„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lára eru níu ára og berst við ólæknandi sjúkdóm: Opnaði búð og safnar fyrir húsi fyrir fjölskylduna

Lára eru níu ára og berst við ólæknandi sjúkdóm: Opnaði búð og safnar fyrir húsi fyrir fjölskylduna
||||||

„Við fáum aldrei frí og þetta er helj­ar­innar bar­átta. Barátta um lífs­gæði barns­ins okkar. Það snýst allt um veik­indin hennar og við reynum að gera okkar besta í þeirri stöðu sem við erum í,” segir Margrét Grjét­ars­dóttir, móðir Bryn­hildar Láru Hrafns­dóttur, eða Láru eins og hún er oft­ast kölluð.

Lára er níu ára gömul, en stuttu eftir að hún kom í heim­inn tóku for­eldrar hennar eftir því að eitt­hvað amaði að stúlkunni. Rétt áður en hún fyllti eitt ár greind­ist hún með sjúk­dóm­inn NF1, sem er afbrigði af neurofi­brom­atosis sjúk­dómnum. NF1 er erfða­sjúk­dómur sem grein­ist að með­al­tali í einu til tveimur börnum á ári á Íslandi. Orsök sjúk­dóms­ins er galli í erfða­efn­inu eða geni sem er hluti af langa armi 17. litn­ings­ins. Í til­felli Láru spil­uðu erfðir þó ekk­ert hlut­verk í því að hún fékk sjúk­dóm­inn, að sögn móður hennar, Mar­grétar.

Ólæknandi, lævís og lúmskur

Lára hefur barist hetju­lega við NF1 sjúk­dóm­inn.

„Þessi sjúk­dómur er genat­ískur tauga­sjúk­dómur, í flestum til­fellum ætt­gengur en í til­felli Láru er hann til kom­inn vegna stökk­breyttra gena í fóst­ur­lífi,” segir Margrét og bætir við að það hafi verið mikið áfall fyrir sig og eig­in­mann sinn, Hrafn Ótt­ars­son, þegar Lára var greind með sjúk­dóm­inn tæp­lega eins árs gömul.

„Auðvitað uxu áhyggjur og kvíði við þessi tíð­indi. Við höfðum aldrei heyrt um þennan sjúk­dóm, en hann er ólækn­andi, lævís og lúmskur og honum er ekk­ert heil­agt. Það er mjög erfitt að kort­leggja hann. Þó svo margar rann­sóknir séu til um sjúk­dóm­inn þá virð­ist hann vera svo breyti­legur að það er engan veg­inn hægt að skoða hann sem eitt­hvað ákveðið ferli. Á manna­máli er auð­veld­ast að lýsa honum þannig að hann birt­ist í nokkrum týpum. Týpan sem Lára er með lýsir sér þannig að sjúk­dóm­ur­inn fram­leiðir æxla­ger sem sest á taugar lík­am­ans og vefur sig utan um taug­arnar þar til þær hrein­lega kremj­ast undan þrýst­ingi frá æxl­inu,” segir Margrét.

Lifir við eilífa verki

Ári eftir að Lára greind­ist með NF1, þegar hún var tveggja ára, fór hún í sína fyrstu krabba­meinslyfja­með­ferð þar sem reynt var að bjarga sjón­inni hennar, þar sem fyrr­nefnt æxla­ger þrýsti svo á sjón­taug­arnar.

„Til að gera þá löngu sögu stutta, með van­líðan, kvíða, hræðslu og bjart­sýni sem svona með­ferðum fylgja, þá byggði daman upp lífs­hættu­legt ofnæmi gegn krabba­meinslyf­inu og var snögg­lega tekin úr með­ferð og henni hætt. Í raun var leiknum þá tapað því sjón­inni hennar hrak­aði mjög fljótt og var hún orðin blind á öðru aug­anu á þessum tíma og ekki með nema 5 til 10 pró­sent sjón á hinu. Hún var sem sagt orðin lög­blind,” segir móðir Láru og bætir við að í dag sé Lára algjör­lega blind.

Blindan er ekki það eina sem háir Láru, en auk hennar er hún greind með ADHD og óhefð­bundna ein­hverfu sem hún hefur þróað með sér vegna álags, svo fátt eitt sé nefnt.

„Hún lifir við eilífa verki sem erfitt er að stjórna,” segir Margrét og heldur áfram. „Hún á við mik­inn jafn­vægis­vanda að stríða, sem er lík­leg­ast út af NF1-æxl­unum sem liggja djúpt utan um stórar taugar í báðum lærum,” segir hún. Þá á Lára erfitt með að nær­ast vegna taugaskaða í heila.

„Hún nær­ist nær ein­göngu í gegnum sondu. Löngunin til að borða er til staðar og oft langar hana í hitt og þetta, en getan til þess að borða er mjög lítil. Ég veit ekki hversu oft hefur verið hlaupið út í búð til að kaupa það sem hana langar í. Heilu mál­tíð­irnar eld­aðar, allt fyrir ekk­ert. Við viljum svo inni­lega að hún geti fengið það sem hún óskar sér,” segir Margrét og brosir með harm í hjarta.

Þekkt fyrir manngæsku á sjúkrahúsinu

Lára kúrir hjá föður sínum eftir lyfja­gjöf.

Eins og áður segir er Lára með æxli í báðum lærum en einnig fimm æxli utan um taugar í höfði og eitt utan um taug neð­ar­lega í baki. Vegna fyrr­nefnds taugaskaða í heila hefur henni farið aftur í tján­ingu og segir móðir hennar að hún sé nær óskilj­an­leg á köflum vegna áhrifa sjúk­dóms­ins. Lára er sem stendur í sinni fjórðu krabba­meinslyfja­með­ferð og þreyt­ist því auð­veld­lega þessa dag­ana, en miklar vonir eru bundnar við nýtt lyf sem Láru er nú gefið í gegnum sondu­hnapp­inn.

„Engin lækn­ing er til við sjúk­dómnum í dag en mikil von er bundin við þau lyf sem hún fær nú. Þessi lyf hafa verið gefin í krabba­meins­með­ferðum fyrir full­orðna og einnig eitt­hvað við heilakrabba­meini í börnum. Nýlega var barni með NF sjúk­dóm­inn gefið þetta lyf með góðum árangri. Þetta er langvar­andi með­ferð og sterk lyf sem gefin eru dag­lega. Sjúk­lingur þarf að vera kom­inn á ákveð­inn stað í NF sjúk­dómnum til að fá lyfið. Lára er á þeim stað og er ein af fáum börnum sem hafa fengið lyfið á heims­vísu. Það, út af fyrir sig, er mjög merki­legt,” segir Margrét. Þrátt fyrir allar þessar hindr­anir segir Margrét að dóttir sín sé með eins­dæmum lífs­glöð.

„Hún fer svo yfir­veguð og jákvæð í gegnum þetta allt saman. Hún er þekkt fyrir það á spít­al­anum að vera svo dásam­leg og góð, þrátt fyrir að líða herfi­lega sjálfri. Hún er alltaf til í að hjálpa og gefa öðrum með sér. Þessi stelpu­hnokki er sú kær­leiks­rík­asta mann­vera sem þú getur hitt og mikil félags­vera,” segir Margrét og bætir við að dóttir sín sé einnig mik­ill dýra­vinur. Fjöl­skyldan er búsett í Svíþjóð, þar sem Lára reynir að vinna bug á áhrifum sjúk­dóms­ins í með­ferð þar sem hestar spila stórt hlut­verk.

„Hún elskar hesta og hefur verið í sér­stakri hesta­með­ferð sem gefur henni mjög mikið. Það er mjög dýr með­ferð en þess virði alla leið. Ekki skemmir svo fyrir að í með­ferð­inni eru not­aðir íslenskir hestar. Þarna fær hún að æfa jafn­vægið ásamt því að upp­lifa heil­brigða úti­veru og nátt­úru,” segir Margrét og bætir við að fjöl­skyldan sé með tvo hunda á heim­il­inu sem Lára sér ekki sól­ina fyrir.

Báðir foreldrar duttu út af vinnumarkaðinum

Sjúk­dómur Láru hefur áhrif á alla fjöl­skyld­una, en hún á tvær eldri systur, Línhildi Sif, sem búsett er á Íslandi, og Bergrúnu Evu, sem býr með for­eldrum sínum og litlu systur í Svíþjóð.

„Að lenda í þessum heimi með barnið sitt skapar mikla örvænt­ingu. Til­finn­ing­arnar eru í ein­hverjum hræri­graut og maður nær alls ekki að greiða úr þeirri flækju. Í raun byrjar maður mjög fljótt að sjá allt svart, en það birtir til í bland sem hjálpar manni að ná and­anum. Þetta er sú staða sem eng­inn for­eldri vill lenda í með barnið sitt. Og maður verður að bíta á jaxl­inn afar oft og fyrst og fremst halda ró sinni. Þetta er eflaust það erf­ið­asta verk­efni sem lagt er fyrir nokkurn mann,” segir Margrét, en þau hjónin fundu fljót­lega fyrir því hve erfitt það er að eiga lang­veikt barn.

Lára er mik­ill lestr­ar­hestur og orðin nokkuð sleip í punkta­lestri.

„Við vorum ekki sjúkra­tryggð og skell­ur­inn lagð­ist á okkur af fullum þunga. Ég komst aldrei almenni­lega út á vinnu­mark­að­inn eftir að Lára fædd­ist. Gömul áföll í bland við að lenda með barnið mitt á þessum vegi, gerði það að verkum að ég brotn­aði undan álag­inu og end­aði á sjúkra­húsi mjög veik. Eftir það hef ég ekki end­ur­heimt heils­una og mun eflaust aldrei gera það. Það er því mitt böl að vera flokkuð sem öryrki í dag. Faðir Láru missti vinn­una vegna mik­illar fjar­veru út af veik­indum Láru og það var ekki auð­velt fyrir hann að leita að nýju starfi í þeirri stöðu sem við vorum í,” segir Margrét og bætir við að áhyggjur af fjár­hagnum hafi bætt gráu ofan á svart í þessum ann­ars hræði­legu aðstæðum.

„Fjár­hag­ur­inn stjórnar svo miklu og að lifa með fjár­hags­á­hyggjum er fjand­inn einn. Við höfum ekki farið var­hluta af því. Við lærðum fljótt að ekk­ert er sjálf­sagt og maður verður alltaf að sníða sér stakk eftir vexti. Oft hefur verið ansi þröngt í búi en við höfum fengið stuðn­ing frá ætt­ingjum, vinum og jafn­vel blá­ó­kunn­ugu fólki. Það hafa mann­eskjur stutt Láru mán­að­ar­lega svo árum skiptir og þannig séð henni fyrir nauð­syn­legum lyfjum, sem eru ekki ókeypis. Fyrir það erum við svo yfir okkur þakk­lát og getum ekki með orðum líst hve mik­ils virði þessi stuðn­ingur er. Það er ómet­an­legt að finna alla þessa hlýju og stuðn­ing í bar­áttu­göngu litlu dóttur okkar sem aldrei tekur enda. Án þess kæm­umst við hrein­lega ekki í gegnum þetta allt saman,” segir Margrét og skýtur inn í að eig­in­maður hennar, Hrafn, hafi sótt sér rétt­indi sem bók­ari og vinni nú sjálf­stætt við það fag, sem hann sníðir eftir þörfum fjöl­skyld­unnar hverju sinni.

Erfitt að flytja frá Íslandi

Fjöl­skyldan flutti til Stokk­hólms, höf­uð­borgar Sví­þjóðar, fyrir þremur árum síðan. Ástæða fyrir flutn­ingum var sú að í Svíþjóð var að finna meiri hjálp fyrir Láru.

Margrét knúsar dóttur sína af öllum mætti.

„Þegar okkur var orðið það ljóst heima á Íslandi að læknar væru orðnir ráð­þrota með hvað skildi gera, og okkur stóð ekki á sama um þær breyt­ingar sem við vorum að upp­lifa með stelpuna okkar, fluttum við til Sví­þjóðar. Ég vil samt taka fram að við fengum aldrei annað en fyrsta flokks þjón­ustu með barnið okkar á Íslandi og heil­brigð­is­starfs­menn þar eru fyrsta flokks. Það er alveg ótrú­legt af hve mik­illi alúð og fag­mennsku læknar, hjúkr­un­ar­fólk og aðrir starfs­menn spít­al­ans vinna sína vinnu miðað við þau kjör sem svelt heil­brigð­is­kerfi býður þeim upp á,” segir Margrét og heldur áfram.

„Við höfum fengið mjög góða þjón­ustu fyrir Láru hér í Svíþjóð og það er það sem við vildum og leit­uðum að. Við skiljum að fámenn þjóð eins og Ísland geti ekki sinnt svona sjald­gæfum sjúk­dómi þannig að okkar eini kostur var að rífa fjöl­skyld­una upp og flytja. Það var ekki auð­velt. Elsta dóttir okkar varð eftir en hún var á þeim stað í sínu námi að hún varð að vera eftir. Það var mjög sárt að skilja hana eftir og það hefur líka verið henni erfitt að fylgj­ast með litlu systur sinni úr fjar­lægð.”

Opnaði búð til að safna fyrir húsi

Fjöl­skyldan er á leigu­mark­að­inum í Svíþjóð og hafa þau flutt þrisvar sinnum á þessum þremur árum, þar sem leigu­samn­ing­ur­inn er yfir­leitt ekki mikið meira en eitt ár. Þessir flutn­ingar hafa reynt veru­lega á Láru, en for­eldrar hennar þurfa að leggja mikið á sig til að finna hús­næði sem mætir hennar dag­legum þörfum. Því ákvað Lára að taka málin í sínar eigin hendur og opn­aði verslun á Facebook með hjálp for­eldra sinna sem heitir ein­fald­lega Lárubúð. Í versl­un­inni selur Lára arm­bönd sem hún perlar sjálf.

„Lárubúð er hug­ar­fóstur hennar Láru,” segir Margrét og brosir. „Á tíma­bili lok­aði hún sig af vegna þess hve slæm áhrif flutn­ingar höfðu á hana. Við höfðum miklar áhyggjur af henni og leið virki­lega illa með henni. En einn dag­inn birti til hjá henni og hún viðr­aði þessa hug­mynd sína. Lára hefur perlað mikið í gegnum þetta allt og kann það vel. Margir hafa viljað kaupa af henni en hún hefur bara gefið frá sér þá muni sem hún hefur unnið að. Það eru ófáir litlir pakkar sem bíða fólks sem við fáum í heim­sókn og for­eldrar og systur hafa einnig notið góðs af gjaf­mildi hennar. Henni er svo mikið í mun að gleðja,” segir Margrét, en ástæða fyrir því að Lára vildi byrja að selja perluð arm­bönd var að safna fyrir útborgun í húsi fyrir fjöl­skyld­una.

„Svona ætlar hún í ein­lægni sinni og hug­rekki að safna fyrir útborgun í húsi. Húsi sem hún gæti flutt í og aldrei flutt aftur úr. Lára er í fullri alvöru að reka þessa sér­stöku kær­leiks­búð og hún trúir því að henni muni takast þetta sér­staka verk­efni, sem er hennar hjart­ans mál.”

For­eldrar Láru hjálpa henni við að perla arm­böndin og geta við­skipta­vinir Láru­búðar óskað eftir litlum orðum sem prýða arm­bandið. Að sögn Mar­grétar eru upp­á­halds orða­sam­setn­ingar Láru til dæmis Fyrir Láru, Ég og Lára og Vinur/Vinkona Láru. Arm­böndin eru pöntuð í gegnum Facebook og kosta 1000 krónur stykkið. Pen­ing­inn leggur fólk inn á svo­kall­aða Perlubók, en reikn­ings­upp­lýs­ingar má sjá hér neðst í grein­inni. Og Lára biður bara um eitt.

Lára ætlar að safna fyrir húsi með því að perla – geri aðrir betur!

„Með hverri pöntun verður að fylgja bið­lund,” segir Margrét og brosir. „Margir vilja styðja hana og okkur tekst bara að gera visst mikið hverju sinni, þannig að við metum alla þol­in­mæði. En þetta hefur verið ynd­is­legur tími sem við mæðgurnar höfum átt saman við þetta föndur og það er svo gott að sjá gleð­ina hjá henni við að vinna. Og hún gleðst ekki síður þegar pabbi hennar fer með stóran bunka af pökkum út á póst­hús. Það er svo gott fyrir alla að hafa eitt­hvað fyrir stafni og það dreifir hug­anum frá þessum veik­indum sem taka svo mik­inn toll.”

Taka einn dag í einu

Við­brögin við Lárubúð hafa farið fram úr björt­ustu vonum fjöl­skyld­unnar og eru þau hálf orð­laus yfir þeim hlý­hug sem þeim er sýndur. Fram­tíðin er óskrifað blað en þessi mikli stuðn­ingur gefur Láru og hennar fólki kraft til að halda bar­átt­unni áfram.

„Við tökum oft­ast einn dag í einu. Við erum alltaf að hugsa um hvað við getum gert betur og það er erfitt að þurfa að púsla öllu saman, alltaf. Við getum ekki gert nein plön, nema mjög útpæld sem oft­ast falla um sjálf sig. Við fjöl­skyldan getum í raun ekki farið saman í neitt nema stuttar ferðir sem eru sniðnar í kringum Láru og hennar getu og þarfir,” segir Margrét. Uppá síðkastið hefur Lára fengið að fara á heim­ili sem kallað er kortis, sem svipar til Rjóð­urs­ins að sögn Mar­grétar. Á heim­il­inu er sér­þjálfað starfs­fólk sem hugsar um Láru, en stefnt er að því að Lára fái að gista þar eina nótt í viku og fimmtu hverju helgi. Margrét segir það mikla hjálp.

„Hún unir sér rosa­lega vel þar og fer glöð, sem hjálpar okkur líka mikið. Lára styrk­ist sjálf og verður sjálf­stæð­ari og heim­ilið hvílist um leið. Við höfum verið svo orku­laus þegar Lára fer á kortis að við liggjum hálf­lömuð hér heima. Annars reynum við að gera hluti sem við getum ekki gert með hana með okkur þegar hún er á kortis, þar sem Lára getur aldrei verið ein.”

Kvartar nánast aldrei

Eins og áður segir lætur Lára engan bil­bug á sér finna í bar­átt­unni við NF1 sjúk­dóm­inn, en Margrét segir einmitt að við­horf dóttur sinnar til lífs­ins sé helsta hvatn­ing fyrir fjöl­skyld­una að halda áfram að berj­ast með kjafti og klóm.

Lára er mik­ill dýra­vinur.

„Okkar helsta hvatn­ing er að sjá þessa dug­legu stelpu okkar fara í gegnum svo erf­iða hluti og nán­ast aldrei beygja af. Hún fer í allt sem á hana er lagt af svo mik­illi jákvæðni og alúð að það er auð­velt að blikna í sam­an­burði við hana. Hún reynir að taka þátt í öllu og ef það tekst ekki þá snýr hún sér bara að öðru. Við heyrum hana nán­ast aldrei kvarta og hún talar svo fal­lega um allt og alla. Það að sjá að allt þetta sé lagt á hana er mjög sárt og stundum óbæri­legt, en hún hvetur okkur til að gera betur og kvarta ekki yfir ein­hverjum smá­munum sem skipta engu máli,” segir Margrét. En hvað hefur fjöl­skyldan lært í skugga þess­ara erf­ið­leika?

„Við höfum að sjálf­sögðu lært að það að fæð­ast heil­brigður er ekki sjálf­sagt og að lifa við góða heilsu er ekki sjálf­sagt. Við höfum lært að eng­inn er óhultur. Barátta okkar með Láru er búin að standa í nær níu ár og er hvergi nærri búin. Fyrir það blasti allt önnur fram­tíð við okkur sem hrundi harka­lega við það verk­efni sem okkur var óvænt treyst fyrir. Við höfum lært að við ráðum engu um dval­ar­stað og að morg­un­dag­ur­inn er óskrifað blað og getur farið alla­vega. Við höfum lært að fjár­hagur stjórnar ofboðs­lega miklu í þessum heimi, og hve mis­skiptur fjár­hagur fólks er. Við höfum kynnst verstu hliðum mann­fólks­ins en sem betur fer hefur kær­leikur og vænt­um­þykja yfir­hönd­ina. Okkur hefur fund­ist við vera ein í heim­inum en einnig eiga fullt af fólki sem hrúgar sér í kringum okkur. Það er svo margt sem maður lærir í svona aðstæðum og hægt væri að þylja upp helj­ar­innar langan lista. Þetta er mikil lær­dóms­för.”

„Aldrei hugsa um ykkur sem annars flokks fólk”

Nú er blaða­maður búinn að halda Margréti á snakki um lífs­hlaup Láru ansi lengi, en áður en hann sleppir henni langar honum að vita hvað Margrét, Hrafn, Lára og systur hennar tvær vilja segja við fólk, bæði full­orðna og börn, í svip­aðri stöðu og þau?

„Líf ykkar er alveg jafn­mik­ils virði og ann­arra. Aldrei hugsa um ykkur sem ann­ars flokks fólk. Ekki vera hrædd við að leita lengra, segja frá og biðja um hjálp. Það biður eng­inn um það hlut­skipti að missa heilsu sína og sumir sem eru það heppnir að fara í gegnum lífið með fulla heilsu ættu að staldra aðeins við og hugsa hve mikið veikir ein­stak­lingar þurfa að leggja á sig hvern ein­asta dag. Við viljum líka hvetja fólk í sömu stöðu að hika ekki við að skoða alla mögu­leika heima og erlendis og leita svo þangað sem það trúir að því líði betur. Hlustið á ykkur og ykkar lík­ama og farið eftir því sem hentar ykkur, ekki ein­hverjum öðrum.”

Með því að smella hér má finna Lárubúð á Facebook og hér fyrir neðan eru reikn­ings­upp­lýs­ing­arnar að Perlu­bók­inni svoköll­uðu, þar sem frjáls fram­lög eru líka vel þegin:

Reikn­ings­númer 322-13-110710
Kennitala: 100109-3950

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins