„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Í heimsreisu í eitt ár með tvö lítil börn: „Lífið er of stutt fyrir efasemdir”

Í heimsreisu í eitt ár með tvö lítil börn: „Lífið er of stutt fyrir efasemdir”
|||||

„Það var í októ­ber á sið­asta ári sem Álf­heiður henti fram þess­ari klikk­uðu hug­mynd að hætta í vinnum, leigja út íbúð­ina og fara í heims­reisu í heilt ár. Ég var ekki lengi að sam­þykkja þessa hug­mynd og sama kvöld vorum við farnar að plana,” segir Eva Dögg Jaf­ets­dóttir.

Fjöl­skyldan á góðri stundu.

Hún og eig­in­kona hennar, Álf­heiður Björk Sæberg, ásamt tveimur börnum þeirra, Sindra Sæberg Evusyni, 4ra ára og Söru Sæberg Evu­dóttur, 2ja ára, ákváðu að kveðja lífið á Íslandi í heilt ár og flakka um heim­inn. Heims­reisan hófst 26. júní síð­ast­lið­inn og var Asía fyrsta heims­álfan sem varð fyrir val­inu, nánar til­tekið Taíland.

Gróft plan til áramóta

„Við fórum í brúð­kaups­ferð til Tælands 2011 og elskuðum landið, menn­ing­una, mat­inn og fólkið. Því fannst okkur til­valið að byrja þar,” segir Eva, en fjöl­skyldan er núna stödd í sjar­mer­andi borg­inni Chiang Mai í Norður-Taílandi, sem jafn­framt er stærsta borgin í þessum lands­hluta. Fjöl­skyldan ætlar að dvelja í mánuð í Taílandi og fljúga þaðan til Víetnam. Síðan er planið að heim­sækja Japan, Fil­ipps­eyjar, Kambódíu, Suður-Taíland, Síngapor og Balí – í þess­ari röð. Eftir það er fram­tíðin óráðin.

„Við höfum lagt upp gróft plan til ára­móta, bókað nokkur flug, gist­ingar og þess háttar en okkur finnst mik­il­vægt og spenn­andi að vera sveigj­an­legra og opnar fyrir tæki­færum á leið­inni. Eftir Balí vitum við svo sem ekk­ert hvað við gerum. Kannski ferð­umst við áfram um Asíu eða skiptum alfarið um heims­álfu. Lífið er ævin­týri og við ætlum að upp­lifa það.”

Aðalmálið að fá ekki bakþanka

Eins og gefur að skilja krefst mik­ils und­ir­bún­ings að leggja í slíka för, sér­stak­lega með tvö börn á leik­skóla­aldri með í för.

„Skipu­lags­ferlið er langt og strangt og það þarf að huga að mörgu. Aðal­málið er að fá ekki bak­þanka, en við höfðum einmitt lesið um það og vorum með­vit­aðar um þá stað­reynd. Að halda sig við planið og hella sér út í djúpu laug­ina,” segir Eva og bætir við að margir tímar hafi farið í að und­ir­búa för­ina með inter­netið að vopni.

„Það er erfitt að skipu­leggja nákvæm­lega hvert skal halda og hvernig ferða­leiðin á að vera en eftir all­margar klukku­stundir á ver­ald­ar­vefnum og mikla rann­sókn­ar­vinnu komumst við að grófri nið­ur­stöðu hvað myndi henta okkur og héldum okkur við hana.”

Seldu allt sem þær gátu

Systk­inin Sindri og Sara í hit­anum í Taílandi.

Svo eru það auð­vitað pen­inga­málin, en mik­il­vægt er að fylgj­ast vel með öllum fjár­út­látum á ferð­inni, en ekki síður áður en haldið er af landi brott í svona langa ferð. Eva og Álf­heiður gripu til ýmissa ráða til að hafa efni á þess­ari ævin­týra­för.

„Við reyndum að selja allt sem við gátum selt til að afla auka­tekna, tókum að okkur auka­vinnur og spöruðum hverja ein­ustu krónu. Við vissum líka vel að Asía er tals­vert ódýr­ari en Íslandið góða. Við skelltum íbúð­inni á leigu og von­umst til að tekj­urnar af henni eigi eftir að fleyta okkur eitt­hvað áfram. Við ætlum að passa pen­ing­inn vel og skipu­leggja útgjöldin í reis­unni. Það finnst okkur skemmti­leg áskorun og auð­vitað mik­il­vægt ef við ætlum að vera í ein­hvern tíma,” segir Álf­heiður. Þær reyna líka að halda far­angri í algjöru lág­marki.

„Við ferð­uð­umst út með eina tösku og hand­far­ang­urstösku en eftir vel ígrund­aðar pæl­ingar þá höfum við ákveðið að skipta yfir í bak­poka. Við ætlum að halda far­angri í lág­marki og reyna að kom­ast af með lítið.”

En hvernig tóku ætt­menni og vinir fjöl­skyld­unnar í heims­reis­una?

„Það hafa verið skiptar skoð­anir hjá fólk­inu í kringum okkur og auð­vitað efa­semdir sem plant­ast í hug­anum: Hvað erum við að pæla? Eigum við ekki bara að skella okkur í tveggja vikna sól­ar­landa­ferð í stað­inn? Getum við þetta? Viljum við stökkva svona langt út fyrir þæg­inda­hring­inn? Og svarið er allan dag­inn: Já. Við getum þetta og ætlum að gera þetta. Lífið er of stutt fyrir efa­semdir.”

Menning, lærdómur, skemmtun og samvera

Lítið hefur reynt á nánar sam­vistir fjöl­skyld­unnar enn sem komið er, enda er þessi reisa rétt að byrja og enn eins og hefð­bundið sum­ar­frí. Eva segir að reisan eigi eflaust eftir að reyna á en að sama skapi styrkja fjöl­skyldu­böndin.

„Auðvitað mun þetta vera við­brigði og jafn­vel álag á fjöl­skyld­una. Að fara úr hvers­dags­leik­anum í svona mikla sam­veru í algjör­lega nýjum aðstæðum, en við erum mjög opnar í okkar sam­skiptum og með­vit­aðar um þá stað­reynd að stundum þarf maður tíma fyrir sjálfan sig og við ætlum að gera allt í okkar veldi til að láta ekk­ert verða ósagt. Við elskum að vera saman sem fjöl­skylda en allir þurfa sinn tíma líka. Þetta mun styrkja okkar fjöl­skyldu­bönd og vin­áttu og við munum læra svo ótal­margt. Við ætlum ekki að láta þessa reisu verða að margra mán­aða sól­ar­landa­ferð með brjál­aðri afþr­ey­ingu upp á hvern ein­asta dag. Auðvitað ger­ist það eflaust að sjálfs­dáðum svona fyrstu vik­urnar en svo er draum­ur­inn að þetta verði að lífs­stíl. Við ætlum að leggja upp með fjórar megin áherslur sem við ætlum að hafa til hlið­sjónar í ferð­inni, en þær eru; menn­ing, lær­dómur, skemmtun og sam­vera.”

Lífið er ævin­týri.

Misstu næstum því af fluginu

Taí­lend­ingar elska börn.

Er eitt­hvað fyndið eða sér­kenni­legt sem fjöl­skyldan hefur lent í hingað til?

„Við munum án efa lenda í ýmsum óförum, en það sem komið er ber kannski hæst þegar við vorum næstum því búin að missa af flug­inu okkar til Taílands, en við áttum þá bara tutt­ugu mín­útur til að tjékka okkur inn,” segir Álf­heiður og hlær. „Hér úti í Tælandi eru börnin algjörar stór­stjörnur og allir vilja snerta þau og taka myndir. Við höfðum einmitt lesið okkur til um það og eflaust verður þetta þreyt­andi til lengdar en enn sem komið er er þetta bara krútt­legt og skemmti­legt,” bætir hún við. Þær Eva hafa einnig í huga að kanna aðstæður hinsegin fólks í hverju landi þar sem þær eru sjálfar hinsegin.

„Verandi tvær konur með börn, eða svokölluð hinsegin fjöl­skylda, þurfum við að skoða vel og vand­lega hvernig hvert land tekur okkur og þær hættur sem kunna að skap­ast ein­ungis út frá þess­ari stað­reynd. Öryggi okkar og sér­stak­lega barn­anna okkar eru að sjálf­sögðu i for­gangi. Við höfum ekki áhuga á að heim­sækja lönd þar sem við erum óvel­komnar eða illa séðar. Að ferð­ast með tvö ung börn á eftir að vera erfitt og mikil áskorun en við hlökkum til að takast á við þetta.”

Lífið er núna

Áhuga­samir geta fylgst með ferðum fjöl­skyld­unnar á Snapchat og Instagram undir nafn­inu worldtravelmoms. Einnig halda þær úti heima­síð­unni worldtravelmoms.com.

„Við ákváðum að opna okkur á sam­fé­lags­miðlum og leyfa öðrum að njóta með okkur. Vonandi getum við verið hvatn­ing fyrir aðra eins og við fengum hvatn­ing­una til að skella okkur í þetta,” segir Eva og Álf­heiður tekur í sama streng. Þær geta ekki beðið eftir að sjá hvert fram­tíðin leiðir þær og börnin þeirra tvö.

„Við erum ótrú­lega spenntar fyrir þessu ævin­týri okkar. Lífið er núna og við ætlum að njóta þess.”

Þreyttir ferða­langar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins