„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sjúklingarnir á Kleppi gleymdust

Öryggis- og rétt­ar­geð­deildin á Kleppi getur ekki útskrifað sjúk­linga vegna skorts á búsetu­úr­ræðum og þar af leið­andi ekki tekið á móti nýjum sjúk­lingum. Samkvæmt starfs­manni á vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar má ástæð­una meðal ann­ars rekja til þess að sjúk­ling­arnir hafi orðið útundan.

Sjúklingarnir á Kleppi gleymdust
||
Berglind Magn­ús­dóttir, skrif­stofu­stjóri öldr­unar- og hús­næð­is­mála á vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar.

Mannlíf greindi frá því á dög­unum að ófremd­ar­á­stand hafi skap­ast á öryggis- og rétt­ar­geð­deild­inni á Kleppi. Skortur á félags­legu hús­næði í Reykja­vík og í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu veldur því að ekki hefur verið hægt að útskrifa fólk sem hefur lokið með­ferð á deild­unum. Á örygg­is­geð­deild­inni geta verið átta sjúk­lingar og voru þar sjö. Af þeim er hægt að útskrifa fjóra. Búsetu­úr­ræði í félags­lega kerf­inu er hins vegar ekki til staðar fyrir þá. Á rétt­ar­geð­deild­inni eru svo fjórir og eru þrír þar útskrift­ar­hæfir. Tveir á rétt­ar­geð­deild­inni hafa beðið eftir búsetu­úr­ræði síðan um ára­mótin síð­ustu.

Elsa Bára Trausta­dóttir, sál­fræð­ingur á öryggis- og rétt­ar­geð­deild­inni á Kleppi, sagði í sam­tali við Mannlíf þetta valda klemmu, ekki sé hægt að taka á móti nýjum sjúk­lingum þegar útskrift­ar­hæft fólk er þar fyrir.

„Við höfum fullan skiln­ing á vanda sjúk­linga á Kleppi. Það dregur líka úr bata­horfum þeirra að þurfa að gista þar þótt hægt sé að útskrifa þá,“ segir Berglind Magn­ús­dóttir, skrif­stofu­stjóri öldr­unar- og hús­næð­is­mála á vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar og bendir á það séu margir þrösk­uldar sem þurfi að yfir­stíga og því vinni vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar og geð­svið Land­spít­al­ans saman að því að finna hús­næði fyrir sjúk­linga svo þeir kom­ist af spít­al­anum.

„Við höfum fullan skiln­ing á vanda sjúk­linga á Kleppi. Það dregur líka úr bata­horfum þeirra að þurfa að gista þar þótt hægt sé að útskrifa þá.“
Skortur á félags­legu hús­næði í Reykja­vík og í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu veldur því að ekki hefur verið hægt að útskrifa fólk sem hefur lokið með­ferð á Öryggis- og rétt­ar­geð­deild­inni á Kleppi.

Berglind segir Reykja­vík­ur­borg og reyndar fleiri enn vera að vinna sig út úr því þegar mál­efni fatl­aðra voru færð frá ríki til sveit­ar­fé­laga árið 2011. Í þeirri yfir­færslu hafi gleymst að gera ráð fyrir þeim sem voru á spít­ala. „Þetta er vanda­mál sem hefur verið unnið mark­visst með. Með átaki tókst að eyða biðlist­anum fyrir tveimur árum. Hann hefur hins vegar birst jafn­harðan aftur.“

Að hennar sögn hefur margt tafið fyrir því að úrræðum fjölgi sem mæti þörfum sjúk­ling­anna á Kleppi. Þar á meðal sé upp­sveifla á fast­eigna­mark­aði sem setji meiri pressu á allt. Til við­bótar sé sam­keppni um stofn­fram­lögum sveit­ar­stjórnar og ríkis úr Íbúða­lána­sjóði til bygg­ingar félags­legs hús­næðis og fleiri verk­efna fyrir fatl­aða. Hún bendir hins vegar á að fyrir um ári hafi verið sam­þykkt upp­bygg­ing­ar­á­ætlun fyrir geð­fatl­aða og fleiri sem heyri undir vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar. Þar er í sam­ræmi við spá gert ráð fyrir bygg­ingu 200 íbúða­kjarna til árs­ins 2030. Unnið er eftir því. Í sam­ræmi við það voru tveir íbúða­kjarnar opn­aðir í apríl og maí og opnar sá þriðji í júlí.

„Við höfum skoðað ýmsar aðrar leiðir, svo sem að hafa íbúðir utan kjarna, íbúðir í venju­legum húsum fyrir geð­fatl­aða ein­stak­linga sem þurfa ekki næt­ur­þjón­ustu. En það sama á við um þær og íbúða­kjarn­ana, íbúar í hverfum borg­ar­innar þurfa að vera hlið­hollir því að íbúða­kjarnar séu í götum þeirra. Kærur hafa farið á milli vegna þessa og það hefur bæði hamlað og hægt á fram­kvæmdum. En þegar hjólin fara að snú­ast þá ger­ist þetta von­andi allt hraðar,“ segir Berglind.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins