„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hef ekki þörf fyrir já-fólk

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur aldrei haft mikla þörf fyrir það að hafa bara já-fólk í kringum sig. Henni finnst oft gott að heyra í fólki sem er ósam­mála sér og kippir sér lítið upp við gagn­rýni en myndi hins vegar aldrei þora að birta eigin skáld­skap af ótta við að vera grilluð.

Hef ekki þörf fyrir já-fólk
|||||
„Ég hef senni­lega enst svona lengi í stjórn­málum vegna þess að ég hef húmor fyrir fólki og sjálfri mér. Það er alveg nauð­syn­legt,“ segir Katrín, spurð út í þátt­töku hennar í stjórn­málum.

Katrín er eðli máls­ins sam­kvæmt umsetin kona og ekki margar lausar stundir í hjá henni í deg­inum. Hún gefur sér þó tíma til að spjalla við mig og þar sem við­talið fer fram í vik­unni þegar Trump Banda­ríkja­for­seti setur alþjóða­sam­fé­lagið á hlið­ina með inn­flytj­enda­stefnu sinni, jafn vel þótt hann hafi síðan vikið frá því að skilja að for­eldra og börn inn­flytj­enda, er eðli­legt að fyrsta spurn­ingin snúi að því hvað henni finn­ist um fram­göngu hans.

„Það að skilja börn frá for­eldrum sínum er auð­vitað ekki í takt við Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ segir hún. „Og þótt Banda­ríkin séu ekki aðilar að honum stríðir þetta líka gegn þeim gildum sem við stöndum fyrir þegar kemur að því að tryggja vel­ferð og rétt­indi barna. Þetta er auð­vitað líka mjög umdeilt innan Banda­ríkj­anna, hefur sætt mik­illi gagn­rýni úr báðum flokkum og sér­lega áhuga­vert að allar lif­andi for­seta­frúr Banda­ríkj­anna hafa gagn­rýnt þetta.“

Þú munt sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands ávarpa NATO-ráð­stefn­una í Brussel í júlí, þar sem Trump og Erdogan verða meðal áheyr­enda, hvernig leggst það í þig?

„Það er bara hluti af starf­inu að eiga í alþjóð­legum sam­skiptum,“ svarar Katrín hin róleg­asta. „Það er bara þannig.“

VG er eini flokk­ur­inn sem hefur haft það á stefnu­skrá að Ísland gengi úr NATO, þannig að það hlýtur að taka svo­lítið á þig per­sónu­lega að þurfa að taka þátt í ráð­stefnu þess.

„Við höfum þá stefnu, það er rétt,“ segir Katrín. „Það breytir því ekki að allir aðrir flokkar á þing­inu hafa sam­þykkt með yfir­gnæf­andi meiri­hluta þjóðar­ör­ygg­is­stefnu fyrir Ísland þar sem aðildin að NATO er einn af horn­stein­unum og við fylgjum þeirri stefnu sem er lýð­ræð­is­lega sam­þykkt, það er auð­vitað bara hluti af því að vera í stjórn­málum og það höfum við gert áður þegar við vorum síð­ast í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi og það liggur fyrir að sem ráð­herra starfar maður sam­kvæmt þeirri stefnu sem Alþingi hefur tekið lýð­ræð­is­lega ákvörðun um að fylgja.“

Ég var reyndar að fiska eftir per­sónu­legri líðan Katrínar með það að þurfa að vera í sam­skiptum við þessa menn en hún er ekki á því að láta mig kom­ast upp með það. Hún bætir þó við: „Ég mun auð­vitað tala fyrir okkar utan­rík­is­stefnu sem er sú að það beri alltaf að reyna að stefna að póli­tískum og frið­sam­legum lausnum á átökum. Það eigi alltaf að vera fyrsta val. Við höfum ákveðna sér­stöðu sem her­laust land og tölum fyrir slíkum lausnum á alþjóða­vett­vangi og ég mun gera það á þessum fundi.“

„Fólk verður að fá að hafa sínar skoð­anir og ég hef aldrei haft mikla þörf fyrir það að hafa bara já-fólk í kringum mig. Mér finnst oft gott að heyra í fólki sem er ósam­mála mér.“
Katrín seg­ist hafa góðan stuðn­ing allrar fjöl­skyld­unnar en hún er yngst fjög­urra systk­ina og seg­ist hafa verið hálf­gerð dek­ur­rófa á heim­il­inu.

Hefur húmor fyrir fólki
Vinstri græn hafa setið undir gagn­rýni síðan þau fóru í rík­is­stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk, er starf for­sæt­is­ráð­herra ekki ofboðs­lega slít­andi?

„Það er nú ekki allt nei­kvætt, sem betur fer,“ svarar Katrín um hæl og ég heyri að hún brosir. „Það eru ein­hverjir ánægðir og aðrir ekki. Það er nú bara hluti af því að vera í stjórn­málum.“

Þetta svar vekur upp spurn­ing­una um það hvað upp­haf­lega hafi valdið því að Katrín fór að taka þátt í stjórn­málum.

„Ég er búin að vera á Alþingi síðan 2007 og mun lengur í póli­tík og ástæðan fyrir því er að ég hef rosa­legan áhuga á sam­fé­lags­málum og fyrir því að vinna fyrir sam­fé­lagið. Þann áhuga hef ég haft frá því ég byrj­aði að vera virk í félags­lífi í fram­halds­skóla. Ástæðan fyrir því að ég end­ist í póli­tík er hins vegar að ég hef líka áhuga á fólki og mér finnst gaman að vinna með því, líka fólki sem er ósam­mála mér. Það finnst mér geta verið krefj­andi og áhuga­vert. Ég hef senni­lega enst svona lengi í stjórn­málum vegna þess að ég hef húmor fyrir fólki og sjálfri mér. Það er alveg nauð­syn­legt.“

Þrátt fyrir langan stjórn­mála­feril, meðal ann­ars sem mennta­mála­ráð­herra, hlýtur starf for­sæt­is­ráð­herra að vera mun meira álag en Katrín hefur áður upp­lifað. Er þetta starf það erf­ið­asta sem hún hefur tek­ist á við?

„Já, ætli það sé það ekki,“ segir hún hugsi. „En það er auð­vitað þannig að við öll sem vorum í stjórn­málum eftir hrun, óháð því hvort við vorum í stjórn eða stjórn­ar­and­stöðu held ég, lifðum tíma sem reynd­ust mörgum mjög erf­iðir og það að vera mennta­mála­ráð­herra og vinna í mála­flokkum sem maður hefur ástríðu fyrir, bæði mennta­málum og menn­ing­ar­málum, var auð­vitað flókið á mestu nið­ur­skurð­ar­tímum í lýð­veld­is­sög­unni, þannig að ég segi ekki að maður hafi ekki mætt mót­læti eða álagi áður. En þetta er auð­vitað stórt verk­efni sem ég er í núna.“

„Ég verð í stjórn­málum á meðan ég hef ástríðu fyrir þeim. Svo hætti ég. Við verðum bara að bíða og sjá hvenær það verður.“

Sofnar um leið og hún sest niður
Hefurðu ein­hvern tíma til að eiga eitt­hvert líf fyrir utan starfið? Geturðu horft á fót­bolta og gert eitt­hvað sem þér finnst skemmti­legt?

„Starfið er sem betur fer líka skemmti­legt. En það er ekki mik­ill tími sem gefst til að kúpla sig út en maður verður að gera það við og við, ann­ars missir maður bara vitið,“ segir Katrín og hlær. „En það verður að við­ur­kenn­ast að til þess gefst minni tími en oft áður.“

Ertu áhuga­mann­eskja um fót­bolta?

„Já, ef ég væri í öðru starfi eða hefði tök á því þá myndi ég horfa á alla leiki en akkúrat núna er ástandið þannig að maður lætur sér nægja að fylgj­ast með leikjum Íslands. Svo sér maður kannski slitrur úr öðrum leikjum á hlaupum. Það er auð­vitað tölu­vert horft á þetta á mínu heim­ili þar sem ég á nú þrjá stráka þannig að ég missi ekki alveg af þessu.“

Geturðu ein­hvern tíma verið heima hjá þér á kvöldin?

„Jú, jú, auð­vitað kemur maður stundum heim,“ svarar hún og and­varpar. „Gallinn er að maður sofnar yfir­leitt strax og maður sest niður þannig að maður er kannski ekki góður félags­skapur.“

Katrín hefur áður talað um það í við­tölum að heim­il­is­haldið hvíli mest á eig­in­manni hennar, Gunnari Sig­valda­syni, og það hefur vænt­an­lega ekki breyst við nýja starfið, eða hvað?

„Já, þetta hvílir ansi mikið á honum, það verður að við­ur­kenn­ast,“ segir hún. „Það er held ég hluti af því sem ger­ist hjá mörgum stjórn­mála­mönnum að makar þeirra þurfa að taka mestu ábyrgð­ina á öllu þessu sem þarf að sinna hjá öllum fjöl­skyldum. Vinnu­tím­inn er oft mjög óvenju­legur og ófyr­ir­séður og það er kannski það sem ég ímynda mér að sé leið­in­leg­ast við að vera giftur stjórn­mála­manni. Að vita í sjálfu sér aldrei hvað ger­ist.“

„Við höfum ákveðna sér­stöðu sem her­laust land og tölum fyrir slíkum lausnum á alþjóða­vett­vangi og ég mun gera það á þessum fundi.“

Alltaf erfitt að vera í rík­is­stjórn
Eins og fram kom áður hefur þing­flokkur VG setið undir gagn­rýni fyrir að hafa gengið inn í þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Er ekk­ert erfitt að takast á við það?

„Það er bara erfitt að vera í rík­is­stjórn, það var líka erfitt á árunum 2009-2013, það er bara hluti af líf­inu. Maður gengur ekki inn í þetta verk­efni með það að mark­miði að verða eitt­hvað sér­stak­lega vin­sæll. Okkur fannst hins vegar mjög mik­il­vægt að hafa áhrif á stjórn lands­ins. Það hefur verið að molna undan innviðum sam­fé­lags­ins eftir kreppu og við verðum bara að horfast í augu við stöð­una eins og hún er. Það er mjög mik­il­vægt að við nýtum núna þá efna­hags­legu hag­sæld sem verið hefur til þess að byggja upp þessa inn­viði. Það eru líka stór verk­efni sem mínum flokki fannst mik­il­vægt að hafa áhrif á, ég get nefnt umhverf­is­málin, nátt­úru­vernd og lofts­lags­mál, kynja­jafn­rétt­is­mál og þessa inn­viða­upp­bygg­ingu sem mér finnst mik­il­væg til þess að tryggja auk­inn jöfnuð og aukna vel­sæld í sam­fé­lag­inu. Þannig að, jú, jú, við erum gagn­rýnd fyrir það að gera mála­miðl­anir og ná ekki öllum okkar málum fram en það er bara fylgi­fiskur þess að fara í rík­is­stjórn. Það er ekki eins og við séum ókunnug þessum við­brögðum frá fyrri tíð. Ef maður er alltaf að hugsa um að ein­hverjum muni finn­ast eitt­hvað athuga­vert við það sem maður gerir þá mun maður lík­lega aldrei gera neitt.“

Er þetta ekki bara svipað og að vera í hjóna­bandi? Snýst þetta ekki meira og minna um mála­miðl­anir og til­slak­anir?

„Jú, jú, það er nátt­úr­lega und­ir­staða lýð­ræð­is­sam­fé­laga að ólík öfl geti gert mála­miðl­anir og það þekkjum auð­vitað bæði úr okkar sögu og sögu ann­arra landa að und­ir­staðan er sú að við höfum öll okkar hug­myndir og okkar stefnu og svo þurfum við ein­hvern veg­inn að lenda ein­hverjum ásætt­an­legum nið­ur­stöðum og það er auð­vitað alltaf flókið.“

Katrín í mynda­töku á tröppum Stjórn­ar­ráðs­ins.

Tekur ekki fram fall­byss­una
Oft hefur verið bent á Katrínu sem einn mesta diplómatann í íslenskum stjórn­málum, er hún sam­mála því mati? Á hún auð­velt með að miðla málum og aðlaga sig að ólíkum áherslum ann­arra?

„Ég held það sé alveg rétt að ég eigi það og það átti í sjálfu sér alveg eins við í stjórn­ar­and­stöðu,“ segir Katrín. „Ég við­ur­kenni það að ég er ekki mann­eskja stórra orða og ég tek ekki fram fall­byss­una í hvert sinn sem eitt­hvað ger­ist. Mér finnst það ekki spenn­andi stjórn­mál sem snú­ast bara um það.“

Þegar Katrín tók við for­sæt­is­ráð­herra­emb­æt­inu vakti það einna mesta athygli erlendra miðla að hún væri sér­fræð­ingur í glæpa­sögum sem myndi vænt­an­lega koma sér vel í þessu starfi. Er hún sam­mála þeirri skoðun? Er það góður grunnur fyrir for­sæt­is­ráð­herra að hafa stúd­erað glæpa­sögur?

„Það er góður grunnur fyrir alla stjórn­mála­menn,“ segir hún og glottir. „Þetta er nátt­úr­lega skrýt­inn geiri og glæpa­sögur byggja á þeirri for­sendu að engum sé treystandi, þannig að er það ekki ágætis grunnur?“

Þurfa stjórn­mála­menn þá alltaf að vera á varð­bergi gagn­vart því að ein­hver styngi þá í bakið?

„Ja, maður hefur séð dæmi um það í stjórn­málum,“ svarar hún rólega. „Þótt ég þekki það ekki endi­lega per­sónu­lega af minni reynslu. En maður hefur séð það ger­ast hjá öðrum.“

Les skáld­skap á hverjum degi
Glæpa­sögur eru varla eina áhuga­málið, hvaða fleiri áhuga­mál hefur for­sæt­is­ráð­herr­ann?

„Ég hef engin áhuga­mál, ég er alltaf í vinn­unni,“ svarar Katrín um hæl og skellir upp úr. „Nei, nei, ég hef rosa­lega gaman af því að vera úti á sumrin og njóta okkar nátt­úru og fal­lega lands. Senni­lega er það stærsta áhuga­mál mitt að vera úti í íslenskri nátt­úru og síðan les ég nú fleira en glæpa­sögur. Ég les skáld­skap á hverjum ein­asta degi. Þótt glæpa­sögur séu ágætar geta þær orðið leiði­gjarnar til lengdar, maður er svo­lítið far­inn að sjá það fyrir á blað­síðu 200 hver morð­ing­inn reyn­ist vera á síðu 500 þegar maður hefur lesið svona mikið af þeim. Þannig að ég les alls konar skáld­skap og þetta tvennt er efst á list­anum, að vera úti og lesa.“

Það fylgir því auð­vitað að vera í opin­beru emb­ætti að þurfa að gæta orða sinna en áttu ekki eitt­hvert athvarf, hjá vinum eða fjöl­skyldu, þar sem þú getur bara verið Katrín og sagt allt sem þér dettur í hug?

„Maður verður auð­vitað að sinna þeim störfum sem maður tekur að sér og gerir það bara. Þau eru hluti af manni sjálfum líka. En það er nauð­syn­legt að eiga góða vini og fjöl­skyldu þar sem maður getur talað í trún­aði og þarf ekki að vega og meta hvert orð. Og ég er mjög heppin með vini.“

„Ég ímynda mér að það sé miklu verra að vera tek­inn af lífi sem rit­höf­undur. Maður er öllu vanur úr stjórn­mál­unum en það hlýtur að vera alveg hræði­leg upp­lifun að láta grilla hug­verkin sín.“

Alveg ein­læg­lega, hvað hefur reynst þér erf­ið­ast í starfi for­sæt­is­ráð­herra?

„Kannski það að maður er alltaf í emb­ætt­inu, eins og við vorum að tala um. Það er auð­vitað ákveðið álag. Þess vegna er ég að tala um nauð­syn þess að eiga góða vini sem maður getur verið opin­skár við og sagt hluti sem eru ekki „réttir“. Sagt bara allt sem ekki má. Það er alveg ljóst að maður talar ekki bara fyrir sína hönd þegar maður er for­sæt­is­ráð­herra, maður talar fyrir hönd lands­ins.“

Eitt af því sem gerir það að verkum að Katrín hefur verið einn vin­sæl­asti stjórn­mála­maður á Íslandi er hvað hún er vel máli farin og fer vel með tungu­málið, er það að hennar mati nauð­syn­legur eig­in­leiki góðs stjórn­mála­manns?

„Það skiptir máli fyrir okkur öll að nýta tungu­málið sem við eigum, við gleymum því stundum hvað við eigum mikil verð­mæti í þessu tungu­máli. Ég er oft spurð erlendis hvaða tungu­mál við tölum á Íslandi og það kemur mörgum á óvart þegar ég segi að við tölum íslensku. Það er eins og mörgum, sér­stak­lega stærri þjóðum, finn­ist það algjör­lega galið að 350.000 manna þjóð tali eigið tungu­mál. Ég held hins vegar að það skipti okkur sem þjóð ofboðs­lega miklu máli að eiga þessar rætur og geta verið í þessum tengslum við okkar for­tíð í gegnum tungu­málið. Það er sér­stak­lega mik­il­vægt núna, þegar við sjáum heim­inn í kringum okkur breyt­ast dag frá degi og tækn­ina verða stærri og stærri þátt í lífi okkar, að íslenskan verði gjald­geng í tækni­heim­inum.“

Katrín í rík­is­stjórn­ar­her­berg­inu.

Hefur ekki þörf fyrir já-fólk
Talið berst aftur að eig­in­mann­inum og hvort Katrín og hann séu til dæmis alltaf sam­mála um póli­tík­ina?

„Nei, það erum við ekki,“ svarar hún. „Við ríf­umst alveg um póli­tík. Ég veit ekki einu sinni hvað hann kýs, ég fer ekki með honum inn í kjör­klef­ann. En hann hefur hins vegar sýnt mér mik­inn stuðn­ing með ráðum og dáð þótt hann sé ekk­ert alltaf sam­mála mér. Enda geri ég enga kröfu um það. Fólk verður að fá að hafa sínar skoð­anir og ég hef aldrei haft mikla þörf fyrir það að hafa bara já-fólk í kringum mig. Mér finnst oft gott að heyra í fólki sem er ósam­mála mér.“

Katrín seg­ist hafa góðan stuðn­ing allrar fjöl­skyld­unnar en hún er yngst fjög­urra systk­ina og seg­ist hafa verið hálf­gerð dek­ur­rófa á heim­il­inu.

„Ég var mikið upp­á­halds­barn, eins og oft er með yngstu börn,“ segir hún og hlær. „Ég er sex árum yngri en tví­bura­bræður mínir og fjórtán árum yngri en systir mín og þeim þótti upp­eldi mínu mjög ábóta­vant. Þau gagn­rýndu for­eldra okkar mikið fyrir að hafa hætt öllu upp­eldi þegar ég kom í heim­inn. Það hef ég fengið að heyra frá því ég man eftir mér.“

Spurð hvað hún hafi ætlað sér að verða áður en stjórn­málin hertóku huga hennar vefst Katrínu tunga um tönn, nema hún seg­ist aldrei hafa ætlað sér að verða stjórn­mála­maður þegar hún yrði stór. „Ég hafði alls konar hug­myndir. Var minnt á það um dag­inn að ég hefði skrifað í ein­hverja bekkj­ar­bók í grunn­skóla að ég ætl­aði að verða skurð­læknir. Ég hef líka mjög mik­inn áhuga á því sem ég var að gera áður en ég varð stjórn­mála­maður en þá vann ég bæði við bóka­út­gáfu og sem kenn­ari og fannst hvort tveggja mjög gaman. Mér hafa reyndar fund­ist flest störf sem ég hef sinnt mjög skemmti­leg.“

Birti tvær örsögur
Talandi um bóka­út­gáfu og færni í íslensku, skrif­arðu sjálf skáld­skap?

„Nei, því miður ekki,“ svarar Katrín og dæsir. „Ég er samt alltaf að ímynda mér að ég sé að fara að gera það bráðum. Ég skrif­aði ljóð og ein­hvern hall­æris­skap þegar ég var ung­lingur en ég held það hafi bein­línis ekk­ert birst eftir mig af skáld­skap nema tvær örsögur sem birt­ust í tíma­riti íslensku­nema þegar ég var í Háskól­anum. Ég lít svo á að skáld séu hug­rakkasta fólk í heimi því þau rífa úr sér hjartað og leggja það á borð og eru svo jafn­vel tekin af lífi og grilluð. Mér finnst það mjög ógn­vekj­andi starf.“

Ég bendi Katrínu á að stjórn­mála­menn séu nú líka aldeilis grill­aðir í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum en henni finnst það mun minna mál.

„Ég ímynda mér að það sé miklu verra að tek­inn af lífi sem rit­höf­undur. Maður er öllu vanur úr stjórn­mál­unum en það hlýtur að vera alveg hræði­leg upp­lifun að láta grilla hug­verkin sín.“

Einhvers staðar las ég að þú værir ákveðin í að hætta í stjórn­málum þegar þessu kjör­tíma­bili lyki, er eitt­hvað hæft í því?

„Ég tek bara einn dag í einu,“ svarar hún véfrétt­ar­lega. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það. Ég verð í stjórn­málum á meðan ég hef ástríðu fyrir þeim. Svo hætti ég. Við verðum bara að bíða og sjá hvenær það verður.“

Og ætlarðu þá að skrifa krassandi sjálfsævi­sögu og segja allt sem þú gast ekki sagt á meðan þú varst í opin­beru emb­ætti?

„Það verður svo­leiðis,“ segir Katrín og skelli­hlær. „Og svo mun ég flytja eitt­hvað mjög langt í burtu!“

Myndir: Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins