„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Það er ekki val neins að verða heimilislaus“

Um helg­ina birt­ist færsla á Facebook-síðu Frú Ragn­heiðar, skaða­minnk­andi verk­efnis á vegum Rauða Krossins, þar sem óskað er meðal ann­ars eftir hlýjum fötum, teppum og tjöldum fyrir heim­il­is­lausa.

„Það er ekki val neins að verða heimilislaus“

„Eins og þið vitið þá eru margir af þeim ein­stak­lingum sem leita til okkar heim­il­is­lausir. Nú hefur vet­ur­inn skollið á og því orðið ansi kalt í veðri. Okkur í Frú Ragn­heiði langar að athuga hvort ein­hver af ykkur hefði tök á að gefa hlýjan fatnað eins og úlpur, lopa- eða flís­peysur eða kulda­buxur. Einnig vantar okkur hlýja svefn­poka, teppi og tjöld,“ segir meðal ann­ars í færslu Frú Ragn­heiðar.

Svala Jóhann­es­dóttir, verk­efn­is­stýra Frú Ragn­heiðar, segir við­brögðin við færsl­unni hafa verið góð og fólk hefur verið dug­legt að koma með fatnað á skrif­stofu Rauða kross­ins í Reykja­vík.

„Söfnunin hefur gengið mjög vel og margir hafa komið til okkar með poka og kassa af fötum og öðru. Nú er kom­inn vetur og eft­ir­spurnin eftir hlýjum fötum er orðin mikil hjá okkur. Margir sem leita til okkar eru heim­il­is­lausir og sumir þeirra þurfa að sofa úti, gista í bílum eða geymslum, í tjöldum eða vera í hús­tökum þar sem stundum er eng­inn hiti. Aðrir gista stundum í neyð­ar­at­hvörfum eins og í Gisti­skýl­inu eða í Konukoti en á dag­inn þurfa þeir ein­stak­lingar að verja miklum tíma úti. Þetta er ofsa­lega erfið staða að vera í og það er mik­il­vægt fyrir ein­stak­linga í þess­ari stöðu að hafa aðgengi að góðum fatnað og bún­aði, til í raun að lifa þessar aðstæður af,“ útskýrir Svala.

„Margir sem leita til okkar eru heim­il­is­lausir og sumir þeirra þurfa að sofa úti, gista í bílum eða geymslum, í tjöldum eða vera í hús­tökum.“

Hún bendir á að á síð­ustu fimm árum hefur orðið 95% aukn­ing á fjölda heim­il­is­lausra í Reykja­vík. „Það er ekki val neins að verða heim­il­is­laus. Þetta ger­ist vegna erf­iðra aðstæðna í lífi fólks og stjórn­völd eru ekki að grípa inni til að reyna að fyr­ir­byggja það að fólk verði heim­il­is­laust. Einnig gengur ansi hægt að ná fólki úr heim­il­is­leys­inu, það eru allt of fáar félags­legar leigu­í­búðir og einnig vantar önnur stuðn­ings­úr­ræði fyrir hóp­inn.“

Þess má geta að skrif­stofa Rauða kross­ins í Reykja­vík er í Efsta­leiti 9, 103 Rvk. Þeir sem vilja leggja verk­efn­inu lið geta komið með vörur þanngað á skrif­stofu­tíma. „Við erum komin með marga poka og kassa af fatn­aði og við getum enn þá tekið við mun meiru,“ segir Svala að lokum.


Mynd / Rauði Krossinn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skaðaminnkun

Batamiðuð skaðaminnkun
Skoðun

Aðsend skoðun

Bata­miðuð skaða­minnkun

Skoðun Eftir / Heiðu Björg Hilm­is­dóttur. End­ur­skoðun á stefnu Reykja­vík­ur­borgar í mál­efnum „heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir“ er að ljúka, ákveðið var að nota það hug­tak í stað orðs­ins utan­garðs­fólk, sem hefur hin síð­ari ár sætt gagn­rýni. Í Evrópu fjölgar fólki í þessum sporum og þar sem árangur er bestur er byggt á skaða­minnk­andi hug­mynda­fræði og mikið sam­starf er...
Frú Ragnheiður ánægð með matargjafir
Innlentskaðaminnkun

Frú Ragn­heiður ánægð með mat­ar­gjafir

Skaða­minnk­unar­úr­ræðið Frú Ragn­heiður fær reglu­lega mat­ar­gjafir frá fólki og fyr­ir­tækjum sem nýttar eru til handa umbjóð­endum verk­efn­is­ins. „Ein­stak­lingar hafa verið að koma með dýr­indis mat úr veislum til okkar, eins og pönnu­kökur, flat­kökur með hangi­kjöti, snittur og litla köku­bita.“ segir í þakk­ar­póst frá verk­efn­inu á Facebook til hinna gjaf­mildu aðila. Þá er að finna upp­lýs­ingar fyrir þá sem áhuga hafa á að aðstoða með mat­ar­gjöfum.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins