„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bannsvæði víða um heim

Bannsvæði víða um heim
||||

Þegar við ferð­umst viljum við flest reyna að sjá sem mest og fá eins mikið út úr ferða­lag­inu og hægt er. Sums staðar rek­umst við þó á veggi því margir staðir í heim­inum hafa tak­markað aðgengi og önnur eru harð­lokuð almenn­ingi. Hér má lesa um nokkur þeirra og Ísland á að sjálf­sögðu sinn full­trúa.

Bohemian Grove

Bohemian-klúbb­ur­inn í Monte Rio, Kali­forníu sam­anstendur af rík­asta og valda­mesta fólki heims. Á stórri og skógi­vax­inni land­ar­eign­inni getur það skemmt sér án þess að almúg­inn flæk­ist fyrir. Það kostar 25 þús­und doll­ara að ganga í klúbb­inn og árgjaldið er 5 þús­und doll­arar. Ekki fær þó hver sem er að verða með­limur og þeir sem reyna að lauma sér óboðnir inn á svæðið verða umsvifa­laust hand­teknir. Athygl­is­verður klúbbur sem er sagður búa yfir mörgum leynd­ar­málum.

Lascaux-hella­mynd­irnar

Hinn átján ára Marcel Ravidat, ásamt þremur vinum sínum, fann hell­inn með þessum for­sögu­legu hella­myndum þann 12. sept­em­ber 1940. Átta árum síðar voru hell­arnir opn­aðir almenn­ingi og allt að 1200 manns heim­sótti þá dag­lega. Um 2000 myndir/fígúrur er að finna á veggj­unum, bæði af mönnum og dýrum og einnig abstrakt­tákn. Mynd­irnar eru taldar vera rúm­lega 17 milljón ára gamlar. Strax árið 1955 var komið í ljós að þessi umgangur fór illa með minjarnar en það var ekki fyrr en árið 1963 sem hell­unum var lokað almenn­ingi.

Örkin hans Nóa á Sval­barða

Á norsku eyj­unni Sval­barða er að finna hvelf­ingu sem byggð er langt inn í fjall. Hún geymir miklar fræ­birgðir í örygg­is­skyni ef eitt­hvað alvar­legt ger­ist í heim­inum og hung­ursneyð blasir við. Aðeins starfs­menn og stöku vís­inda­menn fá aðgang að hvelf­ing­unni en of áhættu­samt þykir að hleypa öðrum þar inn. Um 865 þús­und fræ­teg­undir alls staðar að í heim­inum er að finna þar. Meira að segja Norður-Kórea á þarna inn­legg. Fræ­hvelf­ingin var tekin í notkun árið 2008 og þegar hefur ein úttekt farið fram, þegar fræ­geymsla Sýr­lend­inga í Aleppo var eyðilögð í sprengju­árás fyrir nokkrum árum.

Svæði 51

Banda­ríkja­menn hafa loks við­ur­kennt til­vist þessa staðar í Nevada eftir ára­langar klikk­aðar sam­sær­is­kenn­ingar um hann. Það þýðir þó ekki að almenn­ingur sé vel­kom­inn þangað.

Menwith Hill 

Vissu­lega getur maður ekki spíg­sporað inn í hvaða her­stöð sem er. Almenn­ingur er þó sér­lega óvel­kom­inn á her­stöð breska flug­hers­ins í Norður-Yorks­hire í Bret­landi þar sem hin banda­ríska NSA-leyni­þjón­usta hefur aðstöðu en leyndin er aðals­merki hennar. Hún er sögð mik­il­væg­asta her­stöð Banda­ríkj­anna á erlendri grund. Stærsta hler­un­ar­stöð heims?

Skjala­safn Vatík­ans­ins

Í þessu leynda safni eru geymd flest þau skjöl sem Páfa­stóll hefur sankað að sér. Hluti safns­ins var opn­aður árið 1922 og nokkru síðar sá sem teng­ist seinni heim­styrj­öld­inni. Mikil leynd hefur hvílt yfir stærstum hluta safns­ins og margar sam­sær­is­kenn­ingar hafa orðið til um hvað það hefur að geyma.

Surtsey

Eyjan varð til í eld­gosi sem hófst árið 1963 og hefur verið frið­lýst frá 1965. Mark­miðið var að tryggja að þróun eyj­ar­innar verði eftir lög­málum nátt­úr­unnar, að land­nám plantna og dýra, fram­vinda líf­ríkis og mótun jarð­myndana verði með sem eðli­leg­ustum hætti og truflun af völdum manna sem minnst. Óheimilt er að fara í land eða kafa við eyna nema til rann­sókna og verk­efna þeim tengdum og þá aðeins með skrif­legu leyfi Umhverf­is­stofn­unar. Sigl­ingar í kringum Surtsey eru þó heim­ilar. Þess má geta að Vest­manna­ey­ingar vildu ólmir að eyjan fengi nafnið Vesturey en fengu ekki.

Hvítukarla­klúbb­ur­inn í London

Hann heitir White’s Gentleman’s Club, og þar drekkur og spilar bresk karl­kyn­sel­íta. Umsækj­endur þurfa sam­þykki 35 með­lima og árgjaldið er him­in­hátt.

Ilha da Queimada Grande

Brasil­ísk eyja sem er sund­ur­grafin af nöðrum og þarf ekki annað en að ganga nokkur skref til að eiga á hættu að missa lífið. Aðeins örfáir vís­inda­menn hafa leyfi til að heim­sækja þessa snáka­eyju.

Niihau

Þessi eyja er ein af Havaí-eyja­kla­s­anum. Ástæðan fyrir því að eng­inn má koma þangað er sú að hún er í einka­eign. Um 130 manns búa þar en aðeins þeir sem Robinson-fjöl­skyldan býður mega koma í heim­sókn.

Jiangsu-alþjóða­leyni­fræðslu­safnið

Jiangsu National Security Education Museum er stað­sett í Nanjing í Kína og er ein­göngu opið kín­verskum almenn­ingi. Öllum öðrum er úthýst vegna við­kvæmra njósn­a­upp­lýs­inga sem þar er að finna.

Heard-eyja

Aðeins 400 manns er leyft að heim­sækja þessa áströlsku eyju ár hvert. Bátur fer þangað á tveggja vikna fresti yfir úfinn sjó og veð­ur­farið er svo ömur­legt að frekar fáir eru hvort eð er spenntir fyrir að berja eyj­una augum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Óvæntur leynigestur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ
Menning

Óvæntur leynig­estur tók lagið með Erpi – MYNDSKEIÐ

Erpur Eyvind­ar­son rapp­aði fyrir vini sína í Sri Lanka en bauð svo upp á stór­glæsi­legan leynig­est. Sverrir Þór Sverr­is­son, eða Sveppi eins og hann er iðu­lega kall­aður, tróð óvænt upp með Erpi Blazroca Eyvind­ar­syni í veislu erlendis, senni­lega á Sri Lanka en Erpur hefur und­an­farið unnið sem leið­sögu­maður hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Crazy Puffin, sem sér­hæfir sig í ferðum til landa sem...
Björn sá merkilegt skilti á Máritíus: „Fallegt á síðasta degi ársins“
Menning

Björn sá merki­legt skilti á Máritíus: „Fallegt á síð­asta degi árs­ins“

Björn Þor­láks­son sá fal­lega sýn í gær á ferða­lagi sínu á Máritíus-eyrík­inu. Rit­höf­und­ur­inn og fjöl­miðla­mað­ur­inn Björn Þor­láks­son er á ferða­lagi undan ströndum Afríku þessa dag­ana en í gær birti hann ljós­mynd af skilti sem hann sá á alþjóða­flug­vell­inum í höf­uð­borg Máritíus, en þar er bent á sér­stakt bæna­her­bergi, þar sem ekki er spurt um trú heldur geta allir þeir sem...
Skelkaðir farþegar skemmtiferðaskips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND
Heimur

Skelk­aðir far­þegar skemmti­ferða­skips við Tenerife héldu að þeir myndu deyja – MYNDBAND

Skelf­ingu lostnir far­þegar skemmti­ferða­skips sendu „kveðju­skila­boð“ til ást­vina af ótta við að þeir myndu „deyja eins og á Titanic“ þegar risa­stormur velti skip­inu í „45 gráður“. Dan So var að yfir­gefa Bar-Svar (e. Pub-Quiz) um borð í skemmti­ferða­skip­inu Royal Caribbean sem sigldi frá Spáni til Miami í Banda­ríkj­unum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag [7. nóv.] þegar hann heyrði „öskrur og glös brotna“. Hinn...
Tásumyndir Siggu Daggar setja internetið á hliðina – Nýtur lífsins með eiginmanninum á Ítalíu
Menning

Tásu­myndir Siggu Daggar setja inter­netið á hlið­ina – Nýtur lífs­ins með eig­in­mann­inum á Ítalíu

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur og eig­in­maður hennar Sævar Eyj­ólfs­son njóta nú lífs­ins í Ítal­íu­sól­inni en hægt er að fylgj­ast með ferða­lagi þeirra á Instagram. Sigga Dögg er skemmti­lega opinn ein­stak­lingur og deilir ævin­týrum sínum með fylgj­endum sínum á Instagram en nýj­ustu ljós­myndir hennar hafa nán­ast sett inter­netið á hlið­ina. Um er að ræða „skyldu tásu­myndir“ eins og hún orðar það...
Glæsileg Dorrit fékk sér sundsprett í miðju þrumuveðri – MYNDBAND
Menning

Glæsileg Dorrit fékk sér sund­sprett í miðju þrumu­veðri – MYNDBAND

Dorrit Moussaieff nýtur lífs­ins á Indlandi um þessar mundir en hún birti í dag mynd­skeið þar sem hún sést fá sér sund­sprett á þaki hót­els í miðju þrumu­veðri. Fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands, Dorrit Moussaieff hefur efni á að ferð­ast og gerir það óspart. Ef marka má myllu­merki hennar á ýmsum Instagram-færslum hennar und­an­farið hefur hún meðal ann­ars notið lífs­ins á Grikk­landi,...
Gjörbreytt Bríet brillerar í Köben með Hr. Hnetusmjöri
Menning

Gjör­breytt Bríet brill­erar í Köben með Hr. Hnetu­smjöri

Bríet Ísis Elfar skellti sér til kóngs­ins Köben á dög­unum ásamt fríðu föru­neyti, þar á meðal Hr. Hnetu­smjöri en til­efnið var gigg í borg­inni en tón­leik­arnir þóttu takast afar vel. Skæl­bros­andi Brí­et­Mynd: Instagram-sjá­skot Söngdívan Bríet birti ljós­myndir og mynd­skeið á Instagram frá ferð­inni en þar sést hún með glæ­nýjan hára­lit og má segja að hún sé nær óþekkj­an­leg með dökku...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins