„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ástarsaga tveggja raðmorðingja

Ný kvik­mynd um hinn alræmda morð­ingja Axlar-Björn er vinnslu. Búi Bald­vins­son hjá fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Hero Produtions segir að hér sé á ferð alveg ný nálgun á sög­una.

Ástarsaga tveggja raðmorðingja
Undir lok 16. aldar var Björn Pét­urs­son
Búi Bald­vins­son hjá fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Hero Produtions segir að hér sé á ferð alveg ný nálgun á sög­una.

„Þetta er engan veg­inn hroll­vekja þótt það sé mikið um ofbeldi,“ segir Búi. „Þetta er í raun súr­r­eal­ísk ást­ar­saga tveggja raðmorð­ingja. Axlar-Björn er auð­vitað hálf­gerð þjóð­saga þar sem raun­veru­lega lítið er vitað hvað gerð­ist á bænum Öxl á Snæ­fells­nesi þar sem hann og eig­in­kona hans, Þórdís Ólafs­dóttir, bjuggu. Það gefur okkur svig­rúm til að leika okkur með sög­una, búa til okkar eigin útgáfu af Birni og Þórdísi. Það er þeirra sam­band og draumar sem keyrir mynd­ina áfram.“
Sagan um Axlar-Björn er fyrsta kvik­myndin í fullri lengd sem Hero Productions fram­leiðir í heild sinni en fyr­ir­tækið hefur áður með­fram­leitt myndir eins og Rökkur, It Hatched og Angels never Cry. Leik­stjóri og hand­rits­höf­undur mynd­ar­inar er Davíð Charles Frið­berts­son, töku­maður Eduardo Ramirez og Vilius Petrikas ann­ast fram­leiðslu. Aðal­hlut­verkin tvö, hlut­verk Þórdísar og Axlar-Björns, eru í höndum Vivian Ólafs­dóttur og Haf­steins Gunnars Haf­steins­sonar og munu per­són­urnar verða í jafn­stórum hlut­verkum í þess­ari útfærslu sög­unnar. Búi segir fram­leið­end­urna hafa gefið sér góðan tíma til að finna réttu leik­ar­ana, enda séu Þórdís og Björn flóknar per­sónur og því hafi þeir viljað vanda valið.
„Okkar Björn er t.d. ekki þessi grimmi morð­ingi sem margir sjá fyrir sér þegar talað er um Axlar-Björn heldur við­felld­inn og sympat­ískur maður og það tók tíma að finna rétta leik­ar­ann. Þegar Haf­steinn kom í prufu vissum við að hann væri loks­ins fund­inn. Haf­steinn bara smellpass­aði í hlut­verkið.“

„Sagan byggir á þjóð­sögu og þótt henni sé kannski ekki fylgt alveg eftir þá hefur leik­stjór­inn skapað þarna ver­öld sem verður ólík öllu öðru.“

En hvers vegna ákváðuð þið að gera þessa mynd – þ.e. hvað var það við sög­una sem heill­aði ykkur? „Af því að und­an­farið hafa helst verið að koma út real­ískar myndir á Íslandi og þessi mynd verður skemmti­lega á skjön við þær. Sagan byggir á þjóð­sögu og þótt henni sé kannski ekki fylgt alveg eftir þá hefur leik­stjór­inn skapað þarna ver­öld sem verður ólík öllu öðru sem er verið að gera hér núna.“
Spurður hvenær myndin verði sýnd í íslenskum bíóum seg­ist Búi reikna með því að það verði í fyrsta lagi næsta haust. Tökum sé nýverið lokið og gangi eft­ir­vinnslan vel verði myndin til­búin til sýn­ingar í vor. Stefnt sé að fara með hana á hátíðir í vor og sumar og eftir það liggi leiðin í kvik­mynda­hús. „Þá verður spenn­andi að sjá hvernig íslenskir áhorf­endur taka henni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins