„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óljóst hvort lögreglan verður vopnuð

Ekki liggur fyrir hvort lög­regla verði vopnuð á hátíða­höldum í mið­borg­inni í Reykja­vík á 17. júní.

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri sagði í sam­tali við RÚV á sínum tíma að ekki væri verið að auka vopna­burð lög­reglu heldur gera sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra sýni­legri á stórum sam­komum.

„Lög­reglan upp­lýsir ekki um örygg­is­ráð­staf­anir á stórum við­burð­urm, svo sem 17. Júní, fyr­ir­fram. En sér­sveit og lög­reglan hafa alltaf aðgang að vopnum og hafa alltaf haft,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirs­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í skrif­legu svari til blaða­manns Mannlífs, aðspurður um örygg­is­ráð­staf­anir í tengslum við hátíða­höldin í borg­inni á þjóð­há­tíð­ar­dag.

Sérsveit lög­reglu­stjóra var ekki vopnuð í borg­inni á síð­asta ári í tengslum við þjóð­ar­há­tíð­ar­dag­inn, þrátt fyrir heil­miklar var­úð­ar­ráð­staf­anir. Athygli vakti þegar hún var sýni­lega vopnuð þegar Color Run fór fram 10. júní í fyrra. Á meðan á hlaup­inu stóð var mörgum götum jafn­framt lokað og til þess not­aðir stórir flutn­inga­bílar svo önnur öku­tæki kæmust ekki fram hjá.

Lands­menn eru óvanir því að sjá vopnum búna lög­reglu­menn á Íslandi og mörgum var því brugðið. Rík­is­lög­reglu­stjóri sagði í fyrra að gripið hafi verið til þess­ara var­úð­ar­ráð­staf­ana í kjöl­fars nýs áhættu­mats grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra vegna hryðju­verka­árása í Manchester og í London í Bret­landi í fyrra.

Árásin í Manchester var gerð á tón­leikum söng­kon­unnar Ariönu Grande í maí þegar maður sprengdi sig í loft upp. Í árásinni lét­ust 22 tón­leika­gestir og tugir særð­ust. Í júní óku svo þrír menn sendi­ferða­bíl á gang­andi veg­far­endur á London Bridge á 80 kíló­metra hraða. Þegar yfir brúna var komið fóru þeir út úr bílnum og réð­ust á fólk við Borough Market. Sjö lét­ust í árásinni og 48 særð­ust.

„Lög­reglan upp­lýsir ekki um örygg­is­ráð­staf­anir á stórum við­burðum, svo sem 17. júní, fyr­ir­fram. En sér­sveit og lög­reglan hafa alltaf aðgang að vopnum og hafa alltaf haft.“

Í kjöl­farið var gripið til var­úð­ar­ráð­staf­ana í mörgum Evr­ópu­ríkjum og gerði grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra nýtt áhættu­mat í skugga ofbeld­is­ins. Þjóð­ár­ör­ygg­is­ráðið kom saman hér og ræddi um við­búnað og vopna­burð lög­reglu á fjölda­sam­komum. Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri sagði í sam­tali við RÚV á sínum tíma að ekki væri verið að auka vopna­burð lög­reglu heldur gera sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra sýni­legri á stórum sam­komum. Ekki náð­ist í Harald í tengslum við vinnslu þess­arar fréttar.

Áhættu­matið sem gert var eftir árás­irnar í Bret­landi náði yfir við­burði í mið­borg­inni og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það hefur verið upp­fært síðan þá. Ásgeir Þór segir í raun ekk­ert hafa breyst í þeim efnum frá því í fyrra en vill ekki segja nákvæm­lega í hverju það felst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins