„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fær innblástur frá tengdó

Leik­konan Alexía Björg Jóhann­es­dóttir segir fata­stíl sinn mjög bland­aðan þó að rokk­aður og róm­an­tískur klæðn­aður verði oft­ast fyrir val­inu.

Fær innblástur frá tengdó
|||
Upp­á­halds­flíkin mín er þessi níð­þröngi svarti pall­í­ettu­sam­fest­ingur frá 1970 en hann keypti ég í New York.“

„Mér finnst fátt leið­in­legra en að fara í búðir en ef ég neyð­ist til verða second hand-versl­anir helst fyrir val­inu. Sem betur fer er mað­ur­inn minn góður í að kaupa á mig föt,“ segir Alexía aðspurð um í hvaða búðum hún kaupi helst föt en bætir við að tengda­móðir sín, Edda Guð­munds­dóttir, veiti sér hvað mestan inn­blástur.

„Edda er mikil smekk­kona og alltaf glæsi­lega til fara. Ég hef verið svo heppin að fá gamla kjóla frá henni í gegnum tíð­ina.“

Mér finnst fátt leið­in­legra en að fara í búðir en ef ég neyð­ist til verða second hand-versl­anir helst fyrir val­inu.
„Brúð­ar­kjóll­inn sem ég keypti í second hand-búð í San Fransisco hefur án efa mesta til­finn­inga­lega gildið en ég fékk klæð­sker­ann á Hring­braut til að taka ermarnar af honum, þá varð hann full­kom­inn.“

Þegar talið berst að skyldu­eign allra kvenna segir Alexía það vera fal­leg und­ir­föt en efst á óska­list­anum hennar sé þó leð­ur­sam­fest­ingur.

„Nýjustu kaupin í fata­skápnum mínum eru rauðapp­el­sínu­gulur kjóll en til­efnið var afmæli hjá vini mínum þar sem þema veisl­unnar var Rajneesh og Bhagwan úr þátt­unum Wild Wild Country.

Það var frá­bær lita­pal­letta í því partíi. Annars myndi ég klár­lega segja stíl­inn minn mjög bland­aðan, hann er rokk­aður og róm­an­tískur en á sama tíma klass­ískur.“

Alexía sýndi ein­leik á Act Alone á Suð­ur­eyri í sumar og hún leikur reglu­lega með leik­hópnum Pöru­piltar auk þess að kenna leik­list og tján­ingu í Hringsjá sem er náms- og starfsend­ur­hæf­ing fyrir full­orðna.

„Inn á milli fer ég svo með ferða­menn ofan í Þrí­hnúka­gíg og skrifa greinar fyrir vertuuti.is.“

„Kúlu­háls­menið sem mamma mín býr til úr þang­kúlum úr fjör­unni hennar í Selárdal í Arn­ar­firði á stóran stað í hjarta mínu.“

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins