„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hlaupa til minningar um átján ára dreng sem lést úr ofneyslu

Hlaupa til minningar um átján ára dreng sem lést úr ofneyslu
||||

Saga Einars Darra Ósk­ars­sonar, átján ára drengs sem varð bráð­kvaddur á heim­ili sínu þann 25. maí eftir ofneyslu lyfs­ins OxyContin, hefur vakið mikla athygli síð­ustu vikur. Í kjöl­farið var stofn­aður minn­ing­ar­stjóður í hans nafni, sem stendur fyrir og styrkir bar­átt­una #ega­bara­eittlif, sem berst gegn fíkni­efnum, með áherslu á mis­notkun lyfja meðal ung­menna á Íslandi.

Fjöl­margir ætla að hlaupa í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu á morgun til styrktar sjóðnum, þar á meðal fimm ætt­liðir í kven­legg. Það eru þær Pálína Bjarna­dóttir, 92 ára. Sigrún Anna Ein­ars­dóttir, 69 ára. Bára Tóm­as­dóttir, 48 ára. Andrea Ýr Arn­ars­dóttir, 27 ára og Ísabella Rós Pét­urs­dóttir, 5 ára. Fjöl­skylda Einars Darra heit­ins vill með þessu varpa ljósi á það að við Íslend­ingar, þurfum öll að standa saman ungir sem aldnir og í sam­ein­ingu getum við snúið við þess­ari þróun í mis­notkun á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum og öðrum fíkni­efnum. Áheit sem ber­ast þeim og öðrum sem hlaupa til styrktar Minn­ing­ar­sjóðs Einars Darra mun vera vel nýtt í þeim for­varnar verk­efnum sem framundan eru hjá bar­átt­unni #ega­bara­eittlif.

Hér sjást hlaupararnir fimm sem um ræðir.

Unnin með fagmennsku og kærleika í fyrirrúmi

Að sögn Stein­þórs Þór­ar­ins­sonar, verk­efna­stjóra #ega­bara­eittlif, eru mark­mið bar­átt­unar fjöl­þætt; til dæmis að sporna við og draga úr mis­notkun fíkni­efna, með áherslu á lyf og opna umræð­una um mis­notkun lyfja hér á landi. Þá eru mark­miðin líka að auka þekk­ingu almenn­ings á eðli og umfangi mis­notk­unar lyfja og opna umræðu um vöntun á bættum með­ferð­ar­úr­ræðum.

„Til að ná fram ofan­greindum mark­miðum verður unnið í ýmsum verk­efnum sem nú þegar er byrjað að vinna að. Verk­efnin eru að mestu leiti skipu­lögð af for­svars­mönnum Minn­ing­ar­sjóðs Einars Darra, einnig tekur skipu­lags­hópur þátt með ýmsu móti. Skipu­lags­hóp­ur­inn hefur að geyma með­limi frá ýmsum starf­stéttum í sam­fé­lag­inu, er breiður ald­urs­hópur en eigum við það sam­eig­in­legt að vilja öll láta gott af okkur leiða. Öll verk­efnin eru og verða unnin með fag­mennsku og kær­leika í fyr­i­r­úmi,“ segir Steinþór og heldur áfram.

„Fengist hefur veru­legur stuðn­ingur og aðstoð úr öllum áttum úr sam­fé­lag­inu frá gríða­mörgum ein­stak­lingum sem vilja leggja verk­efn­unum lið. Þar á meðal er stór­fjöl­skyldan, vinir, þekktir ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki, félög og fleiri.“

Við eigum bara eitt líf

Þau verk­efni sem eru yfir­stand­andi hjá sjóðnum eru sér­stök arm­bönd og aug­lýs­ingar fyrir téð arm­bönd.

Bleiku arm­böndin eru víða.

„Arm­böndin eru kær­leiks­gjöf frá Minn­ing­ar­sjóði Einars Darra. Stöndum saman og minnum okkur á að við eigum bara eitt líf. Að bera arm­bandið er tákn um sam­stöðu en einnig er það ætlað til að fá fólk, sér í lagi ung­menni til að horfa á arm­bandið og fá þau til að hugsa sig tvisvar um áður en þau mis­nota lyf eða önnur fíkni­efni,“ segir Steinþór og bætir við að mynd­böndin séu í raun vit­und­ar­vakn­ing.

„Ætlað til að fá umræð­una af stað í sam­fé­lag­inu. Kynnir verk­efnið og varpar ljósi á þann hræði­lega atburð þegar Einar Darri lést. Sýnir hversu margir ein­stak­lingar eru á bak við hvert dauðs­fall og bendir á algengi mis­notk­unar á lyfjum hér á landi sem og dauðs­föll tengd því.“

Þá segir hann að ýmis önnur verk­efni séu í vinnslu hjá sjóðnum, bæði í formi for­varna og fræðslu.

Fjöl­margar stjörnur hafa nælt sér í arm­band, þar á meðal stór­söngv­ar­inn Björgvin Hall­dórs­son.

Hér fyrir neðan eru bankaupplýsingar fyrir þá sem vilja styrkja málefnið:

Kennitala: 510718-1510
Reikn­ings­númer: 552-14-405040

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins