„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hollt pasta á 15 mínútum

Hollt pasta á 15 mínútum
|||||

Heilsu­m­ark­þjálfinn Júlía Magn­ús­dóttir hjá Lifðu til fulls býður upp á ókeypis fyr­ir­lestur í kvöld, mið­viku­dag­inn 22. ágúst, klukkan 20.30. Fyr­ir­lest­ur­inn fer fram á net­inu og því getur hver sem er hlýtt á. Júlía fer yfir víðan völl á fyr­ir­lestr­inum.

„Á fyr­ir­lestr­inum lærir þú ómissandi ráð til að hefja breyttan lífs­stíl, auka ork­una og losna við syk­ur­löngun. Allir sem mæta í beinni fá ókeypis upp­skriftir og sér­stakt hreins­un­ar­próf. Í lokin verður opnað fyrir spurn­ingar á lín­unni svo þú getur spurt mig að því sem þú hefur verið að velta fyrir þér varð­andi heils­una,“ segir Júlía og bætir við að mik­il­vægt sé að skrá sig á fyr­ir­lest­ur­inn þó hann sé ókeypis á net­inu.

„Það eru tak­mörkuð pláss í boði og því um að gera að skrá sig strax. Við höfum haldið þessa fyr­ir­lestra tvisvar til þrisvar síð­ustu ár og það er alltaf fullt á þá. Í fyrra til að mynda skráðu sig um það bil átta hund­ruð manns.“ Hægt er að skrá sig á fyr­ir­lest­ur­inn með því að smella hér.

Galdraefni í léttu pasta

Í til­efni fyr­ir­lest­ur­ins ákváðum við hjá Mannlífi að fá eina holla og nær­ing­ar­ríka upp­skrift hjá Júlíu, sem deilir hér með les­endum fljót­legum pasta­rétt.

„Það kemur flestum á óvart að það sé hægt að finna gott „osta­bragð“ án þess að það inni­haldi mjólk­ur­af­urðir eða sykur. Sósan og rétt­ur­inn sem ég deili hér er vegan og létt­ari í maga en hefð­bundið ostapasta,“ segir Júlía. Í upp­skrift­inni notar hún til dæmis nær­ing­ar­ger, sem hægt er að fá meðal ann­ars í Bónus, Hag­kaupum og Heilsu­hús­inu, og er talið algjört undra­efni.

„Nær­ing­ar­ger er óvirkt ger sem er ekk­ert líkt hefð­bundu bakst­urs­geri. Það er gríð­ar­lega ríkt af B-vítamínum og B-12 sér­stak­lega. B-vítamín getað aukið ork­una yfir dag­inn en engin hætta er þó á því að þú borðir nær­ing­ar­ger að kvöldi til og verðir vak­andi fram­eftir. Hægt er að nota það yfir popp, salöt eða allt sem þú vilt fá gott osta­bragð á á nær­ing­ar­ríkan hátt.“

15 mínútna fettucine „osta“ pasta með stökku blómkáli

Vegan „osta“ sósa:

1 bolli kókos­mjólk
1/2 bolli rif­inn vegan parmesan eða parmesan
1 msk nær­ing­ar­ger
1 hvít­lauks­rif (ég not­aði einn perlu­lauk)
chilli á hnífsoddi
1 tsk dijon
klípa af salti
nokkrir dropar stevia eða kókospálmanektar

Græn­metið:

1 msk olífu­olía
2 hvít­lauks­rif (ég not­aði tvo perlu­lauka)
1/2 blóm­káls­haus
1/2 kúr­bútur
hand­fylli ferskt rós­marín

Borið fram með:

spínati
val­hnetum/furu­hnetum
ferskri stein­selju
sítrón­u­sneiðum
rifnum vegan parmesan eða parmesan

Aðferð:

Setjið öll hrá­efni sósunnar í bland­ara og vinnið þar til silki­mjúkt. Sjóðið vatn í potti og leyfið suðu að koma upp. Bætið pasta út í vatnið, lækkið undir og sjóðið sam­kvæmt leið­bein­ingum á pakka, sirka 6 til 8 mín­útur.

Hitið pönnu. Steikið hvít­lauk, blóm­kál, kúr­bít og krydd­jurtir á pönnu og hrærið í 5 til 7 mín­útur. Hellið sós­unni í pönn­una ásamt past­anu og hrærið örlítið. Leyfið að malla í nokkrar mín­útur.

Berið fram með því sem þið kjósið og njótið!

Hollráð

Ef þú vilt hafa blóm­kálið enn stökk­ara má setja það í ofn­inn við 180°C með örlítið af olíu og salti og pipar í 25 mín­útur. Þá er gott að snúa við blóm­kál­inu eftir sirka 15 mín­útur. Til að flýta fyrir má gera vegan „osta“ sós­una yfir helgi eða kvöldið áður og geyma í kæli. Einnig má frysta sós­una sem ég tel þó ólík­legt að ger­ist þar sem sósan er svo bragð­góð að hún klár­ast yfir­leitt strax.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins