„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mathús Garðabæjar verður stærsti styrktaraðili körfuboltans hjá Stjörnunni

Mathús Garðabæjar verður stærsti styrktaraðili körfuboltans hjá Stjörnunni
|||

„Körfu­bolt­inn er á upp­leið og allt umtal um íþrótt­ina til fyr­ir­myndar þannig að við förum spennt og stolt inn í næsta tíma­bil,” segir Stefán Magn­ús­son, eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Mathús Garða­bæjar.

Mathúsið verður stærsti styrkt­ar­að­ili körfu­bolta­starfs Stjörn­unnar á kom­andi leik­tíð og munu heim­kynni körfu­bolt­ans í Garðabæ, sjálfur Ásgarður, bera nafnið Mathús Garða­bæjar höllin. Mathúsið hefur verið einn af stærri styrkt­ar­að­ilum kvenna- og karla­körfu­bolta í bænum en Stefán segir að nú hafi verið komið að því að taka skrefið til fulls.

„Körfu­bolta­deild Stjörn­unnar fagnar 25 ára afmæli í vetur. Það er verið að kynna nýja bún­inga og svo er komið nýtt gólf á höll­ina. Okkur fannst þess vegna kjörið að höllin fengi líka almenni­legt nafn. Við ákváðum því að taka þetta alla leið í ár og taka þetta stóra skref. Núna erum við komin með nafnið á höll­ina og erum mjög spennt fyrir fram­tíð­inni, sem er björt í körfu­bolt­anum í Garðabæ. En fyrst og fremst er ég stoltur að styðja við bakið á svona frá­bæru liði,” segir Stefán.

Dögurð í Garðabæ.

Athvarf á milli leikja

Stefán æfði sjálfur körfu­bolta á unga aldri og hefur fylgst grannt með gangi Stjörn­unnar í íþrótt­inni síðan hann flutti í Garðabæ fyrir fjórtán árum síðan. Fyrir tveimur árum opn­aði hann Mathús Garða­bæjar og það kætir hann mjög að körfu­bolta­iðk­endur í bænum líti á veit­inga­húsið sem sitt athvarf á milli leikja.

„Liðin og þjálf­ar­arnir koma alltaf út á Mathús eftir leiki til að greina þá, í stað­inn fyrir að fara bara heim. Þetta þéttir hóp­inn gríð­ar­lega. Þá hitt­ast hóp­arnir líka í brunch hér um helgar þannig að liðin gera meira saman utan vall­ar­ins og hafa hér stað til að hitt­ast á og ræða málin,” segir Stefán.

Tekið eftir Mathúsinu

Vel­gengni Mat­húss­ins er í raun ótrú­leg, en stað­ur­inn hefur ekki aðeins fest sig í sessi sem hverf­is­staður þar sem íbúar hitt­ast og njóta, heldur segir Stefán að fólk utan Garða­bæjar sæki stað­inn líka stíft. Stefán segir að hann hafi verið hepp­inn með frá­bært starfs­fólk, en mat­reiðslu­meist­arar Mathúss Garða­bæjar eru þeir Fannar Vern­harðs­son, fyrr­ver­andi yfir­kokkur á Vox og með­limur kokka­lands­liðs­ins, og Garðar Aron Guð­brands­son, sem einnig starf­aði á Vox um tíma.

Fannar og Garðar.

„Þessir tveir meist­ara­kokkar stjórna eld­hús­inu okkar og sjá um að mat­reiða, ásamt öðru frá­bæru starfs­fólki okkar, sívin­sæla rétti okkar á borð ánægðra við­skipta­vina. Við hönnun stað­ar­ins var mikið lagt upp með að vera fjöl­skyldu­vænn staður og skapa umhverfi þar sem nota­legt er að gera vel við sig í mat og drykk,” segir Stefán. Hann bætir við að það sé ýmis­legt sem orsaki þessar vin­sældir stað­ar­ins, til dæmis veg­legur brunch um helgar. Hann er jafn­framt viss um að fjöl­skyldur líti á stað­inn sem góðan stað fyrir gæða­stundir, enda mikið lagt upp úr því að börn sem heim­sæki stað­inn hafi eitt­hvað fyrir stafni, til dæmis í sér­hönn­uðu krakka­her­bergi með litlum bíó­sal.

„Hér geta for­eldrar klárað kaffið sitt í róleg­heitum og þurfa ekki að hlaupa eftir börn­unum. Ég kann­ast sjálfur við að drekka ófáa, kalda kaffi­boll­ana, ver­andi faðir þriggja drengja,” segir Stefán og hlær. „Svo er líka þægi­legt að fá bíla­stæði beint fyrir framan stað­inn og þessi heim­il­is­lega stemmn­ing sem lætur fólk slaka vel og lengi á.”

Við þetta má bæta að frítt er fyrir börn yngri en tólf ára í brunch næstu helgi.

Huggu­legt á Mathúsi Garða­bæjar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins