„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Icelandair Group kaupir WOW air

Icelandair Group kaupir WOW air

Stjórn Icelandair Group hefur gert kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air. Kaupin eru m.a. gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar. Félögin verða rekin áfram undir sömu merkjum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Icelandair til kaup­hall­ar­innar. Í kjöl­farið voru við­skipti með hluta­bréf í Icelandair Group stöðvuð í kaup­höll­inni. Sölu­verðið nemur 2,18 millj­örðum króna en getur hækkað eða lækkað út frá nið­ur­stöðu áreið­an­leikakann­ana á Wow.

Ekki er langt síðan tví­sýnt var um rekstur Wow en félagið komst tíma­bundið í skjól eftir að hafa lokið 60 millj­óna evra skulda­fjár­út­boði um miðjan sept­em­ber. Þó var ljóst að tví­sýnt var um fram­haldið en til stóð að safna meira fé með hluta­fjár­aukn­ingu í kjöl­farið.

Sem gagn­gjald fyrir hlutafé WOW Air munu hlut­hafar WOW air, að upp­fylltum skil­yrðum, eign­ast alls 272.341.867 hluti eða sem sam­svarar um 5,4% hluta­fjár Icelandair Group eftir við­skiptin. Þar af eru 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5% hluta­fjár gagn­gjald fyrir hið selda hlutafé. Það gagn­gjald getur hækkað í 4,8% og lækkað í 0,0% út frá ákveðnum for­sendum í tengslum við áreið­an­leika­könnun. 94.275.347 hlutir eða sem sam­svarar 1,8% hluta­fjár eru gefin út til selj­enda vegna breyt­ingar á víkj­andi láni í hlutafé. Selj­endur hafa skuld­bundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í a.m.k. 6 mán­uði og helm­ing hlut­anna í a.m.k. 6 mán­uði til við­bótar.

Félögin verða áfram rekin undir sömu vöru­merkjum en sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild þeirra á mark­aðnum yfir Atl­ants­hafið er um 3,8%. Með yfir­tök­unni skap­ast tæki­færi til sóknar á nýja mark­aði og auk þess er gert ráð fyrir að ein­inga­kostn­aður Icelandair Group muni lækka. Félagið verður þannig enn betur í stakk búið til þess að veita erlendum flug­fé­lögum öfl­uga sam­keppni á hinum alþjóð­lega flug­mark­aði.

Bogi Nils Bogason, starf­andi for­stjóri Icelandair Group:
“WOW air hefur á und­an­förnum árum byggt upp sterkt vöru­merki og náð miklum árangri á mörk­uðum félags­ins, til og frá Íslandi og yfir Atl­ants­hafið. Það eru mikil tæki­færi til hag­ræð­ingar en félögin verða áfram rekin á eigin for­sendum undir eigin vöru­merkjum og flug­rekstr­ar­leyfum. Íslensk ferða­þjón­usta er grunn­stoð í íslensku  hag­kerfi og það er mik­il­vægt að flug­sam­göngur til og frá land­inu séu í traustum skorðum.”

Skúli Mogensen, for­stjóri og stofn­andi WOW air:
„Ég er mjög stoltur af þeim árangri og þeirri upp­bygg­ingu sem við hjá WOW air höfum náð á und­an­förnum árum og er jafn­framt  þakk­látur fyrir þær frá­bæru við­tökur sem við höfum fengið frá fyrsta degi. Við höfum byggt upp öfl­ugt teymi sem hefur náð eft­ir­tekta­verðum árangri og verið braut­ryðj­andi í lággjalda­flugi yfir Norður-Atl­ants­hafið. Nú tekur nýr kafli við þar sem WOW air fær tæki­færi til að vaxa og dafna með öfl­ugan bak­hjarl eins og Icelandair Group sem mun styrkja stoðir félags­ins enn frekar í alþjóð­legri sam­keppni“.

Boðað verður til hlut­hafa­fundar Icelandair Group á næstu dögum þar sem tekin verður end­an­leg ákvörðun um kaupin. Hlut­hafa­fund skal boða með þriggja vikna fyr­ir­vara hið skemmsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

brennidepill-wow-icelandair

Skúli safnaði 7,6 milljörðum króna
Innlent

Skúli safn­aði 7,6 millj­örðum króna

Skulda­bréfa­út­boði flug­fé­lags­ins WOW lauk í dag. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs varð nið­ur­staðan 60 millj­ónir evra, jafn­virði 7,6 millj­arða króna. Hratt hefur gengið á eigið fé WOW og varð ljóst að félagið þyrfti að verða sér út um fjár­magn ef halda ætti áfram rekstri. Var skulda­bréfa­út­boðið liður í því og svar stefnan sett á að gefa út skulda­bréf fyrir að lág­marki 50...
Telur WOW umtalsvert meira virði en Icelandair
Innlent

Telur WOW umtals­vert meira virði en Icelandair

Skúli Mogensen, for­stjóri WOW flug­fé­lags­ins, telur að heild­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins nemi að minnsta kosti 44 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar er skráð virði Icelandair á mark­aði rúmir 36 millj­arðar króna. Þetta má lesa út úr við­tali við Skúla í Financial Times. Segir Skúli að fyr­ir­tækið stefni á að 2-300 millj­óna doll­ara hluta­fjár­ú­boð á næstu 18 mán­uðum. Það sam­svarar 22 til 33 millj­örðum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins