„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Misbrestur á eftirliti leiktækja á Íslandi

Ástands­skoðun leik­tækja á leik­völlum er ábóta­vant. Herdís Storgaard sem um ára­bil hefur unnið að slysa­vörnum barna segir að stjórn­völd hafi ekki áhuga á mála­flokknum.

Misbrestur á eftirliti leiktækja á Íslandi
|
Herdís L. Storgaard, for­stöðu­maður Mið­stöðvar slysa­varna barna.

„Þetta er mis­jafnt eftir sveit­ar­fé­lögum. Eftir árlega skoðun á að gera úttekt og laga það sem út af stendur. Þótt slys verði, málið skoðað og nið­ur­staðan sú að hlutum sé ábóta­vant þá er oft lítið gert,“ segir Herdís L. Storgaard, for­stöðu­maður Mið­stöðvar slysa­varna barna.

Ástands­skoðun leik­tækja á að gera einu sinni á ári. Rekstr­ar­að­ilar tækj­anna, leik­skólar og skóla­stjórn­endur, eiga að sinna eft­ir­lit­inu. Lög­gild­ing­ar­stofa hefur eft­ir­lit með því að leik­valla­tæki á mark­aði upp­fylli settar reglur um öryggi en heil­brigð­is­nefndir hafa eft­ir­lit með því að farið sé að ákvæðum reglna um notkun leik­valla­tækja og öryggi leik­svæða. Mis­brestur er á þessu að sögn Herdísar. Hún segir jafn­framt reglu­gerð um leik­tæki og leik­svæði úrelda.

„Dæmi um þetta eru slysin sem urðu vegna lausra fót­bolta­marka og voru algeng á árum áður. Slysin gátu orðið mjög ljót. Börnin fóru á spít­ala, lög­regla kom á stað­inn og skoð­aði aðstæður. En ekk­ert gerð­ist í kjöl­farið.“

„Vanda­málið á Íslandi er að stjórn­völd hafa ekki tekið upp og skil­greint slys. Slys er þegar ein­hver slasar sig. Þá fer ákveðið ferli í gang, sam­kvæmt skil­grein­ingu Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO). Dæmi um þetta eru slysin sem urðu vegna lausra fót­bolta­marka og voru algeng á árum áður. Slysin gátu orðið mjög ljót. Börnin fóru á spít­ala, lög­regla kom á stað­inn og skoð­aði aðstæður. En ekk­ert gerð­ist í kjöl­farið,“ segir Herdís og leggur áherslu á að öðru máli gegni um umferð­ar­slys en þar eru við­ur­lög. Herdís segir engan mun eiga að gera á slysum vegna leik­tækja og slysa í umferð­inni.

„Slys er slys og það er alltaf ein­hver sem er ábyrgur. En vegna þess að slys eru ekki skil­greind þá geta for­eldrar ekk­ert gert þegar börn þegar slasast á leik­tækjum.“

Stjórnvöld áhugalaus

Ástæðuna fyrir þessum slugsa­hætti segir Herdís vera þá að stjórn­völd og fleiri hafi engan áhuga á örygg­is­málum barna. „Ég vann á slysa­deild og sá afleið­ing­arnar af slysum sem börn lentu í. Það voru slys sem áttu ekki að ger­ast ef hlut­irnir væru í lagi. Drukknun barna var til dæmis algeng­asta dán­ar­or­sök þeirra þegar ég byrj­aði fyrir næstum 30 árum en þá drukkn­uðu 3 til 6 börn á hverju ári, flest í sund­laugum. Ég lagði líf og sál í verk­efnið. Örygg­is­mál í sund­laugum voru í molum. Við náðum gíf­ur­legum árangri. Með bættu öryggi í sund­laugum er nú fátítt að börn drukkni. En nú ótt­ast ég að sé tekið að fjara undan mörgum verk­efn­unum. Stjórn­völd hafa ekki áhuga á örygg­is­málum barna og eng­inn vinnur í mála­flokknum nema ég. Það geri ég án styrkja frá hinu opin­bera. Aðeins Sjóvá og IKEA styrkja mig,“ segir Herdís.

______________________________________________________________

    1. KAFLI 14. GR Í REGLUGERÐ UM UM ÖRYGGI LEIKVALLATÆKJA OG LEIKSVÆÐA OG EFTIRLIT MEÐ ÞEIM Brot gegn ákvæðum reglu­gerðar þess­arar varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetn­ingi eða stór­felldu gáleysi. Sé um stór­felld eða ítrekuð ásetn­ings­brot að ræða skulu þau að auki varða fang­elsi allt að fjórum árum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins