„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ekki í kortunum að flugfélög hætti með Netgíró

Ekki í kortunum að flugfélög hætti með Netgíró
||

Íslenskir ferða­langar hafa haft þann mögu­leika að greiða fyrir flug­far­gjöld hjá WOW air síðan árið 2015 og hjá Icelandair síðan snemma á þessu ári með Netgíró. Í ljósi frétta síð­ustu vikna um bága stöðu flug­fé­lag­anna hefur þeirri spurn­ingu verið velt upp hver rétt­indi við­skipta­vina eru sem greiða fyrir flug­far­gjöld með Netgíró ef allt fer á versta veg og flug­fé­lögin fara í þrot.

Erfiður vetur framundan

Helgi Björn.

Netgíró sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í gær þar sem kom fram að allar vörur og þjón­usta sem greiddar eru með Netgíró falli undir lög um neyt­enda­vernd, sem þýðir að við­skipta­vinir Netgíró fái end­ur­greitt ef flug falla niður, til dæmis vegna gjald­þrots flug­fé­lags.

„Við vildum vera sann­færð og tryggja rétt okkar við­skipta­vina og eyða öllum vafa um laga­lega óvissu sem hefur ríkt í þessu máli. Við hjá Netgíró óskuðum því eftir fleiri en einu lög­fræði­á­liti og á meðan þessi álit lágu ekki fyrir vildum við ekki full­yrða neitt sem við gætum ekki staðið við, en nú hefur þess­ari óvissu verið eytt. Réttur neyt­enda er full­komn­lega tryggður með greiðslum með Netgíró,“ er haft eftir Helga Birni Krist­ins­syni, fram­kvæmda­stjóra Netgíró, í frétta­til­kynn­ing­unni.

Engin ferðatrygging fylgir

Mannlíf hafði sam­band við Guðjón Elmar Guð­jóns­son, þjón­ustu­stjóra Netgíró, og spurði hvort ein­hvers konar við­bragðs­á­ætlun væri fyrir hendi hjá fyr­ir­tæk­inu ef svo færi að flug­fé­lögin færu í þrot.

Guðjón Elmar.

„Við teljum ekki rétt að upp­lýsa um hvort og þá á hvaða sviði sér­stakar við­bragðs­á­ætl­anir eru eða yrðu gerðar en Netgíró er að sjálf­sögðu í stakk búið að bregð­ast við mis­mun­andi aðstæðum á mark­aði,“ segir Guðjón og bætir við að engar fyr­ir­ætl­anir séu uppi hjá Netgíró að hætta að bjóða ferða­löngum uppá að greiða fyrir flug­far­gjöld með Netgíró.

Guðjón gefur ekki upp hve margir hafa nýtt sér þennan mögu­leika síðan WOW air byrj­aði að bjóða uppá hann árið 2015. Þá segir hann að þeir sem nýti sér þennan val­kost þurfi að sjá sjálfir um að kaupa ferða­trygg­ingu.

„Við­skipta­vinir Netgíró greiða ekki nein árgjöld fyrir þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins og þar af leið­andi fylgir ekki ferða­trygg­ing þegar keypt er flug.“

Íslensku flug­fé­lögin: Of stór til að falla

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins