem því var velt upp hvort WOW air yrði rekið áfram sem „sýnd­ar­flug­fé­lag“, eða bein­línis ferða­skrif­stofa undir merkjum WOW. Það er að far­þegar kaupi far­miða hjá WOW en fljúgi með öðrum flug­fé­lögum, til að mynda JetSmart og Wizz Air. Slíkt myndi kalla á enn frek­ari sam­drátt.

Á sama tíma og fréttir bár­ust af upp­sögnum hjá WOW tóku hluta­bréf í Icelandair að rjúka upp og nemur hækk­unin 15,5% það sem af er degi.

Uppfært 12:17: Í til­kynn­ingu frá WOW er stað­fest að 111 fast­ráðnum starfs­mönnum hafi verið sagt upp í morgun. Að auki missa á þriðja hund­rað verk­takar og lausir starfs­menn störf sín. Enn fremur er til­kynnt um breyt­ingar á leiða­kerfi félags­ins. Til að mynda verður hætt að fljúga til Delhi á Indlandi en ekki eru nema nokkrir dagar síðan fyrsta ferðin þangað var farin. Þá verður hætt að fljúga til nokk­urra áfanga­staða í Banda­ríkj­unum, svo sem Los Angeles og Chicago.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins