„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Allir verða að eiga sinn sokk

Jóla­sokkar eru algeng sjón yfir jóla­há­tíð­ina og fer útfærslum þeirra fjölg­andi. Við heim­sóttum Kolbrúnu Karls­dóttur hann­yrða­konu og fengum að mynda nokkra af þeim jóla­sokkum sem hún hefur hannað og saumað en óhætt er að segja að Kolbrún vandi vel til verka.

Allir verða að eiga sinn sokk
||||

Víða um heim er hefð fyrir jóla­sokkum sem hengdir eru yfir arin og bíða barna á jóla­dags­morgun, fullir af góð­gæti í boði jóla­sveins­ins. Margir hengja smærri útfærslur þeirra á jóla­tréð á meðan aðrir geyma jóla­kortin í sokknum, flestir nýta jóla­sokk­ana þó sem almennt skraut, hvort sem þeir eru hengdir á hurðir eða út í glugga. Jóla­sokk­ana má kaupa til­búna eða föndra sjálfur og skreyta á ýmsa vegu. Kolbrún er ein þeirra sem gefur barna­börnum sínum jóla­sokka þegar þau hefja búskap en sér­hver sokkur er ein­stakur enda fer Kolbrún ekki eftir upp­skriftum þegar kemur að hann­yrðum. Kolbrún er sjálf­lærð í fönd­ur­gerð og býr yfir ótal snið­ugum lausnum og deilir hér nokkrum með les­endum. Á hverju ári hand­málar hún jóla­kort til styrktar góð­gerð­ar­fé­lag­inu Bergmáli, eins og sjá má á heima­síðu félags­ins.

„Ég sauma þetta ekki í, heldur er þráð­ur­inn lagður laus yfir og svo saumað yfir með aft­ur­sting svo það tolli og þoli þvott. Sömu aðferð nota ég við Jól-merk­ing­una efst á öllum sokk­unum mínum.“ Mynd/ Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
„Hárið á kon­unni er saumað og bak­grunn­ur­inn er ekki köfl­óttur heldur hand­saum­aður. Það var heil­mikið mál að mæla út svo allar stjörn­u­rnar yrðu jafnar. Margir héldu að þetta græna hefði verið fast á efn­inu en þetta er lykkju­spor. Mistil­teinn­inn er laus, hvert ein­asta blað og svuntan hennar líka.“ Mynd/ Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
„Hér setti ég sogrör inn í kúst­skaftið því ann­ars verður það svo skakkt. Endann gerði ég úr basti en ekki garni svo þetta sé sem fal­leg­ast og eðli­leg­ast. Ann­að­hvort ertu með snjó­karl með alvöru­kúst­skaft eða ekki.“ Mynd/ Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
„Þessi sokkur var sein­leg­astur allra því hver múr­steinn er upp­hleyptur og hvert ein­asta snjó­korn og pall­í­etta einnig upp­hleypt. Bæði kúlan og múr­steinn­inn eru vatt­eruð og síðan kapp­melluð, svo vel að það sjá­ist ekki því ef það sést er ekki lengur gaman að því.“ Mynd/ Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins