„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bjóða upp á nýstárlega neytendaupplifun í Asíu

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Blámar ehf. flytur út fiskaf­urðir á neyt­enda­markað í Asíu. Fjórar ­versl­un­ar­keðjur í Hong Kong bjóða upp á vör­urnar og mark­aðs­hlut­deild í Kína fer vax­andi, en Blámar er fyrsta íslenska sjávar­út­vegs­fyrir­­tækið sem í sam­starfi við íslenska frum­kvöðla­fyr­ir­tækið EFNI ehf. býður upp á rekj­an­leika­merk­ingar á vörum á neyt­enda­mark­aði í Asíu.

Bjóða upp á nýstárlega neytendaupplifun í Asíu

Ísland er alltaf að kom­ast betur inn á kortið í Asíu en gæði og hrein­leiki er eitt­hvað sem Asíubúar tengja gjarna við Ísland. Þess vegna liggja mikil verð­mæti í því að geta sannað íslenskan upp­runa á vörum okkar,“ segir Valdís Fjöln­is­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Blámars.

Að hennar sögn er Blámar lík­lega fyrsta íslenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið sem selur afurðir sínar milli­liða­laust á neyt­enda­markað í Asíu. „Kína hefur verið að berj­ast gegn röngum merk­ingum á mat­vælum með til­liti til upp­runa og fleiri hluta. Upp–runi vöru er orð­inn gríð­ar­lega mik­il­vægur,“ segir hún og bendir á að van­traust neyt­enda gagn­vart upp­runa­merk­ingum sé orðið útbreitt vanda­mál meðal almenn­ings í Kína. „Kín­verjar eru ein­fald­lega hættir að trúa á upp­runa á þeim vörum sem eru í boði. Þeir upp­lifa svo mikið af föls­unum og rang­merk­ingum,“ útskýrir Valdís en Blámar hefur um nokk­urt skeið leitað leiða til að sanna upp­runa á sínum vörum á ein­faldan og gríp­andi hátt.

Fann lausn­ina hjá ís­lensku frum­kvöðla­fyrir­tæki
Valdís fann það sem hún leit­aði að þegar hún sá kynn­ingu Heiðu Krist­ínar Helga­dóttur, fram­kvæmda­stjóra EFNI ehf. á rekj­an­leika­tækni sem fyr­ir­tækið hefur hannað fyrir vöru­merki sitt Niceland Seafood. Það varð til þess að Blámar og EFNI leiddu saman hesta sína í til­rauna­verk­efni þar sem rekj­an­leika­hug­bún­að­ur­inn er not­aður til að tengja neyt­endur betur við upp­runa fiskaf­urða Blámars á mark­aði í Kína; í gegnum hug­hrif og upp­lifun.

Tekur neyt­endur inn í nýjan heim
Efni hefur hannað for­rit sem ekki aðeins gerir neyt­and­anum kleift að rekja upp­runa vör­unnar nákvæm­lega, allt frá því fisk­ur­inn er veiddur í íslenskri land­helgi og þar til hann er kom­inn í versl­anir, heldur er einnig boðið upp á sjón­ræna upp­lifun. „Vörurnar eru merktar með sér­stökum QR-kóðum sem neyt­and­inn getur skannað með snjall­síma sínum í versl­un­inni. Þar fær hann ekki aðeins stað­fest­ingu á upp­runa heldur einnig ein­stakt ferða­lag með myndum af Íslandi, hreinni íslenskri nátt­úru, brjál­uðum sjó og hreinu lofti. Þetta tekur neyt­and­ann inn í annan heim sem er orð­inn svo stór hluti af mat­ar­inn­kaupum,“ segir Valdís og bætir við að einnig sé hægt að finna hlekki inn á fjöl­breyttar upp­skriftir enda sé íslenskur fiskur, s.s. ýsa, karfi og Atl­ants­hafs­þorskur, mörgum í Asíu fram­andi. Heiða bætir við að QR kóða tækni sé notuð í miklu meira mæli í Asíu en til að mynda í Evrópu og Banda­ríkj­unum og þess vegna séu flestir snjall­símar nú búnir þannig að ekki þurfi sér­stakt app, heldur er hægt að skanna QR kóða með því einu að beina mynda­vél­inni að þeim. „Þetta hefur gjör­breytt mögu­leikum okkar á að nýta þessa tækni og vera fyrst á markað með hag­nýta lausn sem styður við vöru­merkið sem við erum að byggja upp í Banda­ríkj­unum.“

Vilja aðeins það besta
Blámar er fyrsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið á neyt­enda­mark­aði í Asíu með slíkar rekj­an­leika­merk­ingar. „Það ætti að gefa okkur sam­keppn­is­for­skot. Milli­stéttin í Kína er það vel stæð að fólk velur aðeins það besta fyrir börnin sín, fæðu­ör­yggi og holl­usta skiptir þetta fólk mun meira máli en hvað varan kostar. Það er því algjört lyk­il­at­riði að við getum sannað hvaðan vör­urnar okkar koma,“ segir Valdís en tekur fram að enn sé verið að full­þróa kerfið. „Fyrsti gámur­inn með þessum QR-merktu vörum verður sendur út í sept­em­ber og ég er að verða mjög spennt yfir því að sjá hvernig við­tök­urnar og við­brögðin verða.“

Mynd / Heiðdíd Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins