„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dauði og djöflar við hvert fótmál

Aðdá­endur þung­arokks­hljóm­sveit­ar­innar Skálmaldar bíða nú í ofvæni eftir fimmtu hljóð­vers­plötu sveit­ar­innar „Sorgir“ sem kemur út 12. októ­ber næst­kom­andi. Fyrsta smá­skífa plöt­unnar, „Sverðið“ er nú komin í spilun á helstu tón­list­ar­veitum og hefur hlotið góðar við­tökur.

Dauði og djöflar við hvert fótmál

Snæbjörn Ragn­ars­son, bassa­leik­ari og texta­höf­undur hljóm­sveit­ar­innar, segir drauga­þema ein­kenna nýju plöt­una sem verði tals­vert frá­brugðin síð­ustu plötu sem kom út árið 2016. „Hún var mjúk og þægi­leg, vöggu­vísur og allt í blóma. Nú kveður við annan tón. Allt kalt, dimmt og sorg­legt; dauði og djöflar við hvert fót­mál. Það var svo­lítið vilj­andi að fara alveg í hina átt­ina núna,“ útskýrir Snæbjörn.

Vin­sældir Skálmaldar hafa farið sívax­andi frá því að Snæbjörn og Björgvin Sig­urðs­son, söngv­ari og gít­ar­leik­ari, smöl­uðu saman nokkrum vinum sínum úr rokk­brans­anum árið 2009. Mark­miðið var fyrst og fremst að hafa gaman af og gefa máski út eina þung­arokks­plötu, til að geta sýnt börnum sínum í fram­tíð­inni hvað pabbar þeirra voru einu sinni svalir. Nú níu árum og bráðum fimm hljóð­vers­plötum síðar eru það ekki aðeins börn Skálmald­ar­manna sem líta upp til þeirra með aðdáun í augum, tug­þús­undir aðdá­enda um gjörvalla Evrópu og lík­lega víðar, fylgj­ast bergnumdir með hljóm­sveit­inni. Og nú fyrir skemmstu fyllti Skálmöld Eld­borg­ar­sal Hörpu fjögur kvöld í röð ásamt Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands og þremur kórum en þetta var í annað sinn sem þessar stór­hljóm­sveitir leiða saman hesta sína.

Snæbjörn segir að það sé ekki alltaf áreynslu­laust að vera í hljóm­sveit sem stundi reglu­lega sam­búð í litlum rútum svo vikum skipti á tón­leika­ferða­lögum um Evrópu, þá sé vin­áttan sterk og spil­a­gleðin hafi aldrei verið meiri, enda skili það sér í hljóð­ver­inu. „Við héngum mikið saman í stúd­íó­inu og unnum hratt. Það hefur alltaf verið gaman að vera í Skálmöld en ekki svona ógeðs­lega gaman síðan við vorum að gera fyrstu plöt­una. Við ein­hvern veg­inn end­ur­fædd­umst þarna, svona stemn­ing­ar­lega séð alla­vega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins