„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vöxtur í grænni fjárfestingu

Á ráð­stefnu í nýlið­inni viku um Ísland án jarð­efna­elds­neytis var síð­asta inn­leggið um grænar fjár­fest­ingar.

Vöxtur í grænni fjárfestingu

Nokkur vöxtur á sér stað í grænni fjár­fest­ingu á fjár­mála­mörk­uðum, eft­ir­spurn hefur auk­ist í grænum skuld­bréfum sem eru venju­leg skulda­bréf – nema að and­virði þeirra rennur í fjár­mögnun grænna verk­efna á borð við bætta orku­nýt­ingu, vist­vænar sam­göngur og verndun sjávar.

En sem komið er um að ræða hlið­ar­mark­aði og engin föst lagaum­gjörð er um grænar fjár­fest­ingar í heim­inum né hér á landi. Til dæmis er ekki að finna neina laga­skyldu að meta áhættu umhverf­is­á­hrifa né upp­lýs­ingar þar um til fjár­festa þegar fjár­fest er í fjár­mála­gern­ingum. Ísland er eft­ir­bátur ann­arra Norð­ur­landa varð­andi útgáfu grænna skuld­bréfa, en í dag er aðeins einn útgef­andi grænna skulda­bréfa þ.e. Lands­virkjun á meðan á Norð­ur­lönd­unum eru 58 útgef­endur með 149 útgáfur árið 2017, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Lands­bank­anum.

Margir erlendir sjóðir hafa tekið við sér í bar­áttu gegn lofts­lags­breyt­ingum og eru að hreinsa eigna­söfn sín (e. devest­ment) af eignum sem tengj­ast fram­leiðslu og sölu á jarð­efna­elds­neyti. Fjár­fest­ing í iðn­aði sem losar mik­inn koltví­sýr­ing er enda áhættu­söm fjár­fest­ing fyrir bæði fjár­festa og jörð­ina. Stað­reyndin er sú að til þess að jörðin verið sjálf­bær, þurfa mark­aðir að vera sjálf­bærir. Erlendir leið­togar hafa kallað eftir víð­tæku sam­starfi ríkis og einka­fram­taks­ins – nýir sjálf­bærir mark­aðir verði hann­aðir og fjár­festar ein­blíni á sjálf­bærar fjár­fest­ingar, nú síð­ast á World Economic Forum í sept­em­ber.

Aðgerðaráætlun um sjálfbærar fjárfestingar

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins sam­þykkti aðgerð­ar­á­ætlun um sjálf­bærar fjár­fest­ingar í maí á þessu ári. Aðgerð­ar­á­ætl­unin hefur meðal ann­ars að geyma drög að reglu­gerð sem býr til ramma utan um slíkar fjár­fest­ingar t.d. hvaða skil­yrði þurfi að vera upp­fyllt svo að fjár­fest­ing geti talist sjálf­bær. Þá er einnig að finna drög að reglu­gerð sem fjallar um upp­lýs­inga­gjöf og hvernig fjár­festar, stofn­anir og þeir sem sjá um stýr­ingu eigna­safna færa umhverf­is­þætti inn í áhættu­mat og ferla. Líklegt er að þessar reglu­gerðir verði merktar EES samn­ingnum og Íslandi verði skylt að taka þær upp í gegnum EES samn­ing­inn, verði þær sam­þykktar.

Stórir fag­fjár­festar eins og líf­eyr­is­sjóðir sem eru í almanna­eigu geta sett sér reglur um að hreinsa eigna­söfn af fjár­fest­ingu í tengslum við jarð­efna­elds­neyti. Þeir geta tekið mark­viss skref í þá átt í sam­ræmi við ábyrga fjár­fest­inga­stefnu sem tekur mið af fram­tíð sjóðs­fé­laga og sam­fé­lags­legri ábyrgð.

Mark­að­ur­inn mun spila stóra rullu í því að rétta af kúrs með því að fjár­festa ekki í atvinnu­starf­semi sem skaðar jörð­ina, rétt eins og að hann gegnir ábyrgð á núver­andi stöðu og í því að aðhaf­ast ekki. Ríki og mark­aður þurfa vinna saman að sjálf­bærum mörk­uðum. Aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum nær t.d. ekki til þess að huga eigi að sjálf­bærum atriðum og umhverf­is­þáttum við fjár­fest­ingar og fram­kvæmdir á vegum rík­is­ins eða leggja eigi línur í fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóða. Það ætti að bæta.

Sjá einnig: Ísland – án jarð­efna­elds­neytis árið 2030

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins