„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hera talaði um kindur við Peter Jackson

Hera talaði um kindur við Peter Jackson
|

Leik­konan Hera Hilm­ars­dóttir, sem nú gengur undir nafn­inu Hera Hilmar, leikur aðal­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Mortal Engines sem frum­sýnd verður þann 14. des­em­ber næst­kom­andi. Myndinni er beðið með mik­illar eft­ir­vænt­ingu en hún er byggð á bóka­röð eftir Philip Reeve.

Á vef­síð­unni Major Spoilers er birt við­tal við Heru sem tekið var á setti mynd­ar­innar fyrir ári síðan. Í við­tal­inu rifjar Hera til að mynda upp hvernig það var að fara í prufu fyrir hlut­verkið, en einn af hand­rits­höf­undum mynd­ar­innar er sjálfur Peter Jackson, sem leik­stýrði til dæmis mynd­unum um Hringa­drótt­ins­sögu.

Peter Jackson á setti.

Huggulegt að tala um sauðfé

Peter var einmitt einn af þeim sem tók Heru í prufu, ásamt Fran Walsh, öðrum hand­rits­höf­undi og leik­stjór­anum Christian Rivers.

„Já, það var pínu­lítið skrýtið því ég vissi ekk­ert,” segir Hera. „Ég hafði ekki lesið hand­ritið þá. Þannig að þau voru bara að segja mér frá sög­unni og hand­rit­inu og öllu. Og já, svo var Peter raunar ekki þarna þegar við hófum sam­talið. Hann kom seinna. Og við byrj­uðum bara að tala um kindur,” bætir hún við og vísar í fyrr­nefndan Peter Jackson. Þá spyr blaða­maður af hverju þau hafi byrjað að tala um kindur.

„Æi, við vorum að bera saman Ísland og Nýja-Sjáland. Og hann sagði að þau væru með fullt af kindum,” segir Hera, en Peter er eins og margir vita ný-sjá­lenskur.

„Þetta var svalt. Þetta var huggu­legt. Það var gott að þetta sner­ist ekki bara um vinn­una. Þetta sner­ist líka um hvaðan ég var og lífið og kindur. Og ekki bara um aug­ljósa hluti. Það var svalt.”

Lék í eigin áhættuatriðum

Hera talar síðan mikið um gerð mynd­ar­innar Mortal Engines og hlut­verkið sem hún leikur, flótta­mann­inn Hester Shaw. Mikið er um slags­mál í mynd­inni, en í við­tal­inu seg­ist Hera hafa leikið í flestum áhættu­at­rið­unum sjálf.

„Næstum því öllum. Það sem ég gerði ekki var út af tíma­stjórnun þegar þurfti að taka víð skot og við þurftum líka að halda áfram að taka upp eitt­hvað annað. En við höfum næstum því öll leikið í okkar eigin áhættu­at­riðum. Nema það sé of áhættu­samt eða varðar fjár- eða trygg­inga­mál. En ann­ars höfum við gert fullt. Það er mikið um hopp, að hanga, að draga, þú veist. Þannig að þetta hefur verið lík­am­lega krefj­andi en mjög gaman. Það er mikið um hlaup. MIkið um hopp. En það er betra en að bara sitja. Það er frá­bært.”

Hera landar hlut­verki í þáttum frá höf­undi Mad Men

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins