„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ísland jarðefniseldsneytislaust árið 2030

Á ráð­stefn­unni „Ísland jarð­efn­iselds­neyt­is­laust árið 2030“ var það haft að leið­ar­ljósi að Ísland yrði fyrsta landið í heim­inum til að hætta að nota jarð­efna­elds­neyti .

Ísland jarðefniseldsneytislaust árið 2030
|||

Í gær fór fram ráð­stefnan „Ísland jarð­efn­iselds­neyt­is­laust árið 2030“ sem haldin var í Háskóla­bíó en um hund­rað ráð­stefnu­gestir sóttu ráð­stefn­una. Á ráð­stefn­unni var það haft að leið­ar­ljósi að Ísland yrði fyrsta landið í heim­inum til að hætta að nota jarð­efn­iselds­neyti.

Markmið ráð­stefn­unnar var að ræða ýmsar áskor­anir og mögu­leika er fylgdu slíku frum­kvæði. Sænsk-íslenska við­skipta­ráðið ákvað því að halda hana til að vekja auk­inn áhuga mál­efn­inu og stuðla að því að Íslandi hætti að nota jarð­efn­iselds­neyti og ýta undir hröð skipti yfir í lág­kolefna­sam­fé­lag. Jafn­framt er mark­miðið að efla sam­starfið enn frekar á milli Sví­þjóðar og Íslands á sviði versl­unar og menn­ingar til að auð­velda Íslend­ingum að ná árangri hvað þetta frum­kvöðla­starf varðar.

Að búa til jarð­efn­iselds­neyt­is­lausar sam­göngur á Íslandi eykur við­skipta­tæki­færi fyrir íslensk fyr­ir­tæki sem og önnur fyr­ir­tæki sem hafa áhuga á að taka þátt í þess­ari metn­að­ar­fullu upp­bygg­ingu.

Fram komu margir áhuga­verðir fyr­ir­les­arar, bæði frá Íslandi og Svíþjóð sem vert var að hlýða á.

Rík­is­stjórn Íslands setti fram metn­að­ar­fullan áætlun um bar­áttu gegn lofts­lags­breyt­ingum í haust. Áætlunin felur í sér 34 stór skref sem ætlað er að tak­marka losun koltví­sýr­ings með það að mark­miði að gera Ísland að fullu kolefn­is­hlut­laust árið 2040.

Til að mynda er þar miðað að því að banna skrán­ingu nýrra olíu- eða dísil­véla árið 2030. Ríkið mun gera ráð­staf­anir til að auka fjölda raf­knú­inna öku­tækja á næstu árum.  Áætlunin kallar einnig á bind­ingu kolefnis með end­ur­heimt vot­lendis og skóg­ræktar. Til þess að þessi áætlun sé raun­hæf þurfum við að gera ráð­staf­anir og bregð­ast við með nýjum leiðum. Við höfum ork­una, inn­við­ina og smæð­ina en okkur vantar tækn­ina.

Sofia Lundberg frá Arlanda flug­velli hélt erindi á ráð­stefn­unni.

Fram komu margir áhuga­verðir fyr­ir­les­arar, bæði frá Íslandi og Svíþjóð sem vert var að hlýða á rekja þær leiðir sem í boði eru. Meðal fyr­ir­les­ara voru, Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, Sofia Lundberg frá Arlanda flug­velli, Jonas North frá Scania, Rikard Agmarken frá Volvo og Lilja Björk Ein­ars­dóttir banka­stjóri Lands­banka Íslands svo dæmi séu tekin.

Voru erindin hvert öðru áhuga­verð­ari og nið­ur­staða ráð­stefn­unnar var sú að Ísland hefur fjöl­mörg tæki­færi til vera fremst í flokki og leið­andi í þessu verk­efni.

Sigurður Ingi Jóhanns­son lét sig ekki vanta.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins