„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nýjasta tattú Sollu er stór villikisa

Solla í Gló var að fá sér stórt tattú á hand­legg­inn og ætlar að fá sér fleiri á næst­unni.

Nýjasta tattú Sollu er stór villikisa

Sólveig Eiríks­dóttir, oft­ast kölluð Solla á Gló, fékk sér í sumar stórt tattú á hand­legg­inn og er nú að vinna í að fá sér svo­kallað „sleeve“ en hún var með fleiri tattú á sama hand­legg fyrir. Nýjasta tattúið er bletta­tígur í lit og hún er him­in­lif­andi með útkom­una.

„Þetta byrj­aði eig­in­lega þannig að fyrir tíu árum síðan þá fengum við í fjöl­skyld­unni okkur öll tattú, sem sagt ég, mað­ur­inn minn og tvær dætur mínar. Þá var það fyrsta tattúið mitt,“ útskýrir Solla. Eftir fyrsta tattúið var ekki aftur snúið og Sollu lang­aði í fleiri tattú.

Solla lét húð­flúra sig Íslenzku húð­flúr­stof­unni. „Mig lang­aði alltaf í ermi eða „sleeve“ en vissi ekki alveg hvað ég ætti að fá mér. Þegar maður eld­ist þá hættir maður kannski að vera „spont­ant“ og fer að ofhugsa hlut­ina. En allt í einu fann ég að mig lang­aði í ein­hverja villikisu, svona „leop­ard“. Ég er nefni­lega villikisa í ind­verskri stjörnu­speki og hef alltaf verið hrifin af stórum kisum,“ segir Solla.

Henni þykir mik­il­vægt að hafa ein­hverja hugsun á bak við tattúin sín og þess vegna er hún með nokkur blómatattú á hand­leggnum sem hún tengir við börnin sín og barna­börn. „Mér finnst mik­il­vægt að hafa ein­hverja pæl­ingu á bak við tattúin, bara fyrir mig sjálfa,“ segir Solla sem er hvergi nærri hætt að fá sér tattú. Hún ætlar þó að halda sig bara við hand­legg­ina.

„Hend­urnar eru að virka við mig. Þegar maður eld­ist þá fer sumt annað að krump­ast,“ segir hún og hlær. „Ég er fegin að ég byrj­aði að fá mér tattú seint því ég veit að hend­urnar eru að virka. Ég fer ekki að fá mér tattú á til dæmis bakið eða mag­ann. En ég er með ágæt­is­hendur og það er enn þá hægt að krota á þær,“ segir hún hlæj­andi. „Svo eru lit­irnir svo skærir að þeir duga örugg­lega þangað til ég fer í kist­una.“

Solla er alls ekki hrædd um að hún muni einn dag­inn sjá eftir að hafa fengið sér tattú. „Alls ekki, ég alveg elska að horfa á þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins