„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Túrnælur teiknaðar í beinni: Kabarettdrottning safnar fyrir Evróputúr

Túrnælur teiknaðar í beinni: Kabarettdrottning safnar fyrir Evróputúr
||||

„Söfnun styrkja gengur vel. Ég er komin með and­virði þriggja leigu­bíla frá gisti­stað að giggi sem er vel af sér vikið,” segir kab­ar­ett­drottn­ing Íslands, Margrét Erla Maack.

Margrét safnar nú styrkjum fyrir Evr­óputúr, fullan af fjörðum, gleði og kab­ar­etttöfrum, en þeir sem styrkja fjöl­lista­kon­una fá að launum fal­legar túr­nælur með burlesque-bomb­una í aðal­hlut­verki. Lista­verkin á næl­unum voru teiknuð af Rán Flygenring, en Rán vipp­aði teikn­ing­unum upp á sýn­ingu með Reykja­vík Kabarett.

Hér eru túr­næl­urnar umtöl­uðu.

Þeir sem styrkja Margréti geta valið um tvenns konar nælur, eða styrkt hana aðeins meira og fengið báðar næl­urnar. Margrét segir í sam­tali við Mannlíf að flestir styrkj­endur velji báðar næl­urnar og bætir við að fram­lögin fari lík­leg­ast meðal ann­ars í að næra þreyttan en glaðan túr­verja.

Hér má sjá fyr­ir­mynd­ina að annarri næl­unni, atriði þar sem Margrét skreytti sig með túr­töppum og hristi sig hressi­lega.
„Þegar ég ferð­ast er stór hluti af upp­lifun­inni að borða, og ætli nælu­sjóð­ur­inn fari ekki í það að ein­hverju leyti,” segir Margrét.

Gógó Starr kemur með

Áhuga­samir þurfa að hafa hraðar hendur því söfn­un­inni lýkur á mið­nætti sunnu­dags­ins 8. júlí. Tveimur dögum síðar, eða þann 10. júlí, er Margrét flogin af landi brott. Kab­ar­ett­t­úr­inn hefst í Helsinki, höf­uð­stað Finn­lands, þann 12. júlí og heim­sækir hún síðan Kaup­manna­höfn, Gauta­borg, aftur Kaup­manna­höfn, Liverpool, Edinborg, Leeds og Osló, en stoppið í höf­uð­borg Noregs er þann 24. ágúst og það síð­asta í túrnum. Margrét segir þó að fleiri staðir gætu bæst inn á leið­inni en með henni í för verður dragund­rið Gógó Starr.

„Við ferð­umst með alls konar skemmti­at­riði og dettum inn í kab­ar­ett­sýn­ingar víðs vegar. Svo við erum ekki að ferð­ast með heila sýn­ingu, heldur njótum góðs af sýn­ingum vina okkar sem eru búin að koma sér upp aðdá­enda­hópi,” segir Margrét.

Hin nælan er inn­blásin af þessu fjaðra­hafi Mar­grétar.

Mikið maus að pakka

Eins og þeir sem hafa mætt á sýn­ingar Mar­grétar, hvort sem það er með Reykja­vík Kabarett eða í hinum fjöl­mörgu veislum og við­burðum sem hún hefur stýrt síð­ustu miss­eri, vita að hennar aðals­merki eru mik­il­feng­legir bún­ingar og alls kyns auka­hlutir sem koma á óvart. Því verður blaða­maður að spyrja: Hvernig pakkar maður fyrir svona ferða­lag?

„Það er mikið maus að pakka fyrir svona. Tón­list­ar­menn hafa lengi notið góðs af vel­vild flug­fé­laga upp á far­angur að gera. Við Gógó erum í sam­starfi við WOW sem hafa verið mjög lið­leg og skiln­ings­rík á far­ang­urs­heim­ild og við­kvæmum bún­ingum og þeirra fram­lag munar mjög miklu að gera ferða­lagið að veru­leika,” segir Margrét.

Hægt er að styrkja Margréti með því að smella hér.

Mynd af rauð­klæddri Margréti / Kaspars Bekeris
Aðrar myndir / Lilja Draum­land

Rauð­klædda konan.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins