„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fyrsta Guns N’ Roses spurningakeppnin í sögu íslenska lýðveldisins

Fyrsta Guns N’ Roses spurningakeppnin í sögu íslenska lýðveldisins
|

„Árið 1988 fór amma með mig í plötu­búð og leyfði mér að velja kassettu. Ég heill­að­ist að umslag­inu, hlust­aði svo ekki á annað næstu daga, vikur mán­uði og jafn­vel ár. Er enn að hlusta. Þetta hefur verið upp­á­halds­bandið mitt síðan,“ segir fjöl­miðla­mað­ur­inn Andri Freyr Við­ars­son um hvaðan ást hans á sveit­inni Guns N’ Roses kemur.

Andri hefur verið aðdá­andi Guns N’ Roses síðan hann var smá­polli.

Andri blæs til Guns N’ Roses spurn­inga­keppni á Skúli Craft Bar í kvöld, mið­viku­dags­kvöldið 11. júlí, ásamt félaga sínum, Birni Árnasyni. Að sjálf­sögðu verður ekk­ert annað spilað en slag­arar rokksveit­ar­innar á meðan á keppn­inni stendur, og jafn­vel eitt­hvað fram­eftir, og lofar Andri sann­kall­aðri para­dís­ar­stemn­ingu.

„Fólk má búast við fyrstu Guns N’ Roses spurn­inga­keppn­inni í sögu íslenska lýð­veld­is­ins, góðri stemn­ingu, frá­bærri tón­list og eðal bjór,“ segir hann og bætir við að gestir þurfi alls ekki að vera for­fallnir aðdá­endur sveit­ar­innar til að spreyta sig á spurn­ing­unum.

„Það eru spurn­ingar fyrir alla þarna og svo líka fyrir nör­dana, en fyrst og fremst verður þetta skemmti­legt.“

Sjá einnig: Krakkar hlusta á Guns N’ Roses í fyrsta sinn: „Þetta er bara of hávært”.

En af hverju heil spurn­inga­keppni til­einkuð einni hljóm­sveit?

„Það er bara löngu orðið tíma­bært og ekki skemmir fyrir að þeir eru vænt­an­legir til lands­ins á næstu dögum,“ segir Andri en Guns N’ Roses liðar spila fyrir Íslend­inga á Laug­ar­dals­velli þann 24. júlí næst­kom­andi. Andri ætlar að sjálf­sögðu ekki að láta sig vanta á þá tón­leika, en hann hefur þrisvar sinnum áður séð hljóm­sveit­ina á tón­leikum. En hve spenntur er hann fyrir Íslands­tón­leikum sveit­ar­innar á skal­anum 1 til 10?

„Hverslags spurn­ing er þetta? 18!“

Alltof mörg uppáhaldslög

Þeir sem bera sigur úr býtum í spurn­inga­keppn­inni í kvöld geta gengið í burtu sáttir með upp­færslu á tón­leika­mið­anum sínum í sér­stakan VIP miða, inn­eign í húð­flúr hjá Sölva Dún og inn­eign á Skúla Craft Bar. Andri er í óða­önn að leggja loka­hönd á spurn­ing­arnar þegar blaða­maður Mannlífs nær á hann, en það er ómögu­legt að sleppa þessum knáa fjöl­miðla­manni án þessa að spyrja hann út í sín upp­á­halds­lög með sveit­inni.

„Ég get ómögu­lega nefnt upp­á­halds­lögin. It´s so easy, Think about you, One in a million, Coma, Locomotive, Move to the city, Patience… Ég get í raun haldið áfram í allan dag.“

Hér er svo hægt að sjá við­burð kvölds­ins á Facebook, sem byrjar stund­vís­lega klukkan 20.00.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins