„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óvenjulega hatrömm átök

Sum­ar­liði braut til mergjar sögu­legan bak­grunn þeirra átaka sem nú standa sem hæst á vinnu­mark­aði í frétta­þætt­inum 21 á Hring­braut.

Óvenjulega hatrömm átök

Höfundur / Linda Blöndal

„Horfa verður aftur til 4. og 5. ára­tug­ar­ins til að sjá valda­skipti eins og orðið hafa innan verka­lýðs­fé­laga á síð­ustu árum,“ segir Sum­ar­liði R. Ísleifs­son, sagn­fræð­ingur og höf­undur tveggja binda sögu Alþýðu­sam­bands Íslands.

Hann bendir þó á að verka­lýðs­hreyf­ingin á Íslandi hafi alltaf verið ólík þeirri sem verið hefur á hinum Norð­ur­lönd­unum. „Meg­in­uppi­staðan í félög­unum ann­ars staðar á Norð­ur­löndum hefur verið iðn­verka­fólk, á meðan sjó­menn, land­verka­fólk og fólk í þjón­ustu­störfum hefur verið stærsti hluti verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hér,“ segir hann.

„Tengsl valda­mik­illa stjórn­mála­manna og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar voru áður fyrr mikil hér á landi eða fram á 9. ára­tug þess­arar aldar en það hefur breyst. Allt frá stofnun verka­lýðs­fé­laga börð­ust flokkar upp á líf og dauða um áhrif inni í stétt­ar­fé­lög­unum,“ segir Sum­ar­liði. Fram undir alda­mótin 2000 var algengt að áhrifa­menn úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni væru þing­menn og ráð­herrar, en þegar kemur fram á 9. ára­tug­inn hófu tengsl flokk­anna við verka­lýðs­hreyf­ing­una að rofna. Flokk­arnir fara að leggja minni áherslu á að hafa for­ystu­fólk úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni inn­an­borðs. Athygl­is­vert er að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Alþýðu­flokk­ur­inn hafi haft tals­vert sam­starf, nefna má að Alþýðu­flokk­ur­inn studdi inn­göngu VR í ASÍ en Sjálf­stæð­is­menn réðu lengi lögum og lofum í VR.

Lítil þátt­taka almennra félags­manna í verka­lýðs­fé­lögum hér á landi eins og bent hefur verið á í umræðum í dag, segir Sum­ar­liði að sé ekk­ert nýtt og ekki heldur að talað sé um verka­lýðs­hreyf­ing­una sem bjúrókrat­íska stofnun. Oft sé talað um gullöld verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar á 6. og 7. ára­tug síð­ustu aldar, þegar kalt stríð ríkti með skýrum hug­mynda­fræði­legum átaka­línum.

Um átökin innan VR frá hruni þá hafi það ef til vill verið fyr­ir­boði þeirra átaka sem nú eru í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og sýndu sig hvað best með kjöri Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur sem for­manns Eflingar. Þessi átök eru mjög athygl­is­verð, að mati Sum­ar­liða og óvenju hatrömm, ólíkt því sem gerst hefur und­an­farna ára­tugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins