„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mun Björgólfur taka við Eimskip?

Gylfi Sig­fús­son, for­stjóri Eim­skipa­fé­lags Íslands, mun láta af starfi um næstu ára­mót. Eimskip sendi til­kynn­ingu þess efnis til Kaup­hall­ar­innar seint á sunnu­dag­inn. Mun Gylfi færa sig til Banda­ríkj­anna eftir ára­mót og stýra rekstri Eimskips þar og í Kanada ásamt Eimskip Logistics.

Mun Björgólfur taka við Eimskip?
|

Segja má að mark­að­ur­inn hafi tekið þessum fréttum vel. Hækkuðu hluta­bréf Eimskips um 4,75% í gær.

Líklega hafa margir verið að bíða eftir að sjá breyt­ingar á stjórn og rekstri Eimskips eftir að Samherji keypti 25,3% hlut banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins Yucaipa í félagínu í júlí á þessu ári. Yucaipa eign­að­ist sinn hlut árið 2009 og tók þátt í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins ásamt skila­nefnd Lands­bank­ans. Er talið að Yucaipa hafi hagn­ast um átta millj­arða króna á þess­ari fjár­fest­ingu sinni.

Gylfi gengið í gegnum ólgusjó

Gylfi var fram­kvæmda­stjóri Eimskips Logistics í Banda­ríkj­unum á árunum 2000 til 2006. Frá árinu 2006 til 2008 var hann fram­kvæmda­stjóri Eimskip Logistic sem nær yfir flutn­inga­starf­semi Eimskips í Banda­ríkj­unum og Kanada. Því má segja að hann sé að taka við sam­bæri­legu starfi aftur.

Gylfi tók við sem for­stjóri Eimskips í maí árið 2008 eða á erf­iðum tímum. Fyr­ir­tækið hafði tekið þátt í yfir­tökum á mörgum félögum erlendis frá árinu 2005 með mis­jöfnum árangri. Baldur Guðnason hafði stýrt þeim sem for­stjóri en Magnús Þor­steins­son yfir­tók félagið árið 2005 þegar Avion Group varð til. Árið 2003 eign­að­ist Björgólfur Guð­munds­son Eimskip en hann og tengdir aðilar tóku svo aftur við af Magnúsi Þor­steins­syni í lok árs 2007.

Þrátt fyrir að fyr­ir­tækið hafi ekki farið í þrot á sama tíma og ýmis önnur íslensk fyr­ir­tæki í októ­ber 2008 var róður þess þó orð­inn mjög erf­iður. Í júní árið 2009 óskaði félagið eftir nauða­samn­ingum.

Lands­bank­inn var og er helsti lán­veit­andi Eimskips. Árið 2009 skuld­aði Eimskip og tengd félög bank­anum rúm­lega 70 millj­arða króna. Straumur Burðarás hafði svo lánað 13 millj­arða króna vegna kaupa á kanadíska kæli- og frysti­geymslu­fyr­ir­tæk­inu Versacold.

Við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Eimskips árið 2009 tóku Lands­bank­inn, Yucaipa og skila­nefnd Lands­bank­ans við 77% af hlutafé félags­ins. Yucaipa fór með 32% hlut en árið 2012 keypti Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna 7% af þeim hlut. Restina keypti svo Samherji af Yucaipa í sumar.

Gríðarleg ítök Samherja

Í maí árið 2011 keypti Samherji eignir útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Brim á Akureyri fyrir 14,5 millj­arða króna. Var m.a. um að ræða afla­heim­ildir upp á sex þús­und þorskígildistonn sem Guð­mundur Krist­jáns­son hafði eign­ast við kaup á Útgerð­ar­fé­lagi Akur­eyrar árið 2004. Samherji lagði fram 3,6 millj­arða króna sem eigið fé en Lands­bank­inn lán­aði 10,9 millj­arða króna.

Árið 2012 keypti Kald­bakur, fjár­fest­inga­fé­lag Samherja 36% hlut í Jarð­bor­unum. Félagið hafði áður verið í eigu Atorku Group, sem Þor­steinn Vil­helms­son, fyrrum eig­andi Samherja stjórn­aði. Við fall Atorku Group skuld­aði félagið og tengdir aðilar Lands­bank­anum 43 millj­arða króna og Glitni tæp­lega 7 millj­arða króna. Íslands­banki setti Jarð­bor­anir í sölu­ferli árið 2011. Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más, tók síðan við sem for­stjóri Jarð­bor­ana á árunum 2013 til 2016.

Árið 2012 eign­uð­ust Samherji og FISK Seafood, dótt­ur­fé­lag Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, 75% í Olíuverzlun Íslands (Olís). Stærsti lán­veit­andi Olís er Lands­bank­inn. Fyrir kaupin höfðu Einar Bene­dikts­son for­stjóri þess og Gísli Baldur Garð­ars­son, verið aðal­eig­endur þess í gegnum félagið FAD 1830 ehf. en héldu eftir þetta alls 25% hlut.

Í júlí á þessu ári keypti Samherji svo 25,3% hlut banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins Yucaipa í Eimskip. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig þau kaup voru fjár­mögnuð. Þó verður að telj­ast lík­legt að Lands­bank­inn hafi lánað fyrir þeim að ein­hverju leyti. Talið er að Þor­steinn Már og Jakob Bjarna­son, starfs­maður LBI eign­ar­halds­fé­lags (gamla Lands­bank­ans) séu nánir og ná tengsl þeirra langt aftur. Þó er ljóst að lík­lega stendur eng­inn inn­lendur fjár­festir betur en Samherji. Þannig nam eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins 90 millj­örðum króna í lok árs 2017 og var það með um 70% eig­in­fjár­hlut­fall.

Hvað ætlar Samherji sér með Eimskip?

Nú í sept­em­ber var Baldvin Þor­steins­son gerður að stjórn­ar­for­manni Eimskips. Hann situr einnig í stjórn Olís. Áhuga­vert er að velta fyrir sér hvað vakir fyrir Samherja með fjár­fest­ingu sinni í Eimskipi. Félagið hefur ekki staðið undir vænt­ingum líkt og sjá má á gengi hluta­bréfa félags­ins í Kauphöll. Bréf félags­ins fóru hæst í um 340 í nóv­em­ber 2016 en hafa frá þeim tíma lækkað um nærri 40%. Við lok mark­aða í gær var gengi félags­ins 209,5.

Gott gengi Samherja í gegnum árin hefur m.a. verið falið í því að Þor­steinn Már er gríð­ar­lega góður rekstr­ar­maður og nær að halda rekstr­ar­kostn­aði og yfir­bygg­ingu í lág­marki. Hins vegar er spurn­ing hvort hægt sé að yfir­fara sama stjórn­un­ar­stíl yfir á önnur fyr­ir­tæki. Þannig þótti Baldvin Þor­steins­son nokkuð umdeildur sem for­stjóri Jarð­bor­ana.

Þeir aðilar sem rætt var við á mark­aði töldu lík­legt tæki­færi væru í því að skipta út stjórn­endum hjá Eimskip, nýta fé þess betur, þróa vöru­hótel þess enn frekar svo nokkuð sé nefnt. Hér þarf auð­vitað líka að hafa í huga að starf­semi Eimskips í dag er allt önnur en fyrir ára­tug síðan. Má í því sam­hengi nefna að árið 2007 námu heild­ar­eignir þess um 200 millj­örðum króna en nema í dag 65 millj­örðum króna. Veltan í dag er þó ein­ungis um 10% minni en þegar best var eða rúm­lega 90 millj­arðar króna. Mark­að­ur­inn telur þó almennt séð að Eimskip sé ekki spenn­andi fjár­fest­inga­kostur. Því verður áhuga­vert að sjá hvaða breyt­ingar verða með inn­komu Samherja.

Beðið eftir nýjum forstjóra

Síðan er auð­vitað lyk­il­spurn­ingin hver verður næsti for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Þar eru fjórir kostir taldir lík­legir. Í fyrsta lagi að Baldvin Þor­steins­son verði gerður að for­stjóra þess.

Björgólfur Jóhanns­son

Annað nafn sem hefur verið nefnt er Björgólfur Jóhanns­son sem lét af störfum sem for­stjóri Icelandair Group fyrr á árinu. Hann þykir náinn Samherja. Hann var fram­kvæmda­stjóri nýsköp­unar- og þró­un­ar­sviðs Samherja hf. á árunum 1996-1999. Þá var hann for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar á Nes­kaup­stað frá 1999 til 2006 en Samherji fer með um 45% hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Frá 2006 til 2008 starf­aði hann sem fram­kvæmda­stjóri Icelandic Group en á þeim tíma var Finnbogi Bald­vins­son, bróðir Þorstein Más for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Einnig sat Björgólfur í mörg ár í stjórn Lands­sam­bands íslenskra útgerð­ar­manna (LÍÚ) for­vera SFS. Björgólfur er orð­inn 63 ára gam­all og tók nýlega við sem stjórn­ar­for­maður Íslands­stofu.

Þriðji val­kost­ur­inn sem álits­gjafar Mannlífs hafa nefnt til sög­unnar Jón Björns­son fyrr­ver­andi for­stjóri Festar en hann lét af því starfi nýlega.  Þá er mögu­legt að einn af val­kostum stjórnar Eimskips sé að ráða erlendan for­stjóra með mikla reynslu af flutn­inga- og kæli­st­arf­semi.

Eins og áður sagði verður áhuga­vert að fylgj­ast með rekstri Eimskips á næst­unni.

Mynd / Eimskip

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins