„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Selja ímynd Íslands fyrir milljarða

Íslensk orku­fyr­ir­tæki selja erlendum fyr­ir­tækjum upp­runa­vott­orð fyrir íslenska end­ur­nýj­an­lega orku. Vott­orðin hafa kall­ast synda­af­lausnir enda hreinsa fyr­ir­tækin sig af því að nota meng­andi eða óend­ur­nýj­an­lega orku­gjafa.

Selja ímynd Íslands fyrir milljarða
|

Íslensk orku­fyr­ir­tækið hafa gefið út og selt upp­runa­á­byrgðir fyrir íslenskri raf­orku í að verða sjö ár. Tekj­urnar nota fyr­ir­tækin til að efla fram­leiðslu á end­ur­nýj­an­legri orku. Salan á ábyrgð­unum veldur því að hlut­fall kjarn­orku-, kola- og jarð­efna­elds­neytis er hátt í orku­notkun Íslend­inga. Fyr­ir­tækin íslensku þurfa í stað­inn að taka á sig mikla kolefn­islosun og geisla­virka mengun. Til að eyða því út kaupa þau sjálf upp­runa­skír­teini til að hreinsa merki um meng­andi orku­gjafa úr bókum sínum.

Ekki liggur fyrir hvað orku­fyr­ir­tækin hafa selt upp­runa­á­byrgðir fyrir háar fjár­hæðir og eng­inn heldur utan um þær fjár­hæðir. Þeir sem Mannlíf hefur rætt við segja upp­hæð­irnar lík­lega hlaupa á millj­örðum króna. Verðið hefur sveifl­ast tals­vert í gegnum tíð­ina. Sem dæmi hefur verð upp­runa­á­byrgða Lands­virkj­unar lækkað veru­lega frá því byrjað var að selja upp­runa­á­byrgðir árið 2011. Undir lok árs 2015 var mega­vatt­stundin á 10 evru­sent. Í byrjun árs 2016 var hún komin upp í 30 evru­sent. Þegar verðið var hvað hæst fór mega­vatts­stundin upp í 2 evrur. Búist er við því að átak í lofts­lags­málum muni valda því að verðið hækki tölu­vert í við­bót.

Upp­runa­á­byrgð­irnar hafa af sumum verið kall­aðar synda­af­lausnir enda eru þær not­aðar til að upp­fylla ýmis skil­yrði um mark­mið í lofts­lags­málum. Bæði not­endur raf­orku hér og í Evrópu geta með ábyrgð­unum fengið raf­orku­notk­un­ina vott­aða sem end­ur­nýj­an­lega sam­kvæmt alþjóð­legum staðli og standa við mark­mið í umhverf­is­stefnu sinni.

Salan hefur verið gagn­rýnd þar sem meng­andi úrgangur og orku­gjafar koma fram í bókum íslensku orku­fyr­ir­tækj­anna. Hlutur meng­andi og óend­ur­nýj­an­legra orku­gjafa hefur auk­ist jafnt og þétt í raf­orku­hluta Íslands. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Orku­stofnun voru kol, olía og gas um 58% af raf­orku­hluta Íslands, kjarn­orka var 29% og end­ur­nýj­an­leg orka aðeins 13%. Gagn­rýnendur segja sölu synda­af­lausna spilla ímynd Íslands sem hreins lands og hafa hvatt til þess af söl­unni ábyrgð­anna verði hætt. Fram kom meðal ann­ars í Bænda­blað­inu árið 2015 að stjórn­mála­menn væru undr­andi yfir söl­unni og teldu rétt að hætta henni.

Segir gjald­eyr­is­tekj­urnar af sölu upp­runa­á­byrgða skila sér út í sam­fé­lagið
Páll Erland, fram­kvæmda­stjóri Samorku, sam­taka orku- og veitu­fyr­ir­tækja á Íslandi, segir sölu upp­runa­á­byrgða jákvæða fyrir fram­leið­endur grænnar orku. „Sala upp­runa­á­byrgða gengur út á að styrkja fram­leið­endur grænnar orku svo þeir fái hærra verð fyrir hana. Þannig verður græn orka sífellt sam­keppn­is­hæf­ari og fleiri kjósa að kaupa hana fram yfir jarð­efn­iselds­neyti þar sem við á,“ segir Páll.

Páll segir gjald­eyr­is­tekj­urnar af sölu upp­runa­á­byrgð­anna hér á landi skila sér út í sam­fé­lagið allt og þær séu hvati fyrir fram­leið­endur um allan heim að halda áfram að fjár­festa í grænum lausnum og fram­leiðslu á end­ur­nýj­an­legri orku. Þannig minnki hlutur jarð­efn­iselds­neytis smám saman og það sé jákvætt fyrir alla.

Áherslan í loft­lags­málum í heim­inum vegna Par­ís­ar­samn­ings­ins frá 2015 getur aukið eft­ir­spurn eftir upp­runa­á­byrgð­unum á heims­vísu. Á meðan upp­runa­á­byrgðir frá Íslandi eru í boði eru þær gjald­eyr­is­skap­andi fyrir íslenskt sam­fé­lag og um leið tökum við þátt í þessu hvata­kerfi, sem á upp­runa sinn í Kyoto-samn­ingnum.
„Í umhverf­is­stöðlum sam­tím­ans er sífellt meiri krafa um upp­runa­vott­anir og sönnun á virð­is­keðj­una. Við sjáum það í allri fram­leiðslu og raf­orkan er þar ekki und­an­skilin.“

En skaðar sala upp­runa­á­byrgða ímynd Íslands sem land hreinnar orku?
„Við teljum ekk­ert benda til þess,“ segir Páll. „Við getum litið til Noregs í því sam­bandi. Þeir er meðal stærstu fram­leið­enda hreinnar raf­orku í heim­inum og um leið umsvifa­miklir í sölu upp­runa­á­byrgða. Noregur hefur samt jákvæða ímynd og aðdrátt­ar­afl sem land grænnar raf­orku­fram­leiðslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins