„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég, sem barn, átti að njóta vafans, en það var hann sem naut vafans“

„Ég, sem barn, átti að njóta vafans, en það var hann sem naut vafans“
||||

„Per­sónu­lega finnst mér ég hafa fengið þá stað­fest­ingu að ég hafi sagt og gert allt satt og rétt. Sú nið­ur­staða að það leiddi ekki til sak­fell­ingar er bara fárán­legt,” segir Margrét Ásgerður Þor­steins­dóttir.

Margrét var fimmtán ára þegar brotið var á henni af lög­reglu­manni, að hennar sögn, í bænum sem hún bjó í úti á landi. Maðurinn var náinn vinur fjöl­skyld­unnar. Málið fór fyrir hér­aðs­dóm þar sem mað­ur­inn var sýkn­aður. Málinu var áfrýjað til Hæsta­réttar þar sem það var sent aftur í hérað því dóm­arar töldu að málið hefði ekki verið fylli­lega rann­sakað. Í hér­aðs­dómi í annað sinn var mað­ur­inn sak­felldur og dæmdur í sex mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi. Þegar mál­inu var síðan áfrýjað á ný til Hæsta­réttar var hann sýkn­aður, þar sem hann neit­aði alfarið sök, þó að tekið væri fram í dóms­úr­skurði að fram­burður Mar­grétar þætti trú­verð­ugur. „And­spænis fram­burði A [innsk. blaða­manns: Mar­grétar], sem met­inn hefur verið trú­verð­ugur, stendur afdrátt­ar­laus neitun ákærða,“ stendur orð­rétt í dómnum.

Lög­reglu­mann­inum var vikið úr starfi meðan á mál­inu stóð en fékk aftur vinn­una eftir að hann var sýkn­aður. Hann starfar enn í lög­regl­unni.

„Þar káfaði hann á mér“

Margrét er búsett í Glasgow þar sem hún klárar masters­nám í heil­brigð­is­verk­fræði.

Blaða­maður mælir sér mót við Margréti á Skype þar sem hún er búsett í Glasgow og klárar þar masters­nám í heil­brigð­is­verk­fræði við Strathclyde-háskóla. Hún er nú í starfs­þjálfun í London þar sem hún freistar þess að landa starfi hjá einum af stærstu fjár­fest­inga­bönkum í heimi. Tæki­færið er stórt og pressan mikil, en Margrét tekur því með stóískri ró, enda trúir hún á að það þurfi að stökkva á öll tæki­færi sem ber­ast með opnum hug. Miklar líkur eru á að hún fái starfið, og kemur það for­eldrum hennar, Hrefnu Ara­dóttur og Þor­steini K. Jónssyni, ekki á óvart. Þau eru við­stödd Skype-fund­inn okkar, Margréti til halds og trausts og er tíð­rætt um hve mik­ill afburð­ar­nem­andi hún hafi verið í skóla. Því til stuðn­ings nefna þau til dæmis að Margrét hafi tekið fyrsta árið í fram­halds­skóla á meðan hún var að klára 10. bekk grunn­skóla. Það ár dundi áfall yfir fjöl­skyld­una sem hún hafði aldrei séð fyrir.

„Þetta var fyrsti föstu­dag­ur­inn í maí árið 2010. Ég veit ekki af hverju ég man það en þetta var fyrsti föstu­dag­ur­inn í maí,“ byrjar Margrét. „Ég hafði ákveðið að fara snemma út að hlaupa með strák­unum og fara síðan á fót­bolta­æf­ingu. Við vorum nokkrar stelpur sem höfðum æft með strák­unum mið­viku­dag­inn áður og þennan föstu­dag var komið að annarri æfingu. Við ætl­uðum að hitt­ast klukkan sex um morg­un­inn. Ég flýtti mér á stað­inn og var því mætt til­tölu­lega snemma,“ segir Margrét, en ákveðið var að hitt­ast heima hjá lög­reglu­manni í smá­bænum, manni sem var náinn vinur fjöl­skyldu Mar­grétar.

„Þegar ég mætti stóð hann fyrir utan húsið með kaffi­bolla. Við fórum inn og vorum tvö ein í þvotta­hús­inu, eflaust bara í nokkrar mín­útur. Þar káf­aði hann á mér. Hann káf­aði á píkunni á mér og rassi og sagði svo að ég væri mjög flott. Síðan stakk hann putt­anum upp í sig. Svo fór hann inn í hús og kom til baka með bita af ban­ana sem hann bauð mér. Ég hef varla borðað ban­ana síðan þá. Það er mjög spes hlutur sem situr í mér. Í hvert ein­asta sinn sem ég sé ban­ana fæ ég hroll. Svo komu hinir krakk­arnir og við fórum út að hlaupa,“ segir Margrét þegar hún lítur til baka.

„Við hlupum ábyggi­lega tvo til þrjá kíló­metra. Við hlupum hring um bæinn. Það eina sem ég hugs­aði allan tím­ann var hvort ein­hver væri á lög­reglu­stöð­inni ef ég hlypi þangað. Hann keyrði á eftir okkur á bíl og ég hugs­aði líka að hann myndi eflaust ekki ná mér ef ég hlypi þar sem leiðin var þannig á lög­reglu­stöð­ina. Við hlupum áfram og kláruðum æfing­una fyrir framan grunn­skól­ann. Ég sá lög­reglu­stöð­ina þaðan en það sem stopp­aði mig var að hann var í lögg­unni. Var hann kannski á vakt? Yrði þá eng­inn inni á löggu­stöð­inni ef ég færi þangað?“ útskýrir Margrét, en þar sem atvikið gerð­ist í smábæ úti á landi var í raun engin við­vera á lög­reglu­stöð­inni alla jafna heldur aðeins lög­reglu­maður á vakt.

Hélt að hún myndi deyja

Í fram­hald­inu tóku krakk­arnir létta fót­bolta­æf­ingu áður en þau fóru heim til að taka sig til fyrir skól­ann, að sögn Mar­grétar.

„Þá sagði hann strák­unum að hlaupa heim en að hann ætl­aði að skutla okkur stelp­unum. Mér fannst hann fara öfugan hring þannig að ég var sein­ust úr bílnum. Hann keyrði fyrst hinar stelp­urnar og fór síðan til baka með mig.

Ég sat fyrir aftan bíl­stjóra­sætið og allt í einu var eins og eitt­hvað gerð­ist í hausnum á honum og hann sagð­ist þurfa að fá meira. Hann reyndi að grípa í mig aftur en náði ekki og ég fékk nán­ast hjarta­á­fall. Ég bara fraus.

Á þessu augna­bliki, ver­andi ein í bílnum með honum, hugs­aði ég bara að ann­að­hvort yrði mér nauðgað eða ég væri að fara að deyja. Svo keyrði hann mig heim. Ég hugs­aði hvort ég ætti að stökkva út úr bílnum en ég gat ekk­ert hlaupið. Hann keyrði mig alveg inn í inn­keyrsl­una heima, ég gekk inn, lok­aði dyr­unum og brotn­aði algjör­lega niður. Ég skreið upp í rúm og sagði mömmu hvað gerð­ist,“ segir Margrét. Móðir hennar seg­ist hafa fengið mikið áfall þegar Margrét sagði henni allt af létta en þær mæðgur eru sam­mála um að það hafi verið það besta sem Margrét hefði getað gert – að segja frá strax.

Gátu hvorki leitað til lögreglunnar né skólans

Þrátt fyrir áfallið reyndu mæðgurnar að hugsa rök­rétt um hvernig þær ættu að snúa sér í mál­inu. Þetta var snemma um morgun og því erfitt að ná í fag­að­ila til að spyrja ráða. Mæðgurnar voru nefni­lega í erf­iðri stöðu – mað­ur­inn var, eins og áður segir, lög­reglu­maður í bænum þeirra. Ekki bætti það stöð­una að eig­in­kona hans var skóla­stýra í grunn­skól­anum sem var einnig vinnu­staður Hrefnu, móður Mar­grétar. Þær gátu því hvorki leitað til lög­reglu né skól­ans. Mæðgurnar ákváðu að fara í skól­ann eins og ekk­ert hefði ískorist og leita hjálpar síðar um dag­inn. Svo fór að málið fór fyrst til Barna­vernd­ar­stofu strax þennan föstu­dag. Í kjöl­farið fékk Margrét við­tal hjá félags­mála­full­trúa mánu­dag­inn eftir og tveimur dögum síðar fór hún með full­trú­anum til Reykja­víkur í skýrslu­töku.

„Við vorum beðin um að segja ekki neitt um málið við aðra þar til það væri komið á það stig að búið væri að yfir­heyra hann. Eina mann­eskjan sem ég fékk að segja frá þessu var besta vin­kona mín sem var með okkur úti að hlaupa. Ég vildi segja henni og biðja hana um að fara ekki á næstu hlaupa­æf­ingu,“ segir Margrét.

Margrét er á góðum stað í líf­inu í dag og segir þessa hörmu­legu lífs­reynslu ekki skil­greina sig sem per­sónu.

Tvær vikur liðu frá brot­inu þar til lög­reglu­mað­ur­inn var yfir­heyrður. Þann tíma þurftu Margrét og fjöl­skylda hennar að láta eins og ekk­ert væri, sem var erfitt í smá­bænum, eins og gefur að skilja.

„Við upp­lifðum það að hitta þau og þurftum að halda and­lit­inu og láta eins og ekk­ert væri. Í sann­leika sagt man ég voða­lega lítið eftir þessu. Ég hef oft hugsað út í þetta. Þetta var í byrjun maí og ég var í fjórum fram­halds­skóla­prófum og síðan að klára grunn­skóla­prófin. Samt man ég ekk­ert hvað ég gerði, hvort ég lærði fyrir prófin eða hvað,“ segir Margrét. Hún fékk þó samt verð­laun á útskrift­inni úr grunn­skóla fyrir fram­úr­skar­andi náms­ár­angur, verð­laun sem hún þurfti að taka á móti uppi á sviði, við hlið eig­in­konu lög­reglu­manns­ins. Sonur hans útskrif­að­ist með Margréti, en fjöl­skylda hennar fékk það í gegn að mað­ur­inn yrði ekki við­staddur útskrift­ina.

Svo fór að lög­reglu­mann­inum, sem þá var varð­stjóri, var vikið úr starfi meðan á dóms­mál­inu stóð. Það fannst Margréti og fjöl­skyldu hennar mik­ill léttir, enda bær­inn lít­ill og því yfir­gnæf­andi líkur á að sá hinn sami lög­reglu­maður yrði kall­aður út ef fjöl­skyldan þyrfti á lög­reglu­hjálp að halda. Þegar að hann var sýkn­aður fékk hann hins vegar starfið aftur í lög­regl­unni og starfar þar enn.

Sýknaður daginn fyrir 18 ára afmælið hennar

Málið fór fyrst fyrir hér­aðs­dóm um miðjan mars árið 2011 þar sem mað­ur­inn var sýkn­aður. Málinu var áfrýjað til Hæsta­réttar sem vís­aði mál­inu aftur í hérað til frek­ari rann­sóknar. Maðurinn var svo sak­felldur í hér­aðs­dómi og dæmdur í sex mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi. Loks var hann sýkn­aður í Hæsta­rétti þann 29. nóv­em­ber árið 2012.

„Þessi úrskurður Hæsta­réttar var í raun mikið áfall, því það var sigur þegar málið var sent aftur í hérað þar sem við unnum málið. Það var búið að byggja upp von. Var þetta virki­lega nið­ur­staðan? Við vorum búin að fara í gegnum allt þetta ferli sem var búið að taka tvö og hálft ár,” segir Margrét sem var á þessum tíma orðin au pair hjá þýsk/íslenskum hjónum í Þýska­landi. Lög­reglu­mað­ur­inn var sýkn­aður dag­inn fyrir átján ára afmæli hennar.

„Ég fór bara að hágráta. Ég útskýrði allt fyrir hjón­unum í Þýska­landi. Það besta sem þau gerðu var að minna mig á að við ætl­uðum að halda upp á afmælið mitt dag­inn eftir. Þau vildu ekki að ég myndi fest­ast í for­tíð­inni og velta mér upp úr því sem væri búið og gert, heldur að ég myndi horfa fram á veg­inn.“

Skólastýran sakfelld

Meðal sönn­un­ar­gagna sem lögð voru fram í mál­inu var dag­bók hennar sem hún hafði haldið árið áður. Dag­bók­inni hafði hún trúað full­trúa frá Marita­fræðsl­unni, sjálf­stætt starf­andi for­varn­ar­starfi um skað­semi fíkni­efna, fyrir þegar fræðslan heim­sótti grunn­skóla hennar ári áður en brotin áttu sér stað.

„Ég tók sér­stak­lega fram að ég vildi ekki að neinn sæi bók­ina og ég vildi alls ekki blanda skóla­stjór­anum mínum eða aðstoð­ar­skóla­stjór­anum í málið. Ég vildi bara fá óháðan aðila til að kíkja á bók­ina og vildi fá hjálp með mína van­líðan,“ segir Margrét. Samkvæmt dóms­skjölum var bókin skrifuð frá 15. maí 2009 til 19. jan­úar 2010, eða nokkrum mán­uðum áður en meint brot áttu sér stað. Úr dóms­skjölum má ráða að bókin hafi inni­haldið eðli­legar hug­renn­ingar ung­lings á mót­un­ar­skeið­inu um sitt til­finn­inga­líf og félags­leg tengsl.

Margrét sendi dag­bók­ina raf­rænt á full­trúa Marita­fræðsl­unnar, sem síðan áframsendi hana á skóla­stýruna án vit­undar Mar­grétar. Seinna, þegar dóms­málið hófst, var dag­bókin notuð í mál­inu. Í dóms­skjölum kemur fram að skóla­stýran hafi afhent ákæru­vald­inu dag­bók­ina. Vitnað var í dag­bók­ina fyrir dómi og var Margrét spurð út í það sem í henni stóð.

„Mér fannst það rosa­lega óþægi­legt. Eina sem ég hugs­aði var að þau væru að fara að segja að ég væri geð­veik. Ég vissi nákvæm­lega hver plönin voru á bak við að leggja þessa dag­bók fram. En mér var sagt að það væri ekk­ert óeðli­legt í dag­bók­inni sem væri hægt að véfengja. Því var okkur sagt að sam­þykkja það að dag­bókin yrði notuð í rétt­ar­höld­unum,“ segir Margrét.

Strax í kjöl­far þess að lög­reglu­mað­ur­inn var sýkn­aður fór Margrét í mál við skóla­stýruna vegna brots á frið­helgi einka­lífs og brots gegn trún­að­ar­skyldu sam­kvæmt lögum um grunn­skóla, í ljósi þess að hún hafði afhent ákæru­vald­inu dag­bók­ina, dag­bók sem hún átti ekki að vera með í fórum sínum og voru trún­að­ar­gögn. Skóla­stýran var sak­felld í hér­aðs­dómi og áfrýj­aði til Hæsta­réttar þar sem hún var aftur sak­felld og þurfti að greiða Margréti hálfa milljón í bætur. Áður en fjöl­skyldan kærði skóla­stýruna sendi það erindi til bæj­ar­fé­lags­ins og krafð­ist þess að hún yrði áminnt í starfi fyrir verkn­að­inn. Bærinn áminnti hana ekki og starfar hún enn sem skóla­stýra grunn­skól­ans.

„Gerandi virðist hafa þann rétt að mega ljúga“

Í dóms­skjölum í máli Mar­grétar gegn lög­reglu­mann­inum er meðal ann­ars stuðst við nið­ur­stöðu sál­fræði­mats Önnu Krist­ínar Newton sál­fræð­ings þar sem kemur fram að ekk­ert bendi til að frá­sögn Mar­grétar af brot­unum sé ótrú­verðug. Þá styrkti álit Þor­bjargar Sveins­dóttur, sál­fræð­ings hjá Barna­húsi, mál Mar­grétar, en hún sótti við­töl hjá henni í þrettán skipti á árunum 2010 til 2011. Var það álit Þor­bjargar að Margrét sýndi af sér fjöl­mörg ein­kenni sem þekkt eru meðal barna og ung­linga er sætt hafi kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Margrét segir það miður að ofan­greint, ásamt hennar fram­burði, hafi ekki verið nóg.

„Minn fram­burður var alltaf sami fram­burð­ur­inn. Vitn­is­burðir um mig sem mann­eskju sýndu að ég væri ekki að ljúga. Það var engin ástæða fyrir mig að rífa í sundur tvær fjöl­skyldur sem höfðu verið mjög nánar allt sitt líf. Það var ekki rök­rétt. Það véfengdi eng­inn orð manns­ins eða konu hans. Það var alltaf verið að véfengja mín orð. Ég þurfti alltaf að standa á bak við orð mín á meðan þau gátu bara sagt nei.“

„Hann var sýkn­aður dag­inn áður en ég varð átján ára,“ segir Margrét, en á þeim tíma var hún au pair í Þýska­landi.

Margrét segir miður að þol­andi þurfi að standa svo fast á sínum orðum á meðan orð ger­anda séu ekki véfengd nema yfir­gnæf­andi sann­anir séu gegn honum.

„Gerandi virð­ist hafa þann rétt að mega ljúga. Hann er sak­laus uns sekt er sönnuð en sem þol­andi þarftu að frekj­ast í gegnum þetta til að orð þín séu tekin trú­an­leg. Ég, sem barn, átti að njóta vafans, en það var hann sem naut vafans.“
Hún segir það sárt að ein­hver svo nær­kom­inn henni hafi getað brugð­ist trausti hennar. Þessar tvær fjöl­skyldur vörðu miklum tíma saman, fóru til útlanda saman og Margrét og sonur manns­ins voru góðir vinir.

„Þetta var fólk í ábyrgð­ar­stöðu sem ég átti að treysta, líka miðað við hve náin tengsl voru á milli fjöl­skyldn­anna. Ég horfði aldrei á þetta út frá þeirri valda­stöðu sem þau voru í. Það snerti mig miklu meira að þetta var fólk sem var náið mér og hvernig það reyndi síðan að koma illu orði á mig og mína fjöl­skyldu. Reyndi að láta eins og ég væri ekki trausts­ins verð.“

Bærinn skiptist í tvær fylkingar

Haustið eftir að brotið átti sér stað hóf Margrét nám í Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð, eitt­hvað sem hún hafði löngu ákveðið að gera. Faðir hennar vann í Reykja­vík en móðir hennar varð eftir í smá­bænum.

„Það er mjög skrýtið að segja það en þetta var mjög heppi­leg tíma­setn­ing fyrir mig að þetta gerð­ist, fyrst þetta þurfti að ger­ast. Ég var búin að sækja um í MH og var að fara suður, ekki norður í fram­halds­skóla eins og allir hinir krakk­arnir í bekknum. Þetta var alltaf planið, en það gerði það að verkum að ég komst út úr bænum og frá þessu öllu. Ég þurfti ekk­ert að pæla í þessu,“ segir Margrét. Móðir hennar skýtur inn í að henni hafi liðið eins og hún væri ein í heim­inum þar sem fólk hafi hætt að koma í heim­sókn og að bær­inn hafi skipst í tvær fylk­ingar: með og á móti lög­reglu­mann­inum. Loks fór það þannig að móðir hennar flutti einnig suður. Margrét segir samt sem áður að stuðn­ingur hafi komið úr óvænt­ustu áttum og fyrir það sé hún ávallt þakk­lát.

„Ég kann svo mikið að meta fólkið sem var til staðar. Það var fólk sem við þekktum áður en þetta gerð­ist sem kom í ljós að voru raun­veru­legir vinir okkar þegar þetta dundi yfir. Fólk sem ég bjóst hins vegar við að myndi standa með okkur var alls ekki til staðar. Við fórum aldrei í felur með þetta og stóðum með okkur sjálfum. Við gerðum allt rétt.“

Lætur atvikið ekki skilgreina sig

Móðir Mar­grétar segir að fjöl­skyldan sé sterk­ari eftir þessa lífs­reynslu, þó að eng­inn eigi að þurfa að ganga í gegnum svona nokkuð. Hún segir fjöl­skyld­una sam­heldn­ari og óhrædd­ari – að þau geti tek­ist á við hvað sem heim­ur­inn hendir í þau héðan í frá. Við förum aftur á byrj­un­ar­reit, til þess augna­bliks sem Margrét sagði frá brot­inu. Ég veit ekki af hverju við leitum þangað aftur, en við gerum það samt. Ég sé stolt fær­ast yfir svip Hrefnu, móður Mar­grétar, þegar hún sér þetta and­ar­tak fyrir sér ljós­lif­andi á ný. Margrét er nefni­lega ekki mikið fyrir að flagga til­finn­ingum sínum og tala um hlut­ina, að sögn for­eldra hennar. Því er móðir hennar svo hreykin af henni, ánægð og jafn­framt hissa að hún hafi sagt strax frá.

Margrét leyfir ekki draugum for­tíðar að stjórna lífi sínu.

„Ég þarf ekki mikið að tala um hlut­ina eins og sumir aðrir. Ég flagga ekki hlut­unum þannig að allur heim­ur­inn og Facebook viti af því. Það þarf mjög mikið til að ég fari í alvör­unni yfir brúna,“ segir Margrét, sem hefur fylgst með umfjöllun Mannlífs um mál kvenn­anna þriggja, Helgu Elínar, Kiönu Sifjar og Lovísu Sólar, sem sök­uðu lög­reglu­mann um kyn­ferð­is­brot. Hún seg­ist stundum hafa velt því fyrir sér að segja sína sögu, en hafi viljað segja hana á yfir­veg­aðan hátt þegar hún væri búin að vinna úr þeirri reiði sem bloss­aði upp í kjöl­far máls­ins.

„Ég hef oft hugsað hvort ég ætti að vera hluti af til dæmis #metoo-bylt­ing­unni. Það er svo lít­ill hluti af fólk­inu í kringum mig sem veit hver ég er og að þetta kom fyrir mig. Ég lít ekki á þetta sem þöggun hjá mér, því ef þú spyrð mig um þetta þá svara ég hreint út. Mér finnst fínt að geta komið fram núna, það er lengra um liðið og ég get horft á hvar ég er eftir svona atburð. Ég er á góðum stað í líf­inu. Ég á kærasta og hund, ég er að reyna að kaupa mér íbúð, ég er með vinnu, ég er að klára master. Mér finnst alltaf leið­in­legt að heyra af stelpum, konum, mönnum, strákum og hverjum sem er sem lenda í þeim víta­hring að koma ekki strax fram þannig að þau þurfa að lifa með þessu lengi. Þetta nagar þau að innan og þau leið­ast út á dimmar brautir í líf­inu. Þau reyna að bæla niður eitt­hvað sem verður ekki bælt niður,“ segir Margrét.

Hún hefur varla sýnt nokkur svip­brigði í þann tíma við við höfum talað saman, en ég sé að það tekur á hana að rifja upp þetta tíma­bil í sínu lífi. Það er þó greini­legt að hún hefur fengið fullan stuðn­ing frá fjöl­skyldu sinni og unnið vel úr sínum málum. Hún treystir lög­regl­unni og hún treystir kerf­inu. Hún ber engan kala til neins lengur því hún ætlar ekki að leyfa draugum for­tíðar að stjórna sínu lífi.

„Ég hef ekki við neinn að sakast. Ég hef ekk­ert við hér­aðs­dóm, hæsta­rétt, lög­fræð­inga, yfir­völd, lög­regl­una að sakast. Þetta er ekki eitt­hvað sem skil­greinir mig. Þetta hefur ekki mótað líf mitt. Þetta er bara lífið sem ég er búin að lifa. Ég lifði þetta, en ég lifi ekki með þessu.“

Texti / Lilja Katrín Gunn­ars­dóttir
Myndir / Íris Björk Reyn­is­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins