„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þetta er gæðastund með stráknum mínum“

„Þetta er gæðastund með stráknum mínum“
||

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens fékk sér húð­flúr með syni sínum, Brynjari á dög­unum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem feðgarnir láta flúra sig saman en Bubbi segir þetta góða gæða­stund sem þeir feðgar deila.

Aðalmynd: Össur, annar eig­andi Reykja­vík Ink, Bubbi og box­ar­inn og snapp­ar­inn Davíð.

„Hann lang­aði í tattú og ég ætl­aði hvort sem er að fá mér tattú þannig að við gerðum þetta saman. Við höfum gert þetta áður, farið saman og fengið okkur tattú. Við erum bara vinir,“ segir Bubbi og bætir við að flúrun sé þeirra leið til að yrkja sitt sam­band.

„Þetta er gæða­stund með stráknum mínum. Það er ekki allir for­eldrar endi­lega sam­mála því en þetta er góð stund. Þetta er bara stemmari.“

Fékk fyrsta flúrið árið 1974

Flugan hans Bubba.

Bubbi og Brynjar fóru saman í flúr á húð­flúr­stof­unni Reykja­vík Ink á dög­unum og lét Bubbi flúra á sig veiði­flugu en Brynjar fékk sér rýt­ing. Er þetta fjórða flugan sem Bubbi lætur húð­flúra á lík­ama sinn.

„Flugan er ákveðið tákn. Ég er ekki viss um að ég setji fleiri flugur á mig, en þetta eru flugur sem ég hef notað í veiði,“ segir Bubbi, sem er mik­ill veiði­maður eins og margir Íslend­ingar vita.

Bubbi hefur ekki aðeins skreytt lík­ama sinn með flugum, og státar af mynd­ar­legu húð­flúr­safni á sínum kropp. Það stendur ekki á svör­unum þegar hann er spurður út í fyrsta húð­flúrið.

„Ég fékk mér fyrsta tattúið árið 1974. Það var rós. Snemma beyg­ist krók­ur­inn,“ segir Bubbi og hlær. „Ég rækta rósir og hef gaman að rósum. Ég lét tattú­vera yfir það og ég sé dálítið eftir því í dag. Það var frægur maður sem flúraði mig og það hefði verið gaman að vera með sýni­legt tattú eftir hann. Hann flúraði mig í Nýhöfn­inni.

Hann var kall­aður Tattú Sven.

Næstu tattú á eftir fékk ég mér síðan í Rott­er­dam með Utan­garðs­mönnum,“ segir Bubbi. Hann segir að margt hafi breyst í húð­flúr­heim­inum á þessum 44 árum.

Rýt­ing­ur­inn sem Brynjar, sonur Bubba fékk sér.

„Þegar ég var að byrja í rokktón­list­inni og rokk­brans­anum voru fáir, jafn­vel engir með tattú. Það voru aðal­lega sjó­menn og glæpa­menn sem voru flúraðir. En það er mikið breytt. Þetta er orðið norm í dag og hefur orðið gríð­ar­leg þróun í nálum, litum og tækni. Þær verða alltaf fal­legri og fal­legri mynd­irnar.“

Gott í bili

Í dag lætur Bubbi flúra sig á stof­unni Reykja­vík Ink, þar sem hann og einn eig­andi stof­unnar, Össur, eru góðir vinir.

„Ég fer þangað til að hitta Össur og kjafta og hafa gaman,“ segir Bubbi bros­andi. Fyrr­nefndur Össur er vel flúr­aður um allan lík­amann, en Bubbi segir það ekki vera mark­mið sitt þegar kemur að flúri.

„Ég vil hafa ákveðna hluti hreina. Hand­leggirnir geta þolað að vera með slatta af flúrum en ég ætla senni­lega að láta fætur, brjóst og maga vera.“

En er tón­list­ar­mað­ur­inn byrj­aður að skipu­leggja næsta flúr?

„Nei, þetta er fínt í bili.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húðflúr

Jón Gnarr kominn með glænýtt húðflúr: „Þetta er í raun bara veggjakrot“
Menning

Jón Gnarr kom­inn með glæ­nýtt húð­flúr: „Þetta er í raun bara veggjakrot“

Jón Gnarr er kom­inn með nýtt húð­flúr. Leik­ar­inn og fyrrum for­seta­fram­bjóð­and­inn Jón Gnarr er kom­inn með glæ­nýtt húð­flúr og það af dýr­ari kant­inum. Í dag, á þjóð­há­tíð­ar­degi Íslend­inga birti Jón ljós­mynd af nýju tattúi, sem passar heldur betur við dag­inn. Við mynd­ina birti hann eft­ir­far­andi texta: „Til ham­ingju með dag­inn elsku vinir. Elsta rit­aða heim­ild þar sem orðið Ísland kemur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins