„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eldvörpur og reyksprengjur í Laugardalnum

Eldvörpur og reyksprengjur í Laugardalnum
||

Aðeins nokkrir dagar eru þar til goð­sagna­kennda rokksveitin Guns N’ Roses stígur á stokk á Laug­ar­dals­velli á einum stærstu tón­leikum Íslands­sög­unnar, en tón­leikar sveit­ar­innar eru 24. júlí næst­kom­andi.

Nú er allt farið á fullt við að und­ir­búa tón­leik­ana og hefur starfs­fólk nú þegar haf­ist handa við að leggja tíma­bundið gólf yfir sjálfan völl­inn til að vernda grasið á meðan á tón­leik­unum stendur, að sögn tón­leika­hald­ara.

Allt á fullu í Laug­ar­dalnum.

Um 160 manns koma að und­ir­bún­ingnum sem tekur um eina viku. Um er að ræða 56 gáma af varn­ingi auk hund­rað vöru­bíla sem voru full­hlaðnir af græjum. Friðrik Olafsson, skipu­leggj­andi tón­leik­anna, fylgist vel með gangi mála og.

„Búnaður fyrir sviðið sjálft er ná að mjakast inn á Laug­ar­dals­völl­inn. Full­byggt verður sviðið 65 metra breitt og 22 metrar þar sem það rís hæst. Þrír risa­skjáir koma til með að sýna áhorf­endum hvert ein­asta smá­at­riði sem fram fer, sá stærri, sem er fyrir miðju sviðs­ins, er 18 metrar að breidd og 9 metrar að hæð, en á vængjum sviðs­ins er að finna skjái sem eru heldur ekk­ert slor, eða 12 metrar að breidd og 9 metrar að hæð,“ segir hann og bætir við að hljóð­kerfið sé líka mjög til­komu­mikið.

Sjá einnig: Guns N’ Roses rýfur millj­arða múr­inn.

„Hljóð­kerfið fyrir tón­leik­ana er af gerð­inni JBL Pro frá banda­ríska fyr­ir­tæk­inu Harman en einnig njóta tón­leik­arnir aðstoðar frá HljóðX. Þetta er öfl­ug­asta hljóð­kerfi sem sett hefur verið upp á Íslandi með rúm­lega 100 hátöl­urum og fjórum „delay“-turnum sem tryggja jafnt og þétt hljóð um allan Laug­ar­dals­völl.

Síðan má ekki gleyma öllum eld­vörp­unum og reyk­sprengj­unum, ásamt ógleym­an­legri ljósa­sýn­ingu. Þetta verður bara geggjað.“

Hér fyrir neðan má sjá tölvu­gerða teikn­ingu eftir Tómas Pét­urs­son þar sem sjá má stærð­ar­hlut­föllin eins og þau munu blasa við tón­leika­gestum á þriðju­dag:

Tón­leik­arnir fara fram þriðju­dags­kvöldið 24. júlí og opna hliðin klukkan 16.30. Tyler Bryant & the Shakedowns hefja upp­hitun um kl. 18 áður en íslenska stór­sveitin Brain Police tryllir lýð­inn. Guns N’ Roses stíga á svið um klukkan 20 og má búast við mik­illi keyrslu í rúmar þrjár klukku­stundir.

Sjá einnig: Guns N’ Roses vilja fleiri Íslend­inga á tón­leik­ana.

Enn eru eftir örfáir miðar á tón­leik­ana, en þá er hægt að kaupa á vef­síðu tón­leika­hald­ara, show.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins