„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég vil endilega hvetja karla til að prófa að prjóna“

„Maður verður nefni­lega svo­lítið háður því að prjóna,“ segir Pétur Odd­bergur Heim­is­son. Hann hvetur karl­menn til að prófa að prjóna.

Pétur Odd­bergur Heim­is­son byrj­aði að prjóna af kappi fyrir um 10 árum þegar hann starf­aði á Hótel Flatey á Breiða­firði. „Ég vann með nokkrum konum sem voru alltaf prjón­a­ndi og það vakti áhuga minn. Þær hjálp­uðu mér að rifja upp grunn­at­riðin og svo gat maður alltaf leitað til þeirra þegar maður lenti í vand­ræðum,“ segir Pétur sem hefur ekki lagt frá sér prjón­ana og garnið síðan hann komst upp á lagið með að prjóna.

Aðspurður á hvaða tíma dags hann prjónar helst segir Pétur: „Ég er söngv­ari og er í námi, þannig að ég er ekki í hefð­bund­inni 9-5 vinnu. Þess vegna get ég gripið í prjón­ana oft á dag. Oftast prjóna ég nokkra hringi á morgn­anna og svo líka á kvöldin. Maður verður nefni­lega svo­lítið háður því að prjóna, um leið og maður lærir þetta. Svo er hægt prjóna hvar sem er.“

Mynd / Sebast­ian Ryborg Storgaard

Hann segir prjóna­skap fína leið til að ná slökun. „Þetta er mjög góð leið til að slaka á, þegar búið er að læra réttu hand­tökin. Í upp­hafi getur þetta nefni­lega verið erfitt og reynt veru­lega á þol­in­mæð­ina enda er þetta oft mikil nákvæmn­is­vinna.“

Pétur segir prjóna­skap vera góða leið til að verja frí­tíma sínum. „Ég hef svo­lítið tekið Facebook sem dæmi því margir eyða alveg svaka­legum tíma á Facebook, jafn­vel nokkrum klukku­stundum á dag. Þeim tímum væri klár­lega betur varið í að prjóna, þar sem úr verður til dæmis peysa, sokkar eða húfa.“

Tugir klukkustunda fara í eina peysu

Peysan Gróa sem Pétur prjón­aði á mömmu sína.

Pétur prjónar helst peysur. Spurður út í upp­á­halds­peysu sem hann hefur prjónað segir hann: „Peysa sem ég gaf mömmu minni er í upp­á­haldi. Ég hann­aði munstrið á hana jafn­óðum án þess að skrifa það niður og mér fannst það koma mjög vel út. Svo er peysan sem ég hann­aði  og gerði fyrir Mottu­mars líka í upp­á­haldi.“

Peys­urnar sem hann prjónar gefur hann þá ýmist í jóla- eða afmæl­is­gjafir. Svo gengur hann auð­vitað stundum sjálfur í peysu sem hann hefur prjónað og segir það ein­staka til­finn­ingu. „Ég hef gefið flestar peys­urnar og svo selt ein­hverjar. Það er samt svo­lítið skrítið að margt fólk er ekki til­búið að borga sann­gjarnt verð fyrir prjón­aða peysu. Það er eins og margir geri sér ekki grein fyrir vinn­unni sem fer í eina peysu, þetta geta verið tugir klukku­stunda plús efn­is­kostn­aður,“ útskýrir Pétur. Hann leggur áherslu á að það sé svo sann­ar­lega ekki hægt að bera verk­smiðju­fram­leidda peysu við hand­prjón­aða peysu.

Það er eins og margir geri sér ekki grein fyrir vinn­unni sem fer í eina peysu.

Hvetur karla til að prófa að prjóna

Pétur seg­ist oft fá jákvæð við­brögð frá fólki sem sér hann prjóna. „Þegar ég er til dæmis að prjóna í lest­inni í Hollandi, þar sem ég er búsettur, þá sé ég að ókunn­ugir eru svo­lítið að horfa til mín og brosa, þeim þykir þetta snið­ugt. Það er nefni­lega sjald­gæft að sjá karla prjóna, því miður. Það er líka þess vegna sem ég hef viljað tala opin­skátt um prjóna­skap­inn og viljað halda prjóna­kvöld fyrir karla. Ég vil endi­lega hvetja karla til að prófa að prjóna. Það eru líka örugg­lega ein­hverjir ungir strákar þarna úti sem vilja prjóna en þora kannski ekki, þá er ágætt að þeir sjái aðra karl­menn prjóna.“

Hann bætir við: „Ég fæ stundum mikla athygli fyrir að prjóna, ein­göngu vegna þess að ég er karl­maður. Það er svo­lítið spes. Þetta er vegna þess að með tím­anum hefur þetta þró­ast þannig að það eru aðal­lega konur sem prjóna. Þess vegna er fólk stundum for­vitið og hissa að sjá karl­mann prjóna. Umræðan er greini­lega þörf og frá­bært að fá tæki­færi til að hafa áhrif á hana. Vonandi verður alveg jafn eðli­legt að sjá karl­menn prjóna og konur í náinni fram­tíð,“ segir Pétur sem hefur velt mýtum í kringum prjóna­skap mikið fyrir sér und­an­farið.

Umræðan er greini­lega þörf og frá­bært að fá tæki­færi til að hafa áhrif á hana.
Pétur hefur prjónað af kappi í 10 ár. Mynd / Sebast­ian Ryborg Storgaard

Pétur hefur mik­inn metnað fyrir prjóna­skap og er stað­ráð­inn í að bæta sig með tím­anum. „Ég er ekki nærrum því jafn fær og margir í kringum mig. Ég er til dæmis í Facebook-hóp sem heitir Handa­óðir prjón­a­rar og þar birtir fólk myndir af alveg svaka­legum lista­verkum sem það hefur gert. Það veitir manni því­líkan inn­blástur og maður vill gera meira.“

Með­fylgj­andi eru góð ráð frá Pétri fyrir þá sem hafa áhuga á að byrja að prjóna:

  1. Fáið aðstoð frá vinum og vanda­mönnum. Flestir þekkja ein­hvern sem kann að prjóna og getur þá hjálpað við að rifja upp hand­tökin sem maður lærði í grunn­skóla.
  2. Kíkið í handa­vinnu­búðir og fáið aðstoð frá starfs­fólki við að velja réttu prjón­ana og garnið í það stykki sem þið ætlið að prjóna.
  3. Skoðið kennslu­mynd­bönd á YouTube. Þar kennir ýmissa grasa, bæði fyrir byrj­endur og lengra komna.
  4. Farið á prjóna­kvöld sem eru haldin reglu­lega í hann­yrða­versl­unum víða um borg­ina. Þar er hægt að fá aðstoð og inn­blástur. Svo er auð­vitað snið­ugt að stofna eigin klúbb með vinum og kunn­ingjum.

Myndir / Sebast­ian Ryborg Storgaard 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

prjónaskapur

Innlent

Lét spinna garn úr hári hunds­ins Fróða – „Held að hann sé bara stoltur að hafa lagt þetta til“

„Hún er alveg rosa­lega hlý,“ segir rit­höf­und­ur­inn Unnur Þóra Jök­uls­dóttir um peysu sem hún prjón­aði úr garni sem var spunnið úr hárum af hund­inum hennar Fróða. Fróði er tveggja ára og af teg­und­inni Samoyed. Sú teg­und er með tvö­faldan feld. „Þegar ég er í peys­unni fæ ég aðeins að upp­lifa hvernig Fróða líður með þennan mikla feld. Hann elskar kuld­ann...
Mælir eindregið með prjónaskap –„Ég er að reyna að vera poppstjarna en núna er ég bara prjónakona“
Innlent

Mælir ein­dregið með prjóna­skap –„Ég er að reyna að vera popp­stjarna en núna er ég bara prjóna­kona“

Ekki er langt síðan tón­list­ar­konan Salka Sól Eyfeld byrj­aði að prófa sig áfram í prjóna­skap en núna hefur hún náð góðum tökum á prjóni og hefur meira að segja hannað prjóna­upp­skriftir í sam­starfi við Stroff.is. Hún segir alla geta lært að prjóna. Salka Sól kenndi sjálfri sér að prjóna og mælir með að fólk sem hafi áhuga á að læra...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins